Vísir - 27.07.1914, Blaðsíða 1

Vísir - 27.07.1914, Blaðsíða 1
U6Ö Besta verslunin í bœnum hefur síma %\\. Reykjavfkur lcW\0| BIOGRAPH THEATER. Sími 475. Fjöruga greifadóttirin. . Fyrirtaki þýskur gamanleikur í| þáttum. j Aðalhlutverkið leikur besia kvik- myndaleikkona Þýskalands Henny Porten. Aukamynd: Basso undra api. Hlægilegt. Þetta eru myndir, sem öllum mun þykja gaman að. s B Fkklstur fást venjulega tilbúnar I á Hverfisg. 6. Fegurð, verð og 1 gæði undir dómi almennings. — ian Sími 93. — Helgi Helgason. * Slys á Iþróttavellinum. Þeg- ar lokið var veðreiðunum fyrir þýsku ferðamennina á íþróttavellin- um í gær, voru nokkrir piltár að ríða sjer til gamans í kring um völlinn. Mæltust þá tveir hópar á spretti, og sló 4 hestum saman í bendu og duttu allir samstundis. Haföi það verið all-ægilegt á að Iíta, segjasjónarvottar. Af piltunummeidd- ist þó ekki nema einn lítið eitt, en tveir hestarnir drápust, annar samstundis, en hinn nokkru síðar. Hinir tveir hestarnir höfðu líka meiðst nokkuð, og er haldið, að það verði að drepa annan þeirra. |[ Sfaifcfettxt. 1 Akureyri í gær. Botnvörpuskipin hafa veitt af síld: Snorri Goði 900 tn. B a I d u r 450 — Helgi Magri 1500 — Tunasláttur er Iangt kominn í Eyafirði, en hálfsmánaðar óþurkar hafa gert að lítið er komið inn af heyi. Túnin voru sprotfin í með- allagi. Sjódómur stendur yfir í máli milli Snorra Goöa og Súlunnar. Þau rákust nýlega á úti í firöi og brotnaöi bátur og rifnaði nót af Snorra. Skipin höföu bæði verið að elta síldartorfu. Skipstjórarnir kenna hvor öðrum um áreksturinn. Mikil vitnaleiðsla. Lik Þorv. Guðnasonar, sem getið er um í 1088. tbl., er nú fundið. Hann hafði fariö einn á bát út í hákarlaskip, er lá mann- laust á höfninni, til þess að dæla úr því sjó. Hefur líklega fallið út- byrðis, en var ekki syndur. Þorskafli á þilskip og vjelbáta er orðinn í betra iagi. \% Ferðalöö: og sumardvalir í sveit takast best ef menn nesti sig í Nýhöfn Mánud. 27. júlí 1914. Stríðið byrjað Kaupmannahöfn og Hamborg í gær. Sendiherra Austurríkis í Belgrad hefurathent Serbastjórn skjal eftirfarandi efnis: Samkvæmt játningu banatilræðismanna erkihertogans er það ljóst orðið, að morðingjarnir hafa fengið skipanir sínar frá Belgrad og að þeir hafa fengið sprengikúlur sínar fró serbneskum liðsfor- ingjum og að þeir hafa fengið flutning á sjálfum sjer og vopnum sínum hjá serbneskum landamæravörðum. Skjalið heimtar að Serbastjórn skuldbindi sig til að bæla niður alt hjá sjer, er mælir bót glæpnum, og láta stjórnarblöðin og her- stjórnina birta orðrjettar yfirlýsingar, sem Austurríkis-stjórn hefurstílað. Ennfremur heimtar skjalið, að hafin sje hin strangasta rannsókn í Serbíu gegn samsærismönnunum frá 26. júní undir tilsjón austurrískra rannsóknardómara og að vissir menn sjeu teknir fastir og að vikið 1 sje frá stöðu sinni ýmsum liðsforingjum og embættismönnum. Enn fremur skal hin strangasta gæsla höfð á launflutningi sprengitóla og skotvopna og að hegnt sje ýmsum landamæravörðum fyrir skeyt- ingarleysi. Svar við þessu skjali heimtaði Austurríki, að komið væri til sendiherrans kl. 6 í gærkveldi. Skjal þetta hefur Austurríki látið sendiherra sína birta öllum ríkisstjórnum Evrópu. Segist stjórnin ekki gjöra þetta til þess að troða illsakar við Serba, heldur til þess að gæta sóma síns. Vonast hún eftir að Serbar bregðist rösklega við þessu, svo að alt fái frið- samlegan e.nda. Blöð Serba mótmæltu kröftuglega, að svona stuttur frestur skyldi vera gefinn til andsvara. Stjórnarblöðin í Pjetursborg töldu Rússa ekki geta staðið hlut- lausa, ef til ófriðar kæmi, og reyndi Rússastjórn til að fá frestinn lengdan. Parísarblöðin halla á Austurríkis-menn, en þýsk og ítölsk blöð mæla þeim bót. Fáum mínutum áður en útrunninn var fresturinn (kl. 6 í gær- kveldi, laugard.) kom P a s h i d, forsætisráðherra Serba, til sendi- herra Austurrikis -manna, en með því að hann gaf aðeins ófullnægj- andi svör, sagði sendiherrann slitið „diplomatisku“ sambandi ríkjanna og fór með alla sína starfsmenn burt úr borginni hálftíma síðar. Hóf Austurríki þá þegar ófriðinn. Serbastjórn fiúði í dag frá Belgrad og er borgin varnarlaus. Stjórnar- aðsefur er nú Kragujevac sem er inni í miðju landi (litlu stærri borg en Reykjavík). BIfrá únðNDOHg: Hermdarverk atkvæðakvenna. Þau yrði oflangt mál upp að telja Það er hið síðasta, að þær gerðu tilraun til að kveikja í og sprengja í loft upp hús það, er skoska skáld- ið R o b. B u r n s var fæddur í. Hafa Skotar miklar mætur á þeim stað og halda húsinu í því horfi, er var á Burns dögum. Voru tvær konur að þessu verki og náöist önnur þeirra, en hin flúði. Dýrmætar myndir eru þær öðru hvoru að skemma og valda fleiri spjöllum þar er þær fá því við komið. Frú Pankhurst, aðalhetja þeirra at- kvæðakvennanna bresku, var tekin höndum 8. þ. m. enn einu sinni og flutt í Halloway-fangelsið. Er mælt að nú verði hún ekki laus Iátin að sinni, hvernig sem hún Iætur, verði mötuð með valdi og hótunum alkvæðakvenna að engu skeytt. -1 mBtíXXÓ Italskir stigamenn. Því fer fjarri að illræmdir stiga- menn sjeu undir lok liðnir á fjöll- um S a r d i n i u og S i k i 1 e y a r. Enn er þar allt fullt af útilegumönn- um og þótt einhvern náist að hand- sama, rísa aörir óðar upp. Upp á síðkastið hefur kveðið allmjög að óskunda þeirra í Sardiniu og mörg | morð verið framin. Liggur til þess saga sú er hjer segir. Systkyn tvö Fyrst um sinn verða að öllu forfallalausu farnar fastar ferð- ir frá Reykvík austur yfir fjalí Mánudaga, Miðvikudaga og Föstudaga. Lagt af stað frá ÍReykjavík kl. 9. f. m. Pöntunum austan fjalls verð- ur veitt móttaka við Ölfus- árbrú hjá stöðvarstjóranum- þar, en í Reykjavík á skrif- stofunni- Antonio Corraine ogOio- vanna Cossu áttu heima fyrir nærri 8 árum í suðvesluriiluta Sar- diniu, þar sem heitir O r g o s o 1 o, en þar hefur Iöngum verið nafn- kent útilegumannabæli. Þau systkyn áttu gamlan frænda, Diego Moro, sem mælt er að hafi nælt sjer í allmikinn auð með stigamennsku. Þegar Moro dó, arfleiddi hann Giovönnu Cossu frainku sína að 2|3 hlutum eigna sinna, en að hluta Antonio Corraine bróður henn- ar, og þótti bæði honum og fólki hans það allt of lítið og ranglátt skift. Stakk þá Antonio upp á því að C a r m i n e sonur sinn skyldi kvænast dóttur systur sinnar, »svo peningarnir gengju ekki úr ættinni.* En systir hans setti blátt bann fyrir þennan ráðahag. Grimmdar- hatur varð milli ættkvíslanna og Ieið ekki á löngu áður en blóðs- úthellingar fóru á'eftir hótununi. Árið 1907 lenti þeim í flldeilum Carnrine og Egidio Poddu frænda Cossufólksins og lauk svo að Carmine fannst skotinn til bana þar sem hann sat yfir hjörð sinni. Poddu var grunaöur,tekinn höndum, en látinn laus af því að dómarinn komst að þeirri niðutstöðu að vígið hefði verið honum Iögmæt neyðar- vörn. Nú var það almannarómur, að peningar og áhrif Cossu-fólksins hefði ráðið hjer dómsúrslitum, og Corraine-fólkið, sem ekki gat lög- lega ráðið rjettar síns, rjeð af að hefna harma sinna. Þá var skoliinn laus. Tveir menn af Corraine-fólkinu, O u o r a t u Succu og Francesco De- v a d d i s fóru til fjalla lögðust út og urðu háskalegir stigamenn. Þeir sprengdu hús Cossu’s í loft upp með dynamiti. Var nú bæði lögregla og hersveit á hælum þeini, en þeir náðust ekki, því hjer fór sem oftar á Ítalíu, að stigamennirn- ir nutu verudar og hjálpar allra ná- granna sinna; þeir kunna tökin á að koma sjer vel viö þá.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.