Vísir - 08.01.1916, Page 1

Vísir - 08.01.1916, Page 1
Skrifstofa og afgreiðsla í Hótei Island SÍMI 400. Útgefandi HLUT AFÉLAG Ritstj. JAKOB MÖLLER SÍMI 400. 6. árg. Laugardaginn 8. jantíar 1916. 7. tbl. J Gamla Bíó • Parísarför Corbillons. Afbragðs gamanleikur — í 3 þáttum — Aðalhlutverkið leikur Prince hinn frægi franski skopleikari. Leíkfélag Reykjavíkur. Hadda Padda. Sjónleikur í 4 þáttum eftir Cuðmund Kamban. Verður leikín i kvöld og annað kvöld. Pantaðra aðgöngumiöa sé vitjað fyrir ld. 3 þann dag sem leikið er, annars verða þeir þegar seldlr öðrum. Islenskt söngvasafn — I. bindi — fæst hjá öllum bóksölum bæjarins Kostar 4 krónur. Bókaversl. Sigf. Eymundssönar. I. O. G. T. St. »FjöInir Nr. 170 heldurauka- fund sunnud. 8. þ. m. kl. 4. á vana- legum stað. Aríðandi aö félagar mceti. "I" HÉRMEÐ tilkynnist vinum og vandamönnu'm að okkar ástkæri bróðir, Oddur Ouðmundsson, andaðist á heimili okkar, Orettis- götu 20, aðfaranótt 7. þ. m. Jarðarförin verður augl. síðar. Systkyni hins látna. V I N U M og vandamönnum gefst til vitundar að jarðarför okkar ástkæru móður, Petrínu Regínu Rist, fer fram þriðjudag- inn 11. þ. m. og hefst með hús- kveðju frá heimili hennar, Bjarna- borg, kl. 12 á hád. Börn og barnabörn hinnar látnu. SKRIFSTÖRF. Karlmaður eða kvenmaður, er hefir þekkingu á tvöfaldri bók- færsiu, er vel að sér í reikningi og ritar fallega hönd, óskast á skrifstofu hér í bænum. Umsóknum merktum SKRI FSTÖRF veitir blað þetta móttöku í 2 daga. SÍMSKETTI frá íréttaritara Vísis. Kaupmannahöfn 7. janúar 1916. Framsókn Rússa í Galiciu er nú orðin að irölls- legri orustu og berjast þar 800000 hermenn af þeirra hálfu. Frá Leith. Islendingur sektaður um 25 pd. Sterling fyrir að flytja blöð út í skip. Þá er Island kom til Leith á leið til Kauþmannahafnar í desember, voru á því nokkrir farþegar frá Norðurlandi og þar á meðal Slein- grímur Matthíasson læknir. Hitti Steingrímur þar frænda sinn, Þórð Flygenring, son Augusts kaupmanns í Hafnarfirði. Færði Þóröur Stein- grfmi eitthvað ar þarlendum blöð- um, en vissi ekki að þar er öllum stranglega bannað að flytja blöð úr landi, öðrum en útgefendum og liggja við sektir og fangelsi. Þegar að því leið, að skipið átti að ieggja úr höfn, spurði líðsfor- ingi sá, sem eftirlit hafði, skipstjóra að því hvort hann hefði nokkur blöð meðferðis. Neitaöi skipstjóri því. En þá gail við danskur mað- ur, sem heima á í Leith, Godtfred- sen að nafni og somír Godtfred- sens, sem var skipstjóri á Vestu, og kvað farþega einn hafa ensk blöð í fórum sínum. Hóf þá liðsforing- inn leit og fann þegar blöðin hjá Steingrími lækni. Krafði hann Slein- grím sagna um það, hvaðan hann hefði blöðin og hann sagði frá því hið rétta. Var Þórður þá kallaður fyrir og yfirheyrður og gekkst hann þegar við þessu, en sagöi sem satt var, að sér hefði verið ókunnugt um bannið. Var hatin síðan dæmd- ur til að greiða 25 Sterlingspund í sekt eða 60 daga fangelsi. En farþegar á íslandi greiddu sektina. Frétt þessa hefir Vísir eftir bréfi frá Kristjáni kaupm. Gíslasyni frá Sauðárkróki, sem var meðal farþeg- anna á íslandi. Með því að eg hefi selt eign mína í Félagsprentsmiðjunni herra Pétri Þ. J. Gunnarssyni, og í sam- bandi við það hætt forstöðu prent- smiðjunnar, finn eg ástæðu tii að þakka hinum mörgu fjær og nær, sein skift hafa viö prentsmiðjuna á undanförnum árum, og vona eg að viðskiftamennirnir iáti hana njóta sama trausts framvegis. Reykjavík 6. jan. 1916. Halldðr Þóröarson. Nýja Bfó e^) Cleopatra. Myndin verður sýnd í heilulagi í kveld. &ÆJAEFKÉTTIR Afmœli í dag: Sigríður Jóhannsdóttir, ungfrú. Eri. mynt. Kaupm.höfn 7. jan. Sterlingspund kr. 17,20 100 frankar — 62,25 100 mörk — 65,75 Villa hafði slæðst í ræðu Lloyd’s George sem birtist í Vísi í gær. Þar stóð að Engiendingar hefðu smíðað 13 flísakúlur á dag í maí- mánuði, en átti að vera 13,000. Stjórn Eimskipafélagsins. Bjarni M. Magnússon hefir gefið út spjald með myndum af stjórn Eimskipaféiagsins og skipum þess. Á spjaldinu eru auk þess myndir af fossunum, sem skipin eru heitin eftir. Bréfspjald með sömu gerð hefir hanh einnig gefið út. Er hvorttveggja mikið vel úr garöi gert. Apríl seldi afia sinn í Fleetwoud í fyrradag fyrir um 2970 steri. pund. »Gelr«, björgunarskipið, fór til Vest- mannaeyja í fyrrakvöld, Ætiaði að leita að vélbáti sem vantaði þaðan með 4 mönnum. Úr leitinni kom Geir aftur í gærkvöld til Eyja og haföi ekki fundiö bátinn. Vísir er nú eina blaðið í bænum sem flytur daglega og óbrigðult sím- skeyti frá útlöndum. Sjálfstæðisfundur verður ekki haldinn í kvöid. Regluiegur fundardagur var á ný- ársdag og næst á laugardaginn 15. þ. m. Messað á morgun í Frfkirkj. í Rvík kl. 12 á hád., sr. Ól. Ólafsson. Dánarfregn. 6. þ. m. dó Oddur Halldórsson, gamall maður á Efri-Brekku við Brekkustíg.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.