Alþýðublaðið - 30.04.1920, Page 3

Alþýðublaðið - 30.04.1920, Page 3
Reimleikinn á Kvíabekk. Niðurl. Fyrirburð þennan sáu sex manns i sarna sinn þvi að alt fólkið var vakandi meðan þesiu fó' fram. Lý-iti það því svo, að þetta væri karlmaður með kodda á herðum sé , eða eitthvað því líkt. Næstu nótt var ljós latið lifa í frambrð- stofu, og gerðust engin tíðindi meðan þess n; ut við, en þegar undir dögun leið var Ijósið slökt og kom hin sama vera þá undir eins að rúmi tclpnanna þriggja og sótti nú fast á að ná fötum til sin. Var þá brugðið upp Ijósi og sveif svipurinn burt við það, en stúlkur tvær, er voru I fram- baðstofu þessa sömu nótt, sáu greinilega karlmann ganga um gó'lf um nóttina f suðurenda bað stofunnar. Þar lifði ekki Ijós, en hurðin á skilrúminu stóð opin, svo að vel mátti sjá um alla bað- stofuna af þeim, er gengt dyrum voru, því að tunglskin var á. Þnðju nóttina var ljós látið lifa fram undir dögun, og varð þá einskis vart. Vaknaði nú fólk alt og ræddi um, hvort nú mundi ölium fyrirbrigðum lokið. Fer Gunnlaugur sonur minn þá á fæt- ur og breiðir fyrir alla glugga, svo að hvergi kemst birta að, slekkur síðan Ijósið og legst fyrir framan telpurnar þrjir, er vofa þessi sótti mest að. Er nú alt hljótt um tíma og verður einskis vart. Breytir Gunnl. þá til, fer upp fyrir telpurnar og liggur þar. En um leið finnur hann að farið er að kippa f rúmfótin, fyrst með hægð, en smám saman sigið á, þar til að því kemur, að Gunnl. þykir ekki mega við svo búið standa, Tekur hánn nú handfylli sinni f ábreiðuna, sem togað var f, og segir: »Taktu nú á, helvízk- ur, ef þú getur eitthvaðU Ea nú brá svo við, að nú var svo kná- lega tekið á, að ábreiðan hentist fram á gólf, en Gunnl. fylgdi fast eftir og bjóst að taka ófögnuð þennan fangbrögðum, ef unt væri. En hvorki fann hann né sá þá neitt framar og fór til rúms síns við svo búið. Vill nú Kristján — sá er áður er getið — gera aðra tilraun, og hefir sömu aðferð sem Gunnl. bróðir hans. Legst hann ALÞYÐUBLAÐIÐ fyrst fyrir framan stúlkurnar og verður einskis var, en færir sig þá upp fyrir fast að þli Finnur hann þá þegar, að farið er að toga f ábreiðuna, fyrst ofurlaust, en síðan æ þéttara, þar til svo er komið, að Kristjáni sýnist tví- sýnt hvor hafa muni. Kallar hann þá upp og segir 1 »Láttu nú tepp- ið mitt vera, lagsmaðurlc og var þá óðara slept. — Enn var til- raun gerð og telpurnar þrjár færð- ar í túm Gunnl. og Kustjáns, en þeir lögðust aftur í þeirra rúm. Kom þá vófa þessi óðara til stúlknanua og sótti nú hvað fast- ast að ná fötum ofan af þeim Var þá brugðið upp Ijósi, en um leið varð alt kyrt og hljótt. Ein- kennilegast var það, að f þetta sinn hafði enginn séð við hvað verið var að tuskast allan þennan tíma. Fjórðu nóttina lifði enn ljós, og vildi eg sjálfur ganga úr skugga um við hve ramman væri að eiga, því að aldrei hafði neitt sótt að mér í vöku. Undir morgun slekk eg ljósið og legst fyrir ofan stúlk- urnar, cn næstum uatíir eins verð eg hins sama var og aðrir. Toga eg svo litla stund á móti, en finn að hér er ekki um neinn hugar- burð að ræða, skipa því að kveikja Ijós, og var þá þessum leik Iokið. Eftir þetta fór að smádraga úr ófögnuði þessum, en þó gerði svipur þessi eitthvað lítilsháttar vart við sig í sex nætur enn. Hafði reimleikinn þá varað tíu nætur alls, en síðan hefir einskis orðið vart. Tel eg því víst, að reimleikinn á Kvíabekk sé nú all- ur úr sögunni. Þess skal getið, að aldrei kom neitt fyrir á öðrum tíma sólar- hrings en kl. 6—7 að morgninum, að því undanskildu, er Kristján sá i hlöðunnit. Fyrirbrigði þessi eru mjög ein- kennileg, og alveg hulið, af hverju þau stafa. Geta þau á engan hátt stafað af manna voldum beinlínis, hvort sem miðilseðli einhvers heimamanns getur orsakað þau eða ekki. Og tæplega er hægt að mótmæla svo glöggri skýrslu, sem þessari, enda engin ástæða til þess að rengja Rögnvald um það, að hann skýri svo rétt frá, sem hann getur frekast. 8 frá Damnörka. Khöfn 28. aprfl. Konungur mun hið bráðasta ráðgast við flokksforingjana um skipun nýrrar stjórnar. Er talið víst, að niyndað v.rði fullkomlega vinstrimanna ráðuneyti og aðj. C. Christensen verði forsætisraðherra. Fyrsta atkvæðabelti Suður-Jót- lands gengur til Daumerkur 5. maí. Ekki Knút. Þó þeir krónum ausi út og í menn speki troði, mun eg aldrei kjósa Knút hvað sem er í boði. Trúmaður. Aígreiðsla blaðsins er í Alþýðuhúsinu við Iogólfsstræti og Hverfisgötu. Síml Ö88. Auglýsingum sé skilað þangað eða í Gutenberg í sfðasta lagi kl. 10, þann dag, sem þær eiga að koma í blaðið. Mopgunkjólar, góðirog ódýrir, fást á Hverfisgötu 40 í kjallaranum. íslenzkt smjör mjög gott á kr. 3,60 7* kg* í verzlun Hannesar Olafssonar Grettisgötu 1. — Sími 871. Sá sem vill vera viss um að verka- lýðurinn Iesi auglýsingar sínar, verður að auglýsa í Alþýðublað- inu, sem er eign verkalýðsins og gefið út af honum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.