Vísir - 08.07.1914, Side 2
V I S I K
VÍSI R
Stœ/sía blað á Lsltnska tungu.
Argangurinn (400—5C0 blöð) kostar
erlendis V;. 9 00 eða 21/, dollars, innan-
kndsl r.7 00 Ársfj.kr. 1,75,mán kr.0,60.
Skrifstofa og afgreiðslustofa í Austur-
s'ræti 14 opin kl. 8 árd. til kl. 9 síðd.
Sími 400. Pósthólf A. 26.
Pitsijóri Einar Gunnarsson
veniu'ega til viötals kl. 5—7.
G-EELA-
EAmÓKSTA-
STOFA
Gísla Guðmundssonar
Lækjargötu 14B (uppi) lofti, er
venjulega opin 11-3 virka daga.
íslensk mál í dönskum
blöðum.
Kveldútgáfa >National Tid.« 16.
f. m. flytur brjef frá Stokkhólmi
eftir einhvern Anders Diemer,
sem segist vera norrænn málfræð-
ingur og Suður-Jóti. Brjefið er um
bók A. Engströms: Át Hácklefjalb
að nafninu til, en í pví eru mest
ónot og illindi í garð B j a r n a
f r á V o g i og Ragnars Lundborgs,
til Bjarna fyrir æsingar í Svíþjóð
gegn Dönum, en hæðist að Lund-
borg sem >svörnum verjanda allra
putaríkja«. Bók Engströms er hrós-
að, þótt ekki skilji höf, hversvegna
Engström telji »fullkom!ega rjett
og eðlilegt* að íslendingar sjeu
andhverfir Dönum (>Reaktionen paa •
Island mod Danmark*). Yfirleitt er
brjef þetta nauða ómerkilegt.
Fyrirlestur um ísland hef-
ur Guðm. Kamban skáld
haldið í >Friðriksborgar lýöháskóla*.
Eftir ágripi af fyririestrinum í dönsku
bíaði »Thisteds Amtsavis« 12. f. m.
virðist hann hafa verið skemmtileg-
ur og fróðlegur, — tæplega mun
þó rjett að á íslenskum bóndabýlum |
almennt sjeu 40—50 kýr, 30—40
hestar og 600—700 fjár, eins og
blaðið hermir eftir honum.
í »Aarhus Amtstidende* 20. f. m.
er grein um íslenskar kýr*
Rætt hefur verið um í Danmörku
að fá kýr hjeðan. Einhver M o r t e n-
sen í Melby hefur lýst yfir
því í blaði, að í Danmörku hafi
verið ein einasta íslensk belja, sem
nú sje dauö, sem sje í dýragarðin-
um. Kvaðst hann hafa sjeð kusu,
en hvort hún hafi mjólkað, viti hann
ekki og yfirleitt telur hann vafasamt
að nokkurt gagn hafi verið af henni
og telur viðsjárvert að flytja inn í
landið slík »húsdýrt. Út af þessu
tekur íslendingur einhver ónafn-
greindur til máls í blaðinu og hæl-
ir íslenskum kúm á hvert reipi.
Smávegis frjettapistla frá íslandi,
efnahagsreikning íslandsbanka o. fl.
flytja ýms dönsk blöð, er óþarfi er
að geta nánar.
1ÓOOO ára fornmenjar.
Við gröft í flóðsýki nokkru þurru
viö ána N í 1 á Eyptalandi, hafa
nýlega fundist ýms veiðiáhöld stein-
aldarmanna, kastkylfur og hnífar,
afarstórir, haglega gerðir með smá-
gerðri"sagtenntri egg. Telja vísinda-
menn fornmenjar þessar vera 10
Cashmire Sjölirs
Fallegu eru aFtur komin til
Th Th , Ingólfshvoli.
tatvdi
Borgarnesi 4. júní 1914.
Sorgarathöfn til minningar um
Teit. heit. Jónsson og börn hans
tvö, Jón og Þórunni, er drukknuðu
í Borgarfirði 9. apríl þ. á., var
haldin hjer í dag. — Atliöfnin var
í barnaskólahúsinu, er tjaldað var
svörtH og Ijósum prýtt, og hófst
kl. 6 síðdegis með aðGuðm. Jóns-
son organleikari spilaði »Dauði Ásu«
eftir Grieg, þvínæst söng hr. hjer-
aðslæknir Þ. Pálsson kvæði það er
hjer fer á eftir undir laginu »Rósin«
eftir Á. Th. og er ekki ofsagt að
margur klökknaði undir þeim söng.
Þá hjelt presturinn okkar stutta, en
v e 1 s a g ð a ræðu og að því búnu
sungu 5 karlmenn: »Bráttlíður lífs
á daginn*. — Loks spilaði organ-
leikarinn sorgarl. eftir Fr. Chopin
og var þar með athöfninni lokiö,
— Búðum var lokað og vinnu hætt
kl. 5. —
Fánar voru dregnir í hálfa stöng;
þar af 3 bláhvítir og einn meö
* danska litnum. —
30 — 34.
I Teitur Jónsson. Jón Teitsson.
Þórunn Teitsdóttir.
Drukknuðu í Borgarfirði 9. ápríl 1914.
Kaupakona
mjög dugleg óskast til Raufar-
hafnar. Hátt kaup í boði.
Afgr. v. á.
Ágætt
maísmiöl
fæst í
Kaupangi
Nýkomið-.
þvottastellin (Servantar) eftir-
spurðu
Speglar, stórt úrval
Leirvörur
Búsáhöld email.
Enskar húfur, hárburstar með spegli
Ostar
Matvæli niðursoðin
Maís og maísmjöl m. m.
Ódýrust kaup í versl.
Jóns Árnasonar,
Vesturgötu 39.
Lag Rósin, eítir Arna Thorsteinsson.
b brimhörpum glymrasta hljómi’ í helþögn sló
að hálfsungnu Ijóði.
Og andi guðs sveif yfir djúpsins dular-ró,
sem draumblær í hljóði. m
Lím feðginin sofandi’ að báru-barmi Ijósum
hann bjó, eins og móðir um jóð sín á rósum.
Sjá, ljós leið um sæ af sól — guðs páska-sól!
En mannbaldur göfugan syrgir döpur sveit,
þann sæmdarmann snjallan;
í blíösöngvum minninga bjart er um hann T e i t,
um Borgarfjörð allan:
Það listfenga prúðmennið ítra, ósíngjarna
og ástríka föðurinn hugþekkra barna
hljóð kveður nú öld — viö óm af anguhrljóm’.
Um sonin hans hugljúfa, hvers manns augastein,
ber harmhljóð vor tunga:
Sem glófögur sóldögg var sál hans björt og hrein,
in saklausa’ og unga.
Að manndómi' af samöldrum sínum flestum bar hann,
að samvistum yndið og Ijós okkar var hann.
Æ, ljúf dó ein von vors lands — við látið hans!
Með drengskap hann ávann sjer ást og viröing þá,
er örfáir hljóta.
Hve sárt er að lengur á meðal vor ei má
hans manngildis njóta!
Með Ijúfmennsku’ og kaarleika hærra þorp vort hóf hann,
með hagsýni ljósvef þess fratntíðar óf hann, —
dáð, — karlmennsku’ og dáð hann bar, og rausnarráð.
Við sólarlag angurljóö sár um dána mey
við sævarströnd hljóma,
þar tárdrifin minninga glitfríð gleym-mjer-ei
und glóheiði ljóma:
Hún átti þann kvenlega yndisþokka blæinn,
sem árroða varpaöi’ og ljósi’ yfir bæinn.
Ó, nú er hún nár, svo ung — svo góð og ung!
Guð blessi’ yður, feðginin, liðin Ijúf og kær
til Ijósanna sala!
En harmkveðju flytji’ yður blíöur sumarblær
ura bládjúpið svala.
Og ástfólgnar þakkir frá hjeraðsbúa hjörtum
nú hljóma til yðar í ljósvaka björtum.
Guð blessi’ ykkur öll, — far vel — ó, farið vel!
Guðm. Guðmundsson.
þús. ára gamlar, eftir’þykkt og fjölda
jarðlaganna að dæma, er ofan á
þessu voru. Svipaðar menjar þess-
ara frumbyggja veraldar hafa áöur
fundist þar, en trauöla svo vel
gerðar.
Svalbarða-málið.
FuIItrúafundur stórveldanna til að
ræöa og skipa um eignar- og yfirráð
á Svalbarða (Spitzbergen) hófst í
Kristjaníu 16. f. m. Þykir
Norðmönnum það stór viðburður í
utanríkispólitík þeirra og sæmd mikil
að alþjóðasamkoma þessi er haldin
hjá þeim.
Frá Þýskalandi eru 2 full-
trúar, Bandaríkjunum í Vest-
urheimi 2, Danmörku í,
Frakklandi 1, Bretlandi
2, Noregi 3, Hollandi 1,
Rússlandi 4, Svíþjóð 4.
Eru það allt merkir menn og mikils
virtir, sem nærri má geta. Forseti
fundarins var valinn H a g e r u p
Norðmanna-ráðherra. Áður hafa
f fuadir meö fulltrúum Norðmanna,
Rússa og Svía o. fl. verið haldnir
um þetta »land fyrir utan lög og
rjett« á sama stað 1910 eg 1912.
7 stúlkur
get fangið atvinnu í sumar á Siglu-
firði.
Lysthafendur snúi sjer til
O. J. HÁVSTEEN
umboðssala.
Skrlfstofa
Elmsklpafjelags fslands,
Áusturstræti 7.
Opin kl. 5—7. Talsími 409.