Vísir - 22.12.1911, Side 1
199
18
Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud-
Þriðjud., miðvikud., iimtud. og fðstud.
25 blöðin frá 3. des. kosta:Áskrifst.50a.
Send út um landóO au.— Einst. blöð 3 a.
Afgr. í suöurendaá Hotel Island l-3og5-7.
Óskað að fá augl. sem tímanlegast.
2. í jólum
og framvegis til nýárs
verður sýnt í
Seykjavíkur Siografteater
’VÍÐ DYR FANGELSISINS’
Par eð þessi mynd er allmiklu lengri en vanaleg sýning, verð-
ur þessi breyting frá venjulegum sýningartíma.
1. sýning byrjar um kl. 6
2. — ------------71/4
3. --------------‘,V2
síðasta--------— — Q8/4
Aðra daga til nýárs hvert kveld kl. Q.
Á þessar sýningar eru seldir sjerstakir aðgöngumiðar sem
menn verða að kaupa við innganginn og kosta:
Betri sæti 50 au. Alm. sæti 25 au. Betri barna 25 au.
Alm. barna sæti 15 au.
Par eð allir aðgöngumiðarnir 2. jóladag verða til fyrirfram,
geta þeir sem vilja ná í aðgöngumiða á einhverja sjerstaka sýningu
fengið hann þegar með því að tilgreina að hverri sýningunni þeir
vilja komast, 1., 2., 3., eða síðustu, og þannig tryggt sjer aðgongu.
Föstud.22. des. 1911.
Jólaguðsþjónusta
í Sílóam við Grundarstíg jóladag-
inn kl. 6V2 síðd.
Á aðfangadag engin guðsþjón-
usta. D. Östlund.
í>eir sem vit liafa
á vindlum
reykja einungis þýska vindla
þar eð ilmur og ljúffengi
þeirra er langt fram yfir aðra
vindla.
Fást í Brauns versl.
Aðalstr. 9.
Símfrettir.
Akureyri, í dag.
/ dag fer fiskflutningaskipið
Ecco hjeðan beina leið til Reykja-
víkur og er með því EinarFinn-
bogason fiskimatsmaður alfarinn
til Reykjavíkur í þjónustu P. J.
Thorsteinsson & Co. Fjölskylda
hans farin suður áður.
Tíðin hefur verið hjer ágæt
í alt haust og er eins og
á góðu vori.
Afli er hjer enginn nú af neinu
tægi. En í haust var mjög mik-
ill sídarafli hjer á Pollinum, eftir
að síldveiðaskipin hættu. Er
álitið, að menn hafi afiað hjer í
net sín frekar tvö þúsund tunnur
í haust.
Heilsufar má heita gott hjer og
engar farsóttir á gangi.
Afmœli Skúla fógeta var hjer
hátíðlegt haldið.
í Templarahúsinu hjelt sjera
Jónas kennari langan og fróðleg-
an fyrirlestur um Skúla. Pá tal-
aði þar og Guðl. sýslumaður
um Skúla og loks var sungið
kvæði eftir Matthias Jochumsson,
bæði sóló og kór.
Síðar var samsæti allfjölment á
Hitel Akureyri.
Mikið hefur hjer safnast í minn-
ingarsjóð Skúla.
Skuggasvein á að leika hjer 2.
jan. Það er jubilár hans hjer og
var talað um að fá sr. Mattías
Jochumsson til þess að leika Sig-
urð í Dal eitt kveldið og tók hann
því ekki. fjarri hvað sem úr verður.
Leiktjöld eru til einkar góð (eftir
Lund úr Ieikritinu Gísli Súrsson)
og má því búast við góðri skemtun.
Úr bænum,
Jólapottar Hjálpræðis-
hersins
Það eru aðeins fáir dagar til jóla
og leyfi jeg mjer þess vegna að
minnast lítið eitt á jólapotta vora.
Vegna vætu og annara hindrana
hafa gjafirnar, sem komnar eru, að
eins veriö smáar, og ef vjer eigum
að fá eins mikið og síðastliðið ár,
verða hinir heiðruðu borgarar að
nota tækifærið nú, til að gefa mik-
ið eða lítid í pottana. Því vissulega
er málefnið stuðnings vert. Eins
og viö erum vön, höfum vjer há-
tíð fyrir gamalmenni þ. 29. og
fyrir börn 30. des., en þar fyrir ut-
an verður einnig þetta ár hátíð fyrir
ekkjur með börnum sínum þ. 28.
— En við verðum aö fá peninga
inn, og þið verðið að láta oss þá
í tje nú þessa dagana. Látið okk-
ur ekki fá minna í pottana en við
erum vön að fá á lista.
Gleðileg jól!
N. Edelbo, adjutant.
Guðsþjónusta í dómkirkjunni
á jóladaginn
kl. 11. Jóh. Pork.
— 2. dönskmessa(JónHelgas.
— 5. Sig. Sivertsen.
í
Frá Islendingum erlendis
Jóhann Pjetur Thorarensen
lyfsala í Sydney í Ástralíu segir
Gjallarhorn dáinn 10. maí síðastl.
81 árs að aldri. Hann var bróðir
Stefáns sýstumanns og bæarfógeta
á Akueryri. Var lyfsali þar ailmörg
ár en fór til Ástralíu 1862 og gjörð-
ist þegar Iyfsali í Sydney og grædd-
ist honum vel fje. Síðustu 5 árin
var hann blindur. Hann átti þýska
konu sem lifir hann.