Vísir - 07.01.1916, Blaðsíða 1

Vísir - 07.01.1916, Blaðsíða 1
Útgefandi HLUTAFÉLAG Ritstj. JAKOB MÖLLER SÍMI 400. Skrifstofa og afgreiðsla í Hótel Island SÍMI 400. 6. árg. SESi Fösiudaginn 7. janúar 1916. 6, tbl. 1. O. O. F. 97179. y Gamla Bíó J Á refilstigum (Junglen). Lærdómsrík skáldsaga í 5 þátt- um 200 atriðum eftir hinn mikla jafnaðarmannaforingja Upton Sinclair. svtvw v fevótd. Leíkfólag Reykjavíkur. Hadda Padda. Sjónleikur í 4 þáttum eftir Guðmund Kamban. Verður leikín á laugardaginn og sunnudaginn. Pantaðra aðgöngumiða sé vitjað fyrir kl. 3 þann dag sem leikið er, annars verða þeir þegar seldlr öðrum. Islenski söngvasafn — 1. bindi — fæst hjá öllum bóksölum bæjarins Kostar 4 krónur. Bókaversl. Sigf. Eyniundssonar. Freyjuspor fást hjá Ársæli Árnasyni, Guðm. Gamaiielssyni, Bókabúðinni á Laugavegi 22, Bókaversl. Sigf. Eymundssonar og Isafoldar. Mann vantar til að hirða 3 Lýr á heimili ná>ægt Reykjavík. Hluiakona óskast yfir vetr- arvertíðina á sama stað. Upplýsingar í Bankastræti 11. Jón Hallgrfmsson. SIMSKEYTI frá íréttaritara Vísis. / Kaupmannahöfn 6. janúar 1916. Prinsinn af Wied er á leið iil Albanfu í broddi nýrra hersveita. Rússneska sóknarliðið er hæti stati hjá Czer- nowiiz. Vilhjálmur af Wied, sem tók viö ríkisstjórn í Albaníu eftir Balkan- ófriðinn flúði þaðan úr landi skömmu síðar á ítölsku herskipi. En í byrjun ófriðarins mikla gekk hann í þýska herinn og er nú Iíklega að vitja ríkis síns með aðstoð Þjóðverja. Of seint. —o— Aðvörun iil verkamanna. Llody George, hergagnaráð- herra Breta, hélt nýlega ræðu í neðrimálstofu þingsins, sem þyk- ir merkileg fyrir það hve ræki- Iega hann tekur ofan í stjórn, þing og þjóð fyrir tómlæti þeirra í þessum ófriði. Segir hann að Bretar hafi orðið of seinir á sér í því nær öllum greinum, sem að ófriðnum lúta. Þetta eru aðalatriðin úr ræðu hans: Með því að spara hergagna- útbúnaðinum sóum vér manns- lífunum. Hvorki hermennirnirnir né ó- vinirnir vissu af þvi hve oss skorti sprengikúlur í vor þegar hergagnaráðuneyt'ð var sett á stofn. — Hermálasérfræðingarokkar trúðu á fiísakúlur (shrapnel). Það leið langur tími þangað til við sner- umst að sprengikúlunum (high explosives). í maímánuði smíðuðu Þjóð- verjar 250.000 sprengikúlur á dag, en við ekki nema 2,500 sprengi- kúlur og 13 flísakúlur. Það var því ekki að undra þó að mörgum væri órótt þá, bæði á vígvöllunum og hér heima. Eg hefi nú skýrt frá því hvað smíðað var í maímánuði. Eg get ekki sagt frá hvað smíðað var í nóvembermánuði — ekki enn þá- í seftembermánuði var eytt ó- grynni af skotfærum. Þá stóðu orustur í marga daga og janvel svo vikum skifti og samt var engin þurð á skotfœrum. Yfir- maður herforingjaráðsins sagði mér að hann væri ánægður með birgðirnar. Þessar skotfærabirgð- ir höfðum vér dregið saman á fjórum mánuðum, en bjuggum þœr til á ný á einum mánuði og bráðum munum við geta það á viku. Okkur gekk seint að komast í skilning um að mest væri und- ir því komið af hafa sæg af stór- um fallbyssum. Þær voru pant- i aðar í sumar. ' Það er ekki hægt að mola | skotgrafirnar og hergarðana nema ; með stærstu fallbyssunum. Okkur gekk líka seint að skilja hvaða þýðingu vélbyssurnar hafa í hernaði. Nú er það mál kom- ið í gott horf. Mér er sagt að 90 af hverjum 100 manns særðra og fallinna særist eða falli fyrir vélbyssu- kúlum. í ófriðarbyrjun létum við hvert herfylki (battalion) fá 2 vélbyss- : ur. Þjóðverjar létu hvert her- fylki sinna manna fá 16 vél- byssur. Vélar, sem hafðar eru til að smíða vélbyssur standa nú ó- notaðar vegna þess að ekki er hægt að fá æfða menn til að stjórna þeim. Hvort við berum sigur úr býtum í þessum ófrið er undir því komið að æfðir menn gefi sig fram. Við þurfum á 80 þús. æfðum smiðum að halda og 300 þús. verkamenn í nýju verk- smiðjurnar. Við þurfum að fá byssurnar til þess að hernaðurinn gangi að óskum næsta ár. Við verðum að fá nógu margar sprengikúlur til að mola þau varnarvirki sem eru á leiðinni. Nýja Bíó Cleopatra. Myndin verður sýnd í heilulagi í kveld. INNILEGT þakklæti flytjum við öllum þeim, er sýndu hlut- tekningu við fráfall og jarðarför okkar elskulegu móður og tengda- móður, Oddnýjar Pálsdóttur. Rvík 6. jan. 1916. Jón Eiriksson. Sigriður Guðbrandsdóttir. En það eru ekki nógu margir æfðir verkamenn í smiðjunum. Því hafa óbreyttir verkamenn ekki verið látnir koma í stað æfðra manna? Foringjar verkamanna sem sæti eiga á þingi, eru því samþykkir, en þegar á að koma því í fram- kvæmd, þá kostar það harða baráttu í hverju héraði, í sér- hverri borg í sérhverri verk- smiðju. — Verkamenn í verka- mannafélögunum eru því mót- fallnir. Það er undir vinnuveitendum og verkamönnum komið hvort ófriðurinn verður leiddur til far- sœllegra iykta eða herirnir eiga enn að hrekjast um bloðvöllinn í mörg ár. Verkamennirnir geta svarað því. En skyldi svarið ekki koma of seint — óheillaorðin í þessari styrjöld. Of seint farið af stað hér, of seint komið þangað, of seint tekin ákvörðun, of seint ráðist í þetta, of seint undirbúið. Það er eins og orðin »of seint* hafi elt heri bandamanna. Og ef við bregðum nú ékki skjótt við er illa komið góðu málefni sem svo margir hraustir drengir hafa látið líf sitt fyrir. Eg bið verka- menn og vinnuveitendur að láta ekki skrifa »of seint« fyrir ofatl dyrnar á verksmiðjunum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.