Vísir - 11.07.1914, Blaðsíða 1
m<á
\8
Besta
verslunin i bsenum hefur síma
%\\
Eerðalös;
og sumatdvalir
í sveit takast best ef menn
nesta sig í
Nýhöfn.
Laugard. II. júlf 1914.
Háflóðkl. 7,51’ árd.og 8,8’ síðd.
Á m o r g u n
Afmæli:
Frú Guðrún Lúðvígsdóttir.
Frú Kristín Aradóttir.
Frú Ragnheiður Guðmundsdóltir.
Frú Þorbjörg Olgeirsdóttir.
Sigrún Eiríksdóttir verslunarmær.
Einar Sigurðsson prentari.
Jakob Möller bankaritari.
Kristinn Gíslason trjesmiður.
P ó s t á æ 11 u n :
Ingólfur kemur frá Borgarnesi.'
Botnia kemur norðan um land
frá útlöndum.
BIO
Reykjavíkur
Biograph Theater
Sýning samkvæmt
götuauglýsingum.
Olg-eir FriðgeirsRon
samgöngumálaráðuaipBtur
Miðstræti io.
Talsími 465.
Venjulega heima 9%—10V2
f. m. 4—5 e. m.
Úr bænum.
Victoria Louise, skemmtiferða-
skipið þýska, kemur hingað í nótt
og verður hjer á morgun, en fer
annað kveld. Með því eru að þessu
sinni freklega 400 manns. Hjeðan
fer skipið norður um Iand til Akur-
eyrar, dvelur þar nokkra klukkutíma
og heldur síðan til Spitzbergen.
'Jxí
Frumvarp
tif Iaga um breyting á lögum nr.
8ö, 6. apr. 1898, um bann gegn
botnvörpuveiðum.
Flutningsmaður: Kristinn Daníels-
son.
Sekt sú, sem ákveðin «r í 2. gr.
í lögum nr. 8, 6. apr. 1898, um
bann gegn bolnvörpuveiðum, skal í
staðlOOO—4000 kr.vera 2000—0000
kr. og í stað 200—2000 kr. í 3.
gr. sömu laga &kal koma 400—3000
kr.
Frumvarp
til laga um breyting á lögum um
Vegi nr. 57, 22. nóv. 1907.
Flutningsmaður: Bjarni Jóns-
son frá Vogi.
1. gr.
í 2. gr. laga um vegi 22. nóv.
l907 skal bætt flutningabraut frá
Búðardal í Hvammsfirði tíl Borð-
eyrar í Hrútafirði.
í smærri og slærri ferðalög siserst Og besi úrva! í verslun
^xtvats Jlmasonav
Sfmi 49.
Einar Hjaltested
söngvari,
efnir iil hljómlsika, með aðstoð
frú H. Brynjólfsson
f Goodiemplara-húsinu á laugardaginn 11. júlí kl. 9
síðd.
Aðgöngumiðar á 1 kr.50 og I kr. fási í Bókaversl-
un Isafoldar og hjá P. Hjaliesied Lvg. 20.
Fallegusí og best Karlmanns-
föt fást á Laugaveg I.
Jön Hallgrimsson.
Frumvarp
til laga um breytirrg á lögum um
friðun fugla og eggja nr. 59, 10.
nóv. 1913.
Flutningsmaður: Bjarni Jónsson
frá Vogi.
1. gT.
Ernir skulu taldir í 2. gr. laga
um friðun fugla og eggja 10. nóv.
1913.
2. gr.
Stafliður e. í 3. gr. sömu Iaga
er numinn úr lögum.
Frumvarp
til laga um heimild fyrir stjórnar-
ráðið til þess að veita mönnum
rjett til þess að vera dómtúlkar og
skjalþýðendur.
Flutningsmaður: Bjarni Jónsson
frá Vogi.
1- gr.
Stjórnarráðinu er heimilt að veita
mönnum rjett til aö vera dómtúlkar
og skjalþýðendur.
2. gr.
Ef maöur vill öölast þann rjett,
sem um getur f 1, gr., skal hannhafa
sannað fyrir stjórnarráðinu, að hann
hafi næga þekkingu á þeirri tungu,
sem hann vill öðlast rjett til að
túlka fyrir dómi eða þýða skjöl úr
og á. Heimilt er stjórnarráðinu að
skipa prófnefnd og ákveða henni
kaup.
3. gr.
Nú hefur maður öðlast rjett þann,
er getur í 1. gr., og skal hann þá
skyldur að vera til að vera túlkur
á dómþingum, þýða skjöl fyrir menn
og stofnanir og vinna eið að því,
að Ijósta eigi upp leyndarmálum
nje halla máli í þýðingum sínum.
4. gr.
Stjórnarráðið semur og setur
verðskráyfir verk dómtúlka og skjala-
þýðenda.
(Framhald á annari oe öftustu síðu.)
*yxí úUötvdum.
Pantanir um bifreiðar að
etns gildar á skrifstof-
unni.
Knud Rasmussen
norðurfarinn danski, hefur hafn-
að boði O 1 s e n s kvikmynda-
fjelagsstjóra um að fara í Norð-
urheimskautsför, er O 1 s e n sló
upp á að kosta, svo sennilega
verður hætt við þann leiðangur.
Erfingjar Leo Tolstoy’s
eru í málaferlum sín á milli.
Ekkja hans og dóttir rífast um
það fyrir dómstólum hvor þeirra
eigi útgáfurjett að eftirlátnum rit-
um skáldsins, er geymd eru í
safni í Moskwa. Dómsmálaráð-
herra Rússa hefur nú úrskurðað,
að greifaekkjunni beri rjetturinn
og hefur hann skorað á stjórn
safnsins að afhenda frúnni hand-
ritin. Með þeim mæðgum er
fullur fjandskapur út af þessu.
Ljóra jeta húsbónda sinn.
í Chicago rifu 6 Ijón í sig hús-
bónda sinn og temjara, D i e t h r i c k s
að nafni, meðan á leikhússýningu
stóð, þar sem hann var að láta þau
sýna auðsveipni sína. Þau voru nú
ekki betur innrætt en það, að þau átu
karlinn upp til agna í augsýn allra
áhorfenda. í gauraganginum, er
varð við þetta, slapp eitt þeirra út
úr búrinu, en samt tókst að reka
það inn aftur án þess það næði í
fleiri bita.
□anskur yflrdómslög-
maður skaut sig
í gistihúsi í Árósum 20. f. m.
Hann hjet P o u 1 O 1 r i k frá
Vjebjörgum, kvæntur og átti 2
börn, rúmlega hálfþrítugur að
aldri. Geðveiki er í ætt hans
og grunur á að hann hafi tekið til
þessa örþrifaráðs í skyndilegu geð-
veikiskasti.
Hafís í Atlantshafi.
Nærri lá að eimskipið i s 1 e o f
M u 11 rækist á hafís í myrkri á
Atlantshafi í f. m. B e r g m á 1
f r á í s n u m bjargaði skipinu,
Skömrmi eftir miðnætti 16. f. m.
ljet skipstjóri þeyta þokulúður sínn,
— þóttist hann þá heyra eimskip
svara. Litlu síðar þeytti hann aftur
lúðurinn, kom þá svarið rjett strax
frá stjórborða. Nú ljet hann eim-
pípuna gjalla, því var svarað með
sama hljóði og þóttist hann þá vila,
að hann væri í nánd við hafísjaka er
bergmálaði hljóðið. Stýrði hann
suöur á bóginn í breytta stefnu í
mesta skyndi og slapp við árekst-
ur.
E'ýkomið
mikið úrvai af striga-
skóm á eldri ogyngri.
Karlm. og kvenna stíg-
vjel og skór í afar
miklu úrvalí.
Ennfremur verk-
manna stígvjel og
legghlífar.
Verð oggæði alþekkt.
S*4 &WMmsso<a
Austurstræti 3.