Vísir - 19.03.1912, Síða 1

Vísir - 19.03.1912, Síða 1
255 p 24 Kemur venjulegaút kl.2 síðdegis sunnud- Þriðjud., miðvikud.jfimtud. og föstud. 25 blöðin frá 15. feb. kosta:Áskrifst.50a. Send út um landóO au.— Einst. blöð 3 a. Afgr. ísuðurendaáHotelIsland l-3og5-7 Óskaö að fá augl. sem tímanlegast. Þriðjud. 19. mars 1912. > . ^ Samspil Oscars Johansens var haldið í Bárubúð á sunnudagskveld- ið. Flokkur háns er þegar orðinn góðkunnur — þó ekki sje hann gam- all — og þarf ekki að lýsa honum. Nú var spilað á 10 hljóðfæri (4 horn, 4 fíolín, klarinet og fortepianó) auk trumbu. Mörg lögin voru gamlir kunningjar og því enn kærkomnari og var skemtunin hin ágætasta. Jo- hansen hefur sýnt núkinn dugnað í því að koma upp flokki þessum og mun ætla að auka hann enn. Húsið var svo fult sem frekast mátti og urðu margir frá að hverfa. Það stendur varla á Reykvíkingum þegar góð skemtun er í boði og þeir fá að vita af henni. Botnía kom í morgun og með henni fjöldi manns. Þar á meðal kaupmennitnir Bryde, H. S. Hanson og Páll Torfason. Nokkrir ausiur- farar. Þjóðverji til heilagfiskiskaupa og ntargir Vestmanneyingar. Hljómleikar þeir sem leiknir voru í Báruhúsinu sfðast- liðinn sunnudag og hlutu almenningslof, verða samkvæmt áskorun margra góðra manna endurteknir á sama stað næst- komandi fimtudagskveld. Frú Johansen, sem sökum forfalla ekki gat aðstoðað síðastl. sunnudag, aðstoðar á fimtudag. Tekið á móti pöntunum í bókaverslun ísafoldar. Grímudansleikur Ubfega s\?asU fcesV\ á\iessum vetú oerítu \ JBávuwm á ^uutvuda^ttitv. &u8vafaefo$\% spvlav aUa uóúvua evtva mov^utvstutvá. S»V\5 a5^öt\^um\5at\a \ Uma ^á afov. *M\s\sV t Ingimundur Guðmundsson búfræðiskandidat, ráðunautur Bún- aðarfjelags íslands, er andaður. Hann var á Hvanneyri síðan um nýár við fóðrunartilraunir. Fór í síðastliðinni viku upp í Lunda- reykjadal og hjelt þar fund með bændum. Fór svo heimleiðis til Hvanneyraráfimtudaginn var. Kom við í Þingnesi seinni hluta dags einn á ferð og gat þess að hann ællaði að ná í síma og hefur þá ætlað ofan að Hvítárvöllum. Leiðin liggur yfir Grímsá nokkuru ofar en hún fellur í Hvítá. í stað þess að ríða yfir ána hefur hann riðið ofan eftir henni, eftir því sem slóðin sýnir, og lent út af ísskörinni við Hvítá, því áin var auð. Logn var á og hefur glampað á ána í hálf- dimmunni svo sem ís væri. Á laug- ardaginn kom hesturinn heim að Þingnesi með hnakk og beisli. Leitað hefur verið meðfram ánni, en ekki fundist. En á ísskörinni sást, hvar hesturinn hafði brotist upp úr ánni. Ingimundur var fæddurað Syðri- Völlum í Kirkjuhvammshr., Húnavs. 17. febr. 1884. Hann var bræðr- ungur við Guðmund landlækni og alinn upp á Marðarnúpi. Hann var mesti efnismaður, þjettur á velli og þjettur í Lund, ágætlega að sjer í sinni ment. Er mikil eftirsjá í honum frá þeim störfum er hann hafði með höndum og vandfylt hans skarð hjá Búnaðarfjelaginu. Símskeyti. Leith mánud. Búist við að verkfallið vari um stund. (Strike is expected to last some time).

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.