Vísir - 25.07.1914, Page 1
Laugard. 25. júlí 1914.
Háfl. kl. 6,54‘ árd. og kl. 7,13'síðd.
A f m æ 1 i:
Frú Guðrún Pjetursdóttir.
F.ggert Briem, skrifstofustjóri.
Helgi Zoega, kaupmaður.
Júlíus Árnason, verslunarm.
Sig. Sigurðsson. dbrm.
Tómas Tómasson, slátrari.
Á MORGUN:
A f m æ 1 i:
Jón Brynjólfsson, kaupmaður.
Rich. Braun, kaupmaður.
Póstaáætlun:
Ingólfur fer til Borgarness.
gblol bTogra'ph"
THEATER.
Sími 475.
IFjöruga
greifadóttirin.
1 Fyrirtaki þýskur gamanleikur í
Iþáttum.
Aðalhlutverkiö Jeikur besta kvik-
Ímyndaleikkona Þýskalands
Henny Porten.
Aukamynd:
Basso undra api.
Hlægilegt.
Þetta eru myndir, sem öllumii
mun þykja gaman að.
I
SÍ!S!?Í**,ÍÍ venjulega tilbúnar
á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og
M gæði undir dómi almennings. —
icasB Sími 93. — Helgi Helgason.
U R BÆNUM
Brjefspjald af austfirskum
sagnaþul Jóhannesi Árnasyni hef-
ur Rikarður Jónsson mynd-
höggvari látið gjöra eftir einni af
sínum góðu teiknimyndum er
hann gjörði á ferð sinni um æsku-
stöðvar sínar í fyrra sumar.
Jóhannes sá, er myndin er af,
er sagður einkennilegur karl og
margar smásögur eftir honum
hafðar. Ríkarður hefur í hyggju
að gefa út fleiri brjefspjöld afís-
lenskum andlitum, sem hann hef-
ur teiknað og hafa sjerstök ein-
kenni. Er þetta hið fyrsta. Fæst
á afgr. Vísis.
Ceres fór í gærkveldi til Vest-
urlandsins. Meðal farþega: þorv.
próf. Jónsson, frú Kristín þor-
valdsdóttir, Brynj. stud. Kjartanss.
öll frá ísafirði. Sjera Sig. Jenson
TILBOÐ.
Óskað er eftir tilboði á uppskipun á kolum.
það er tilskilið, að ekki sje skipað upp minnu en 200 tonn-
um á dag. Tilboðin skulu komin mánudagskvöld kl. 6, þann
27. þ. m.
Uppl. þessu viðvíkjandi gefur
SassVóB
frá Flatey, þorst. Gislason ritstj.
o. fl.
Sterling fór til útlenda í gær-
kveldi. Meðal farþega: H. Erkes
frá Köln með frú og dóttur,
Edelbo stabskapt. með konu og
börn, og margir fleiri útlendingar.
Sr. Jóhann Þorkelsson dóm-
kirkjuprestur hefur dvalið rúma viku
á Þingvöllum sjer til upplyftingar.
Kom þaðan í gærkveldi.
Messur í Fríkirkjunni á morgun
kl. 12 sr. Bjarni Jónsson og kl. 5
próf. Haraldur Nielsson.
PrinsFriedrich Wilhelm skemti-
ferðaskipið mikla frá Nord-deutsche
Lloyd í Bremen kemur seint í kveld
og dvelur hjer til mánudagsmorguns- j
Farþegar freklega 400. Hjeðan fer
skipið norður að heimskautaísnum
og þaðan til Spitsbergen.
Sjómerki verður sett upp 1.
ágústyst á Batteríisgarðinn. Verða
það 2 rauð Ijós annað 2 stikur yfir
pall og hitt stiku þar yfir.
Guðrún Gestsdóttir yfirsetu-
kona í Hafnarfirði hefur fengið
leyfi stjórnarráösins til nuddlækninga.
, Hjálpræðishers-
foringarnir.
Eins og Vísir hefur áður getið
um er stabskapteinn S. Grauslund
skipaður forstjóri Hjálpræðis-
hersins hjer á landi um fimm ára
tímabil.
Stabskápteinninn og frú hans
eru gamlir og reyndir foringjar.
Síðast liðið ár veittu þau deild
hersins á Sjálandi, Lálandi og
Falstri forustu og var allmikið
látið af þeim þar. Miklum fram-
förum hafði starf hersins tekið í
umdæmi þeirra þessi síðustu ár
og gera því allir sjer góðarvon-
ir um framför hersins hjer á
landi undir stjórn þeirra. Margt
og mikið er öðruvísi hjer en í
Danmörku og fá þau marga örð-
ugleika við að glíma hjer, sem
þau ekki urðu vör við þar, en
jafnframt losna þau við ýmsa
örðugleika hjer, sem þau höfðu
þar. Við óskum þeim heilla og
og blessunar á komandi dögum
og æskilegt væri að verutími
þeirra hjer yrði sigursæll Hjálp-
ræðishernum til handa og þar af
leiðandi almennigi til gagns.
Á. J-
Efri deild.
R æða Guðmundar Björnssonsar
í borgarstjóramálinu í gær.
Hjer er enn á ný farið fram á
aS taka borgarstjórakosninguna í
Rvík út úr bæjarstjórninni og
hleypa því vandamáli bæjarins út í
óvissuna, undir atkvæði allra kjós-
enda, þó aS engurn geti dulist, aS
miklum meiri hluta allra kjósenda
getur aldrei veriö líkt því eins
kunnugt um þarfir bæjarins og
ætlunarverk borgarstjóra eins og
bæjarfulltrúunum, sem vinna í sí-
fellu aö öllum vandamálum bæjar-
ins og borgarstjórinn þeirra fram-
kvæmdarstjóri, líkt og ráöherrann
andspænis alþingi.
En þessi strekkingur gengur nú
hjer á þingi ár eftir ár, og er síst
fjarri sanni um þann gust, aö eng-
inn veit hvatSan hann kemur eöa
hvert liann fer.
Menn h a 1 d a víst allir, að þessi
stroka standi innan úr Skugga-
hverfi, ofan úr Þingholtum og ut-
an úr Ánanaustum, — aö bæjar-
menn liafi fundiö þetta upp sjálf-
ir.
En það er ekki kollgáta.
Þessi vindblika er lengst út í
hafsauga, lengra en auga eygir.
Þaö var fyrir 7 árum þegar borg-
arstjórinn kom til, þá sögöu nokk-
urir ákafamenn, jeg og nokkurir
aörir bæjabúa, aö þa'S væri siöur
í frjálsustu löndum, aö öll alþýöa
kysi í bæjum borgarstjóra sinn og
5Vev^av\kut
Vonarstræti.
Pantanir um bifreiðir að
eins gildar á skrifstofunni.
Sími 405.
svona ættum viö að hafa það, og
óöar kvaö við úr öllum h.verfum
bæjarins: „Já, vitanlega, svona
eigum viö að hafa þaö, kjósa hann
sjálfir, þeim er aldrei trúandi til
þess í bæjarstjórninni.“
Þetta voru upptökin. Kenningin
er aðflutt. Hún fjell strax í faöm-
inn á þeirri heimskunnu ástriöu,
allra kjósenda, aö hver þeirra trú-
ir sjálfum sjer til alls, en fulltrú-
um sínum aldrei til neins.
Jeg var einn af þeim, sem krafð-
ist þess í fyrstu, að viö kjósendur
veldum sjálfir bæjarstjórann —
heimtaöi þaö eins og aörir, án nán-
ari ihugunar; þaö vantaöi ekki að
því væri laumað að mjer hjerna
í fyrra. En jeg sagði þá og segi
]>að enn og aftur, jeg kann að
skammast mín fyrir sjálfum mjer,
ef jeg geri glappaskot; síöan jeg
vitkaöist hef jeg átt í því látlausa
skynsemisstríði aö lagfæra og um-
bæta skoðanir mínar; á ekki því
láni að fagna, aö vera skynlaus
eins og skepna eöa sáluhólpinn í
blindri trú á þaö, sem allir segja
og allir vilja eins og — eins og
þeir, sem það eru.
Og þvi fór nú svo: Við nánari
ihugun sá jeg aö mjer hafði skjátl-
ast í þessu borgarstjóramáli — sá
að sterk rök mæltu með því, að
bæjarstj ó r n veldi manninn.
Og mjög margir bæjarbúar eru
nú sama sinnis — ánægöir með
þaö sem er. En þaö má vel vera,
að hinir sjeu fleiri, og kanske
rniklu fleiri, sem hafa ekki enn
h u g s a ö þetta vandlega og lifa
enn í trúnni á sjálfa sig, i þessu
máli, eins og mörgum öðrum. Jeg
á hjer viö þá nýju alheimstrú, sem
viö allir játum meir eða minna,
tröllatrú allra kjósenda á ráðdeild
sína og alvisku andspænis glópsku
og djöfulskap allra sem þeir
sjálfir kjósa úr sinum hóp og fyr-
ir sína hönd — hvort heldur er í
sveitastjórn, bæjarstjórn eöa á
þjóöarþing.
Þessi mikla trú kjósenda á mátt
sinn og megin er alls engin hje-
gilja, hún er bygð á fullum rök-
um reynslunnar, þjóðræðisreynsl-
unnar, annars væri hún ekki orðin
að alheimsátrúnaði. í æsku þjóð-
ræðisins hugsuöu kjósendur með
fögnuöi til þess, að mega kjósa
sjálfir bestu menn til að ráöa fyr-
ir sig. En þeir hafa kvekst illilega,
hvergi megnað aö vara sig á mis-
endismönnum, sem lofa öllu fögru
Framhald á 4. síöu.