Vísir - 05.11.1913, Blaðsíða 2
V í S I R
f
| gjg ■
Háflóð kl. 10,25’ ogkl. 11 síðd.
Á morgun
Afmœli.
Frú Hansína Eiríksdóttir.
Benedikt Þórarinsson, kaupniaður.
Helgi jósefsson, trjesmiður.
J. Lange, málari.
Ólafur Eiríksson, söðlasm
Pjetur Hjaltesteð, úrsmiður.
Póstáœtlun:
Ingólfur fer til Borgarness.
Vestan- og Norðanpóstur fara.
veldisstjórnarinnar. Hófst það
með því, að lögreglan braust
inn á leynifund uppreistarmanna
á útsaums-vinnustofu við borgar-
fangelsið í Limoeiro og tók alla
fundarmenn fasta eftir harðan
bardaga. Uppreistarmenn voru lið-
margir þótt dreift færu, voru
margir þeirra í lögreglumanna-
búningi. Rjeðu þeir fyrst á lög'
reglustöðvarnar og ætluðu að
taka þær með bragði þessu. Þó
misheppnaðist það, er 200 her-
manna komu til. Var barist með
skammbyssum og hermannabyss-
um, og fjellu margir og særð-
ust.
Lögreglan er í ákafa að leita
foringja konungssinna, fyrrum
hermálaráðherfa, Joao Azevedo
Coutinho, er mælt er að komist
hafi á laun inn í Lissabon rjett
á undan upphlaupinu.
Einn af foringjum konungs-
sinna ætlaði að laumast inn í
Lissabon í hálmhassi í vagni.
En hervarðmaður einn stakk í
það sverði sínu til þess að ganga
úr skugga um hvort nokkur væri
þar; var þá blóð á sverðinu og
maðurinn fannst í hlassinu rek-
inn í gegn. Ekki er nafns þessa
uppreistarforingja getið.
Zanzibar.
Orðrómur hefur borist um, að
Bretar muni innan skamms skifta
við Þjóðverja aftur á Zanzibar
og Iandsvæðum nokkrum eða
einkarjettindum annarstaðar í
Afríku. — Zanzibar er á austur-
strönd þýsku landeignanna í
Afríku. Bretar fengu landið við
bresk-þýska samninginn í júní
1890 í skiftum fyrir eyna Helgo-
land, sem þá þótti lítils um vert, en
nú er þar orðin voðaleg og ramm-
ger flotastöð, er ver hverjum
fjandaflokki Elbuósa.
JárnbrautarsEys í Vestur-
heimi.
24 menrrbiðu bana, 100
manns meiddust.
Mánudag 20. f. m. bilaði brú
undan járnbrautarvagni nálægt
Buckatunna í Mississippi; á vagn-
inum voru hermenn er fara áttu
til Meridian í Mississippi. Fór
vagninn út af sporinu við bil-
unina og steyptist í fljótið.
Tuttugu og fjórir hermenn fór-
ust en 100 meiddust. Margir
þeirra er dóu, drukknuðu í vögn-
unum er á hvolf fóru, en fyrir
ágætis framgöngu herliðs er var
til taks á staðnum tókst að
bjarga þeim er meiddust frá
dauða, þótt tvísýnt sje um 1/fþeirra
margra.
HPSf S cr> ' gíuggunum á húðinní í Ausiurstræti 14 næst
I 11 SVIilS Hoíei Reykjavík erú nú ýmsar vörur, sem fást í
Vefnaefarvöruverslun TH. TH
HrossMr
(tagl- og faxhár) er keypt afar-
háu verði i Þingholtsstræti 25
kl. 9—10 árd.
tímanlega.
ÓskaSIegt mönnum og húsdýrum.
Söluskrifstofa: Ny Östergade 2.
Köbenhavn K.
BS8T E LD U R!
Vátryggið í „General".
Umboðsmaður
Sig. Thoroddsen.
Fríkirkjuveg 3. — Heima 3—5.
Sími 227.
ötvuojuuav-
eru smíðaðir fljótt og
vel hjá
Bírni Simonarsyni
gullsmið, Vallarstr. 4.
Kaffið í Nýhöfn er indælt og ágætt,
ódýrt og bragðgott og Ijúffengt og
hreint,
malað og brennt, það er fyrirtaks
fágætt,—
fá þjer eitt pund, og þú iðrast þess
seint.
K E N N S L A
Sigurjón Jónsson
kennir
Ensku og Commerctal
correspondance.
Qarðastræti 4.
- ^r-
|>k nnsla í þýsku
en .u og dönsku m. fl.
ífB fæst hjá cand. Halldóri Jónas-
L, syni, Vonarstræti 12, II. lofti.
Hittist best kl. 8—9 síðd.
Sími 278. {,
innl.endar og erlendar, PAPPÍR og RITFÖNG
kaupa menn í
BÓKAVERSLUN SIGFÚSAR EYMUNDSSONAR.
l.ækjargötu 2.
Ótappaferð eimskipsins
»ÍTeptúri>
■f-- Frh.
Þannig liðu þrír dagar; við og,
við var reynt að skjóta á rándýrin
er þau komu nálægt farklefanum,
en skammbyssurnar drógu þó ekld
og skipverjar hæfðu ekki dýrin,
svo það kom fyrií ekki, Svarf nú
hungur og þorsti svo að skipverjum,
að þeir rjeðu enn einu sinni af að
reyna að vinna bug á villidýrunum
eða að minnsta kosti hrekja þau
svo Iangt fram á skipið, að
þeir kæmust að matarforða [ ínum.
Þeir hjuggu með öxum ga á gólf-
ið á farrýminu og komust þannig
niður í lestarrúmið og þaðan gegnum
vjelarúmið fram í skipið. Fóru nú
einnig 3 dýraverðirniraf stað, vopn-
aðir af nýu með skammbyssum og
blysum. Þeir sem eftir urðu, biðu
í fullan stundarfjórðung í skelf-
legri angist og ótta um úr-
slitin. Þá kváðu við skot og
skelfingaróp og náfölir af ótta komu
tveir verðirnir þjótandi aftur í far-
rýmið upp um gatið. Þann þriðja
hafði tígrisdýrið náð í og rifið í
sig. Eftir það ríktu villidýrin ekki
aðeins uppi á framþiljum, heldur
og niðri undir þeim frammi í skip-
inu, sem hafði opnasf leið, að lík-
indum við þessa tilraun, um fram-
Iúkugatið.
Enn Ieið einn dagur. Aðfaranótt
hins 5. dags urðu skipverjar varir
við brunalykt, og að morgni hins
6. dags fóru skipverjar að sjá reyk
stíga upp úr skipinu framanverðu.
Blys það, er maðurinn sem tígrís-
dýrið reif í sig, rnissti, hafði kveikt í
skipinu.
Á hádegi 6. daginn var reykur-
inn orðinn svo þykkur, að rándýrin
hjeldast ekki við og Ieituðu á aftur-
þiljur, þar sem enn var Iffvænt loft
fyrir reykjarsvælu. Skipverjar voru
nú mjög aðframkomnir af hungri
og hófu þeir skothríð mikla úr
skammbyssunum á villidýrin, en lít-
inn árangur bar sú atlaga. Þó
vannst það á með tímanum, að rán-
dýrin flýðu af skipinu út á ísjakann
og notuðu þau aftursigluna, er fall-
in var skáhallt út af borðstokknum
á ísinn, fyrir brú. Þó var það ekki
fyrri en að morgni hins 7. dags
' að skipverjar hættu sjer út úr fylgsni
sínu.
Nú hafði eldurinn gripið svo
um sig, að stafn skipsins og fram-
þiljur stóðu í Ijósum loga. Öskur
ýlfur og kvein dýranna, er lokuð
voru inni í búrum sínum, voru ægi-
leg og átakakanlegri en svo að með
orðum verði lýst. En enginn vegur
vegur var til þess að bjarga þeirn
því sömu forlögum virtist öll skips-
höfnin ofurseld. Á skipinu beið
hennar að brenna til bana, en á
íshum hlaut hún að verða villidýra
bráð, er biðu þar í nánd með gap-
andi gini, og þótt þau yrðu burtu
i fæld í sjóinn, þá var hungrið og
helkuldinn þar banvænn.
Þá um miðjan dag, sást í vestri
yst við sjónbaug afarmikið eimskip,
er breytt hafði stefnu, að því er
síðar lcorn í ljós, þegar skipverjar
á því sáu reykjarstrókinn upp úr
«-Neptún« og vildu vita hvað á
seyði væri.
Þar kom hjálpin á síðustu stundu.
»Canada«, amerískt skrúfueimskip,
tók skipverja af »Neptún« hálfdauða
úr hungri og flufti þá til New-
York, En »Neptún« Iogandi og
villidýrin öll ljetu þeir eiga sig.
Viku síðar rnætti breska herskipið
»Cumberland« hafísjakanum; voru
þá tvö dýrin lifandi á honum, Ijón
og tígrisdýr, og orðín æði mögur
og ötnurleg útlits. Þau hafa að
öllum líkindum drepið og rifið í sig
fjelaga sína aðra á ísnum og hald-
ið þannig í sjer Iífinu. Nú voru
bæði þessi rándýr orðin svo mátt1
vana, að þau urðu tekin hættulaust
og voru flutt út á skipið.
REYKTUR
LAX
er enn til (og nú á förum) hjá
Nic. Bjarnason.
Niðursoðnir
ávextir
Kex — krydd
rnatarsalt,
búðingsduft
- o. fl. fæst hjá
JÍk. J&jantasotu
Fóðurmjöl
sjerstaklega gott
fæst hjá
Jíic. ^jatttasott.