Vísir - 09.01.1916, Blaðsíða 1

Vísir - 09.01.1916, Blaðsíða 1
 \ . Útgefandi HLUTAFÉLAG Ritstj. JAKOB MÖLLER SÍMI 400. Skrifstofa og afgreiðsla í Hótel Island SÍMI 400. 6. árg. Sunnudaginn 9. janúar 1916. >-<>-< 8. tbl. }Cá)a Ji\ó Vegna mikillar aðsóknar og áskorana fjöída margra manna, verður (LleopaUa sýnd enn einu sinni í heilu lagi kl. 9 í kvöld. • G.amla Bíó j______ Parísarför Corbillons. Afbragðs gamanleikur — í 3 þáttum — Aðalhlutverkið Ieikur Prince hinn frægi franski skopleikari. lí&æBísaaBömsíBísá Leíkfélag Reykjavíkur. Hadda Padda. Sjónleikur í 4 þáttum eftir Guömund Kamban. Verður leikín i kvöld Pantaðra aðgöngumiða sé vitjað fyrir kl. 3 þann dag sem leikið er, annars verða þeir þegar seldlr öðrum. Islenskt söngvasafn — I. bindi — fæst hjá öllum bóksölum bæjarins Kostar 4 krónur. Bókaversl. Sigf. Eymundssonar. Fyrirlestur Um stjórnarskrána heldur Sveinn Björnsson í dag í Iðnó ld. 5. Freyjuspor fást hjá Ársæli Árnasyni, Guðm. Gamaiíelssyni, Bókabúðinni á Laugavegi 22, Bókaversl. Sigf. Eymundssonar og Isafoldar. SÍMSKEYTI frá íróttaritara Vísis. Breska þingið hefir samþykí lög um hervarnarskyidu ókvongaðra manna. Bruce, Henderson og Roberts hafa sagt af sér. (§73 Nýja Bíó R ó,g u r Skáldsaga í tveim þáttum eftir C. de. Morlhon. Þessi Ijómandi fallega mynd er Ieikin af hinum sömu ágætu leikurum, sem léku í myndinni »Hrakmenni« og fleiri góðum myndum, sem sýndar hafa verið í Nýja Bíó. Nýtt harmoníum til sölu með þessum registrum: B a s s: Echo ’8 Diapason ’8 Principal ’4 Forte I & II D i s k a n t: Piano '8 Melodie ’8 Flöte ’4 Oktav Kopplen 2 hnéspaða Forte & Fult verk. Loftur Guðmunddsson, Aðalstræti 6, Matarversluninni. Sorglegt slys, BÆJARFRÉTTIK Á fimtudaginn, 6. þ. m., lögðu 2 karlmenn og 3 stúlkur í góðu veðri upp^ á Vaðlaheiði úr Fnjóska- dalnum á leið til Akureyrar. En er þau voru skammt komin, skall á jjau stórhríð. Héldu þau þó áfram ferðinni, en innan skams uppgafst annar karlmaðurinn og var hann grafinn í fönn. Skömmu síðar upp- gáfust stúlkurnar og voru einnig grafnar í fönn. Gekk nú sá kail- maðurinn, sem enn var óuppgefinn, það sem eftir var dagsins og nótt- ina og komst loks til bæja aftur í Fnjóskadalnum. Var þegar farið að leita fólksins sem uppgefist hafði og fundust stúlkurnar en karlmað- urinri famist ekki og er talið víst að hann hafi dáið. Hann hét Júl- íus Kristjánsson. Ein stúlkan, Krist- ín Jóhannsdóttir, var dáin er að var komið og önnur liggur þungt haldin. Afmœli í dag: Ágústa Sigfúsdóttir, húsf. Gunnþ. Halldórsdóttir, kaupk. Kristjana Thorsteinsson, húsf. Snorri Jóhannsson, afgrm. Afmæli á morgun. Guðrún Jónsdótúr, húsfrú. Guðný Magnúsdóttir, húsfrú. Jón Friðriksson, kaupm. Magnús Einarsson. Pétur Magnússon, cand. jur. Runólfur Runólfsson, prestur. Stefán Árnason, námsm. Veðríð í dag. Vm.Ioftv.749 V. kaldij CC 1,5 Rv. <C 747 V. sn. v. cc_ -0,1 íf. cc 741 nv . stormur cc_ -1,8 Ak. cc 740 ssv. gola cc_ -0,5 Gr. c( (í Sf. cc 744 V. hvassv. cc_ -2,0 Þh. (i 753 V. stormur cc 9,0 Leikhúsið. »Hadda Padda« virðist njóta all- mikillar hylli nieðal leikvina. Hefir hún nú verið leikin níu sinnum fyrir fjölda áhorfenda. í 10. sinn verður hún leikin í kvöld. Erl. mynt. Kaupm.höfn 7. jan Steriingspund kr. 17,20 100 frankar — 62,25 100 mörk — 65,75 Rey kj a v í k Bankar Pósthús Sterl.pd, 17,50 17,55 100 fr. 64,00 64,00 100 mr. 71,00 72,00 1 florin 1,60 1,62 Doll. 3,90 Þorfinnur Kristjánsson, prentari, sem nú er á Eyrarbakka og margir Reykvíkingar munu kannast við frá því er hann var hér, mun nú, eftir því sem heyrst hefir, vera að kaupa blaðið Suður- land og prentsmiðjuna. »Vesla« kom í morgun beint frá New York. Farþegar Ólafur Johnsson og Gunnar Thorsteinsson. Flóra kom að vestan í gær. Hún fer ekki héðan í dag. Guiifoss er nú í Hafnarfirði en fer héðan til útlanda á morgun. Spánverjar kaupa skotfæri. í enskum blöðum er sagt frá því, að Spánverjar hafi keypt feiknin ðU af skotfærum í Ameríku. Aðalmað- ur nefndar þeirrar, sem annast þessi innkaup í Ameríku, Garrido majór, segir að »Spánverjar hafi ekki neitt ílt í huga gagnvart einum eða öðr- um, en það sé talið hyggilegt á Spáni að vera við öllu búinn og hyggja landið gegn líkum örlögum og Belgíu.«

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.