Vísir


Vísir - 01.10.1911, Qupperneq 1

Vísir - 01.10.1911, Qupperneq 1
Kemurvenjulegaút kl.2 síödegis sunnud. þriðjud., miðvd., fimtud. og föstud. Sunnud. I. október 1911. Sól í hádegisstað kl. 12,18“ Háflóð kl. 11‘42 árd. Háfjara kl. 5,54“ síðd. Afmæll I dag. Frú Þóra Sigfúsdóttir. Frú Jensína Mattíasdóttir. Christophine Bjarnhjeðinson. Póstar á morgun: Ingólfur til og frá Keflavík. Hafnafjarðarpóstur kemur og fer. Stríðið. í fyrradag lögðust herskip ítala fyrir Tripolishöfn og bönnuðu þar allar samgöngur á sjó og er þar með hafiðslríð milli ítala og Tyrkja, svo sem skýrt er frá í fregnmiða Vísis, sem var festur hjer upp í bænum í gær. Tripolis er höfuð- borg í samnefndu landi á norður- strönd Afríku austur af Tunis og eiga Tyrkir landið. Borgin hefur 52 þúsund íbúa. Lengi hefur verið grunt á því góða milli ítala og Tyrkja og hafa Tyrkir litið svo á að ítalir væru í laumi að hjálpa Albönum. Englend- ingar munu þó standa hjerað baki ítölum, en þeir sjáleiká borði þar sem Tyrkir eru bandamenn Þjóð- verja. Við þettafá Tyrkir um ann- að að hugsa en að skerast í Ieik með Þjóðverjum gegn Frökkum og Englendingum. En eins og skýrtvar frá í fregn- miða Vísis í gær er stríðið milli Frakka og Englendingaannars veg- ar og Þjóðverja hinsvegar, yfirvof- andi. Orsökin e kali milli þjóð- anna og sívaxandi hernaðarbragur Þjóðverja, stórkostleg heraukning þeirra með ári hverju, er hin stór- veldin geta eigi þolað Hjá stríði verður því naumast komist fyr eða síðar. Morokko málið er að eins átylla. Að eins eftir að vita hvort nokkur aðila sjersjer hagíað drátt- ur verði á því og reyni að draga málið á langinn. Stríðið sem nú erhafiðmilli ítala og Tyrkja er »forspil« til hinna meiri tíðinda. Nú um mánaðartíma hafa stórveldin þrjú Þýskaland, Frakkland og Bretland haft vígbúnað mikinn. Hafa Frakkar hvatt samann allan sinn her og haft stórfeldar heræfing- ar daglega ogcr mikill vígbúnaður á landamærunum. Englendingar hafa hvatt heim flota sinn og eru nú við öllu búnir. Þjóð- verjar munu þó ekki hafa hvað minst- 25 blöðin frá 24. sept. kosta: Á skrifst. 50 a. Send út um landöO au.— Einst.blöð 3 a. an vígbúnað, því að samdægurs og stríðið hófst milli ítala og Tyrkja gerðu þeir sig viðbúna að fara á hverju augnabliki með herinn til Frakklands, er því búist við að Þjóð- verjar ráðist inn í Frakkland þá og þegar og hyggja þá sumir að þeir pnuni Ieggja leið sína yfir Belgiu, því það liggur beinast við. Belgía 1 er þó hlutlaust Iand en fáir treysta hlutleysinu fyrir Þjóðverjunum. Belg- ir hafa haftvígbúnað mikinn síðast- liðnar tvær vikur til að verja hlut- leysi sitt. Ensk blöð vara Frakka við að Ieggja til höfuðorustu við Þjóð- verja þegar í öndverðu. Hvetja þá að haga svo til að dráttur geti orðið á því svo Englendingar fái tóm til að setja her á land til full tingis þeim. Nú undanfarið hefur stríðið ver- ið á hvers manns vörum í Norður- álfunni, aðeins ekki hjer á Iandi nema hvað Vísir gerði grein fyrir málinu 20. f. m. eftir Daily Mail. Búist er við að Þjóðverjar kunni að draga saman flota sinn í Eystra- salt um skurðinn gegnum Suður- Jótland og reyni til að geyma hann þar. Eyrarsund er of grunt fyrir her- skip nútímans og er því engin önn- ur leið opiu fyrir Englendinga að eyðileggja þýska flotann en um Stóra beltið milli Fjóns og Sjálands. Takist Þjóðverjum að ná valdi yfir Stórabelti geta þeir heft för Englendinga inn í Eystrasalt og verndað flota sinn. Til þess að ná valdi á sundinu er nóg að ná Sprogö á sitt vald, sem er lítil ey i miðju sundinu. Má þaðan Ieggja tundurvjelum um alt sundið á skömmum tíma og hefta með öllu umferðina. Vegna Iegu Danmerkur mega Danir þakka fyrir ef þeir geta orð- ið hlutlausir af þessum ófriði frem- ur en Belgir. Sennilega stilla Englendingar svo Afgn ísuðurendaá Hotel Island l-3og5-7. Oskað að fá augl. sem tímanlegast. til að Þjóðverjum takist ekki að loka fyrir sjer sundinu þó hins veg- ar meigi búast við að þeim þyki það ekki nema til bóta að Danir dragist með inn í ófriðinn gegn Þjóðverjum. Afleiðingarnar af stríðinu verða að sjálfsögðu voðalegar. Englend- ingar inniloka Þjóðverja frá sjón- um og tekur við það fyrir alla verslun þeirra yfir sjó. Viðskifti vor við Þýskaland verða því að hætta meðan ófriðurinn stenduryfir og það er víst að vjer förum ekki varhlut af þeim afleiðingum sem stríðið hefur í för með sjer, hvern- ig svo sem þvf kann að Iykta. Jafnframt því sem ýmsar vörur hækka í verði og allir flutningar á sjó verða afar dýrir, meðfram vegna verðhækkunar á kolum, hækkavext- ir af peningum gífurlega og getur það orðið mjög tilfinnanlegt fyrir oss fslendinga sem störfum með svo miklu lánsfje. Vjer meigum því vera fegnir meðan ekki frjettist að stríðið grípi meira um sig svo Norðurálfufriðurinn sje úti. En ef það frjettist að vissa væri fyrir að friðurinn hjeldist milli 6tór- veldanna, þá væru það hin mestu tíðindi, því öll Norðurálfan trúir á stríðið og býst við því með degi hverjum, efekki í dagþáámorgun Ungllngur óskast til að passa eitt barn á þriðja ári Skjaldbreið AUsk. húsgögn fást best og ódýrust hjá Jónatan Þorsteinssyni, Laugaveg 31. MUNIÐ aö HAUST-ÚTSALAN hjá Árna Eiríkssyni stendur yfir þessa daga.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.