Vísir - 13.12.1911, Blaðsíða 1
189
8
Kemur venjuiegaút kl.2 síðdegis sunnud-
Þriðjud., miðvikud.,iimtud. og föstud.
25 blöðin frá 3. des. kosta: Áskrifst. 50 a.
Send út um landóO au,— Einst. blöð 3 a.
Afgr. í suðurendaá Hotel Island 1-3 og 5-7
Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
Miðv.d. 13. des. 1911.
Sól í hádegisstað kl. 12,22“
Háflóð kl. 11,28 árd., kl. 11,47 síðd.
Háfjara er um 6 stundum 12 min.
eftir háfíóð.
Afmæli f dag.
Frú Ásta Hermannsson
Frú Borghildur Pjetursdóttir
Frú Ingibjörg Þorláksson
Frú Marie Ellingsen.
Frk. Sophíe Helgason.
Augnlækning ókeypis kl. 2—3.
Úr bænum,
Með Botníu komu auk áöur-
talinna: Þórarinn B. Guðmundsson
kaupm. af Seyðisfirði og Árni Árna-
son bóndi frá Höfðahólum báðirtil
að setjast hjer að. Einnig kom Björn
kaupm. Guðmundsson.
Póstmeistari sendi -Ingólf* á
laugardaginn til Borgarness með
póstflutning þann, sem skipin »Kiew«
og »Botnía« komu með og fara
átti norður og vestur um land. Náði
póstum. Ella hefði póstflutningur
þessi ekki komist hjeðan fyr en í
janúarmánuði, eins og Norðlendingur
tók fram hjer í blaðinu um daginn.
Bæarstjórnarkosningar eru nú
farnar að verða umræðuefni í bæn-
um oghafa sum fjelögin kosið nefnd-
ir til þess að undirbúa þær.
Maður hvarf í Viðey í fyrra-
kveld: Páll Jónsson frá Brunnhúsum
hjer í bæ. Haldið, að hann hafi
fallið út af biyggjunni og drukkn-
að.
Jólagjafir. Prestar dómkirkjusafn-
aðarins standa fyrir söfnun gjafa
handa fátæklingum nú fyrir jólin
eins og að undanförnu. í fyrra
söfnuðust á þenna hátt um 700 kr.
í peningum og dálítið í öðrum gjöf-
um og nutu góðs af því um 180
fátæklingar bæði Dómkirkju og Frí-
kirkjusafnaða.
Þessi söfnun er einkar vel til
fundin. Jólin er helsti gleði tími
fátæklinga og þegar þau eru gleði-
snauð er hætt viö að svo verði aðrir
tímar ársins.
Gjöfum veita prestarnir móttöku
heima hjá sjer, en einnig eru sendir
ÁRNI EIRÍESSON
AUSTURSTRÆTI 6
JÖLAVÖRUR
JÖLAVÖRUR
JÖLAVÖRUR
Smekklegastar og ódýrastar í
bænum.
tilleigu (eða sölu) nú þ e gar.
Ritstj. víar á.
Stórt úrval af heimaiilbúnu Marcipan, einnig margar
tegundir af Chocolade og Konfekt, fást f
BERNHÖFTS BAKARÍI.
út Iistar til áskrifta. Margir kunna
að vilja gefa fremur gagnlegar vör-
ur en peninga og er það eins þakk-
samlega þegið.
Vísir vill mæla hið besta með
fyrirtæki þessu.
'Mtaxv aj lawðiv.
Skríða fjell austur í Mjóafirði
fimtudaginn 30. f. m. og skemdi
skóglendi, er hún hljóp yfir.
Bruni mikill varð við Lökkens-
kís namur í Orkedal við Þrándheims-
fjörð 24. f. m. Þar vinna um þús-
und manns. Margir útgangar eru
úr námunni. Fólkið var varað við
Þeir sem vit hafa
á vindlum
reykja einungis þýska vindla
þar eð ilmur og Ijúffengi
þeirra er langt fram yfir aöra
vindla.
Fást í Brauns versl.
Aðalstr. 9.
í tíma og slapp út. Veður var gott
og slökkvilið Þrándheims kom von
bráðar, samt brann þarna hátt á
annað þúsund króna virði.