Vísir - 15.11.1911, Síða 1
Kemur venjulega út kl.2 síðdegis sunnud-
jjriðjud, niiðvd., fimtud. og föstud.
25 blöðin frá 29. okt. kosta:Áskrifst.50a. Afgr. ísuöurendaáHotelIsland t-5oj 5-7
Send út um landóO au.— Einst. blöð 3 a. Óskað að fá augl.sem Íímanlegast.
Msðvikud. 15. név. 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,23“
Háflóð kl. 1,8 árd. og kl. 1,40 síðd.
Háfjara ld. 7,20 árd. og kl. 7,52 síðd.
REGNKÁPLHR
BKSBB-BSBHBB- íSffiSS.8MMI8-— Tl'SBSffl- tSSSIffi!
Afmæll I da(j.
Helgi Teitsson, hafnsögumaður.
handa KARLMÖMNUM, KONUWi og DRESSiGJUM
Augnlækning ókrypis kl. 2—3.
iMÝKOMNAR S affas* sffóru úrvaii.
Á snorgun.
Austanpóstur fer.
Þjóðmcnjasafn 12—2.
Landskjalasafn 12—1.
raons versiun,
Aðalstræti 9.
Taísími 41.
Fundur á morgun kl. 8’/, e. m.
á vanal. stað.
Hafnarmálið til umræðu, áríðandi
að allir mæti.
Síjórnin.
í* 9C v* * L heldur D.
Östlund í
samkomuhúsinu »SÍLÓAM« við
Orundarstíg á sunnudagskveldum
kl. 61/?- Allir velkomnir.
Húsbruni í Hafnar-
firði.
í nótt brann hús Jörgen Han-
sens til kaldra kola. Vátryggt í
»Nederlandene« fyrir 11 þús. kr.
Engu varð bjargað.
Skaði á vörum ca. 6 þús. kr.,
líka vátrygðar á sama stað.
Upptök eldsins ókunn enn.
i
Frá Islendingum erlendis
Um heimflutning Bókmentafje-
lagsdeildarinnar í Kaupmannahöfn
er rætt í Politiken 2. þ. m. og látið
illa yfir. Greinarhöfundurinn spurði
mjög mikilsmetinn íslenskan vísinda-
mann um, hversu hann liti á þetta
mál.
(slendingurinn svaraði: Som en
Sejr for Ungdom og Galskab og
et Tab for Videnskaben.
Daginn eftir gat prófessor Finnur
Jónsson þess í blaðinu að hrnn
væri ekki sá er þetta hefði sagt. —
Þá er ekki á mörgum að villast.
>
Ur bænursi,
Um klukkan 8 í fyrrakveld fór
vinnupiltur hjá Brillouin fv. ræðis-
manni Frakka upp úr bænum og
heim 11 sín.
Vegur iiggur niður að húsi Brill-
ouins á Fjelagstúni frá Laugavegi og
er þar hliðer gengiðerútaf Lauga-
veginum.
Mjög var dimt um kveldið. En
er pilturinn kemur að hliðinu eru
þar tveir menn fyrir, með grímu
fyrir andliti. Annar gefur hinum
bendingu og ráðast þeir þá þegar
að honum með sveðjur í höndum.
Beinir annar sinni sveðju á brjóst
piltinum, en hann getur varnað Iag-
inu með því að berja á handlegg
hans. Hinn leggur í því sinni sveðju
á háls lionum, kom hún í háann
tvöfaldan flibba og hafði ílla í gegn-
um hann, en særði þó piltinn nokk-
urusáriá hálsinn. Þá hefursáfyrri
stungið hann allmikla stungu í mjöðm-
ina.
í þessu kemur vagn eftir Lauga-
veginum og hlaupa þá morðvargarnir
burtu.
Brillouin hefur heitið þeim 200
krónum er segði til þessara grímu-
manna og ekki er voniaust að upp
á þeim hafist eftir þeim upplýsing-
um er til eru. Eflaust hafa menn
þessir ætlað að ráðast á ræðismann-
inn, og ekki þektí myrkrinu annað
en það væri han". Piturinn er
álíka stór vexti og svo bar við að
hann varí »sport« fötumaf Brillouin.
M'én&’ám.
jarðskjálftar í
Vesturheimi.
Nóttina milli 11. og 12. f. m.
urðu stórfeldir jarðskjálftar í Suður-
Kaliforníu og Meksikoog gjöreydd-
ust þá nótt fjórir bæir en 700
menn fórust. Flóðbylgja mikil gekk
á land og reif með sjer hvað sern
fyrir varð og þar nreð fjölda manns,
sem urðu háfunum að bráð.
Margar þúsundir manna eru hús-
viltir.
Á Sikíley.
Sunnudaginn 15. f. m. urðu
miklir jarðskjálftar í grend við eld-
fjallið Etnu og fjellu mörg hús í
þorpum sem þar liggja. Um 100
menn fórust og fjöldi manna særð-
ust.
Síðustu frjettir af
stríðinu.
ítalir illa staddir.
Tyrkjum hefur nú komið mikil
hjálp frá Aröbum og er talið að
þeir hafi um 60 þúsundir manna
á að skipa.
Nú hafa Tyrkir rekið á flótta her-
deild ítala sem var við Derna eftir
tveggja daga hvíldarlausa skothríð
og fjell mikið af liði ítala og var
höndum tekið. Tyrkir náðu þar og
í mikið af skotfærum og vistum.