Vísir


Vísir - 25.10.1911, Qupperneq 1

Vísir - 25.10.1911, Qupperneq 1
Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud- þriðjud, miðvd., fimtud. og föstud. 25 blöðin frá 24. sept. kosta: Á skrifst. 50 a. Send út um landóO au.— Einst. blöð 3 a. Afgr. ísuðurendaáHotel Island l-3og5-7 Óskað að fá augl. sem tímanlegast. Nýkomið í „Liverpool” Hvítkái, Rauðkál, Cpilj Sefer,. Perur, Skailoííer, Vínber. LKUarwVflur, MelÓOUr Alt selt með afar iágu verði. Kotnið og verslið í ,,Liverpool.” Sími 43. Miðvkd. 25.oktéber 1911. Sól í hádegisstað kl. 12,12* Háflóð kl. 6,53‘ árd. og 7,13‘ síðd. Háfjara kl. 1,5‘ síðd. Afmæli í dag. Hannes S. Blöndal, bankaritari. Augnlækning ókeypis kl. 2—3. Eaddir aimennings. Ásgríms-skólinn. Skóli þessi liefur starfað í 3 vet- ur og nemenda fjöldi hefur tvo síð- ast liðna vetur verið 45—50. En í iiaust hefur aðsóknin þó verið nrest. Eru þegar komnir naer 50 nemendur og alt útlit fyrir, að ekki geti allir þeir fengið inngöngu er sækja nrunu um hann. í 14. tölubl. Suðurlands þ. á. er | drepið á hve brýn nauðsýn Reykja- vík væri á slíkum skóla og þessum. Jeg get ekki annað en tekið í sania streng. Það er áreiðanlegt, að þessf skóli er einkar haganlega sniðinn eftir þörfum þeirra manna. er þurfa að afla sjer ofurlítillar framhalds- mentunar eftir ferminguna, en vilja þó sem minnst legga í kostnað til þess. Fyrst og fremst er sköl- inn þeim hentugur vegna þess, hve stutt skólaárið er: aðeins 6 mánuð- ir. Þar að auki er eigi heimtað próf og standi sjerstaklega á, getur nem- andi fengið leyfi til að fara úr skól- anum, áður en honum er sagt upp, t. d. atvinnu vegna eða einhvers þesshátiar. Ennfremur getur hver nemandi ráðið þ;í sjálfur, hverjum námsgreinum liann tekur þá Allir sjá, hversu miklir kostir þetta eru fyrir þá menn, sem hafa tíma og fje af skornum skamti til að menta sig. Sjerstaklega er skólinn hentugur fyrir Reykvíkinga. Á und- anförnum árum hafa margir þeirra stundað nám sitt í skólanum, og þó j rekið störf sín að miklu eða öjlu | leyti. Má þá með sanni segja, að mentun sú, er þeir á þann veg ’nafa aflað sjer, hafi eigi orðið þeim sjer- Iega dýr. í Reykjavík var enginn annar skóli, er almenna mentun veit- ir, er starfar líkt og þessi. Því að óhætt er að segja, að allir hinir skólarnir þar sjeu sjcrskólar. Það ætti eigi að þurfa að hvetja unglinga, allra síst reykvíska, að sækja þenna skóla sem best. Þeir ynnu sjálfum sjer og öðrum ólíkt þarfara verk með því, en að sitja auðum höndum allan veturinn. Mein er að skóli þess', hefur en eigi mjer vitanlega, notið opinbers skyrks neinstaðar fr , eins og aðir skólar Iandsins, sem starfa á líkum grundvelli, því hann hefur þegar sýnt það í reynslunni að vera verð- , ugur þess, hann hefur eðlilega ver- ; ið rekinn með litlu fje, aðeins með j dugnaði eins einasta manns, en með auknu fje mundi hann geta unnið meira gagn. Jeg ersannfærður um það, að bæj- arstj. Rvíkur mundi ekki sjá því fje vera í glæ kastað, er hún kynni að lcggja fram til styrktar þessum skóla, með því líka að bæjarstj. annara kaupstaða landsins styrkja slíka skóla mjög ríflega, auk þess sem þeir njóta landsjóðsstyrks. Það er því vonandi að þess verði ekki langt að bíða, að við Reykvíkingar fáum, að minnsta kosti að njóta jafnrjettis við aðra kaupstaði í þessu efm. Öll sann- sýni mælir með því og þörfin er auðsæ. Gamall kennari. U m sannanir fyrir nálægð talar D. ,Östlund í SÍLÓAM við Grundarstíg næsta sunnudagskveld kl. 61/.,. Allir velkomnir. Ur bænum, Þingmálafundurinn hjer var haldinn svo sem til stóð í barnaskóla- portinu á sunnudaginn og fór vel fram. Þingmannaefnin töluðu öll og ýmsar fyrirspurnir voru bornar fram. Eina fyrirspurn hafði Jakob Möller banka aðstoðarmaður í Landsbank- anurn gert í tilefni af ummælum Jóns Ó'afssonargæslustjóra. Vegna þessarar fyrirspurnar var honum vik- ið frá starfi sínu við bankann mánu- daginn næsta Vekur þessi aðferð ahnenna undrun í bænum. Meðhverjuá að hegnafyrir—yfir- sjónir? Spyr sá ekki veit. Óafsetjanlegur. Halastjarna sú sem frá er sagt í Vísi í gær hefur ekki sjest frá jörð vorri fyr en í sumar, svo að sögur fari af. Hún er þriðja nýa halastjarnan á þessu ári. Hana fann fyrsturstjörnufræðingurinn Brook við Geneva stjörnuhúsið í Bandaríkj unum 20. júlísíðastl. Hún varþálO. flokks stjarna að Ijósmagni hingað. Næst sólu komst hún 17. sept. og var þá í 48 miljón mílna fjarlægð. í morgun mátti aftur sjá koma, en hún er að dofna halinn veit meir til hægri og hún er neðar á lofti.* ') Afstöðumyud í Vísisglugga í dag

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.