Vísir - 08.09.1911, Page 1
Kemurvenjulegaútkl.llárdegis sunuud. 25 blöðinfrá8.ágúst.kosta:Áskrifst.50a. Afgr. áhorninuáHotel Island 1-3 og 5-7.
þriðjud., miðvd., fimtud. og föstud. Send út um landóO au.— Einst.blöð 3 a. Óskað að fá augl.semtímanlegast.
I
Ur bænum.
Föstud. 8. sept. 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12.25‘
Háflóð kl. 5,7‘ árd. og kl. 5,24‘ síðd.
Háfjara kl. 11,19“ árd. og 11,36 síðd.
Afmæli í dag.
Frú Ásta Pálsdóttir.
Geir Sigurðsson, skipstjóri.
Póstar á morgun.
Ingólt'ur tíl og frá Keflavík.
Póstvagn til Þingvalla. .
Hafnafjarðarpóstur kemur og fer.
Veðrátta í dag.
Loftvog £ -< Vindhraði Veðurlag
Revkiavik 762,3 t- 8,0 0 Alsk.
lsafjörður 764,1 - 5,0 0 Alsk.
Blönduós 764,0 - 4,6 N 3 Alsk.
Akkureyri 762,8 - 6,0 NNV 1 Regn
Grímsst. 728,0 - 3,8 N 2 Regn
Seyðisfj. 760,3 - 8,8 N 3 Skýað
Þórshöfn 758,8 H - 9,7 V 2 Skýað
Skýringar:
N = norð- eða norðan, A = aust- eða
austan, S = suð- eða sunnan, V = vest-
eða vestan.
Vindhæð er talin í stigum þannig:
0 - logn, 1 = andvari, 2 = kul, 3 =
gola, 4 = kaldi, 5 = stinningsgola, 6=
stinningskaldi, 7 = snarpur vindur, 8=
hvassviðri, 9 = stormur, 10= rok, 11 =
ofsaveður, 12 = fárviðri.
Jxí útlöndum.
Aldarafmæli Kristjaníu-
háskóla er haldið hátíðlegt
þessa dagana í Kristjaníu. Byrjaði
hátíðin á þriðjudaginn var og end-
ar á morgun.
Þar er Dr. B. M. Ólsen háskóla-
rektor vor fyrir hönd Háskóla ís-
lands og Bókmentafjelagsins. Fór
hann með kveðjuskjal mikið skraut-
ritað frá háskólanum hjer.
Að kveldi fyrsta hátíðisdagsins
barst blaðinu Ríki símskeyti á þessa
leið:
Kristjanía 5. sept. 1911 Erslev Hil-
sen Universitetet og Reykjavík Höj-
skole Olsen tav. — Er það að skilja I
svo að Erslev háskólastjóri Dana
hafi flutt háskóla Norðmanna kveðju
frá háskóla sínum og lýðháskólan-
um í Reykjavík (ekki á Hvítárbakka),
en að Dr. B. M. Olsen hafði ekki
mælt þar, hvorki borið fram kveðju
frá háskóla íslands nje mótmælt
smánarorðum Erslevs.
Það er hvorutveggja jafn ótrúlegt,
að hjer sje um nokkurt falsskeyti
að ræða og hitt, að Dr. Ólsen hafi
staðið sig svo hörmuglega.
Menn bíða með óþreyu eftir úr-
Iausn þessarar gátu, en ýmsir hafa
sent hjeðan símafyririspurnir um
málið og má búast við úrlausn í
dag.
Þjóðveldisforseti í Portu-
gal var kosinn Senhor Manuel de
Arriage 23. ág.
Loftpóstar. í dag (s/9) byrja
reglubundnar póstferðir á loftskip-
um milli Lundúna og Windsor.
Sjerstök frímerki verður að setja
á brjef sem sendast eiga í þessum
pósti og eru brjefin látin í þar til
ætlaða póstkassa.
Kóleran geysar stöðugt á ít-
alíu og virðist vera í engri rjen-
un. Sjúkdómsskýrslurnar fyrir
júnímánuð telja, að rúm 40C manns
hafi sýkst þar f landi úr veikinni,
og nær þriðjungur dáið. Fram-
undir síðustu viku (júlí) voru
sjúkdómstiifellin tæp 800 og rúm
200 dánir. Frá Ítalíu hefur Kól-
eran borist til Austurríkis, en lítil
brögð eru að útbreiðslu hennar
þar, enn sem komið er. Einnig
hefur sýkin borist frá Ítalíu til
Bandaríkjanna, þó þar hafi að
mestu tekist að stöðva útbreiðslu
hennar. Heirnskr.
höfn 20. til 25.
og Reykjavíkur
íslands Falk kom á þriðjudaginn
hingað frá Færeyum og fór í gær
norður á Akureyri.
Líkneski Jóns Sigurðssonar
var kon.ið upp á stall sinn í gær,
gekk það allt vel og slysalaust.
Mars botnvörpuskipið kom að
norðanámiðvikud. Hefurveriðnú um
tíma á síldar veiði fyrir Norðurlandi.
Hann hefur veitt rúm 5000 mál (c.
7500 tunnur) og selt málið fyrir
kr. 3,75 að meðaltali.
Rúðuförin. Út afsvörum Skúla
um veru sína í Rúðu er frakkneski
ræðismaðurinn farinn enn að ran-
saka málið og yfirheyra »Hotel de
la Poste«.
Þess skal getið að skeytin í þessu
máli í blaðinu í dag og útlegging
þeirra er eftir Lögrjettu.
Ask kom í morgun.
Botnia fór frá Kaupmannahöfn
í morgun.
Flaggstöng er nú verið að reisa
hjá Stjórnarráðshúsinu bak við mynd
Jóns Sigurðssonar. Það kvað taka
sig vel út að Iáta hann bera undir
Dannebrog.
Hólnum sem minnismerki J. S.
stendur á á að gjörbreyta í vor. Er
það samkvæmt ályktun nefndar þeirr-
ar sem minnisvarðamálið hafði með
höndum. Svo sem hann er nú var
hann hlaðinn án vitundar og vilja
nefndarinnar.
sept. til Leith
s|s„Douro” fer frá Kaupmanna-