Vísir - 10.01.1916, Side 2
V ÍSIR
VISIR
Afgreiðsla blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl, 8—8 á hverj-
um degi,
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sania stað, inng. frá
Aöalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
kl. 1-3.
Sími 400.— P. O. Box 367.
<3’\§ut oa S)4xvt\,
§
I
1
gufuhreinsað, lyktarlaust. §1
TilbúinnSSængurfatnaður. g
Kol.
í haust, er útséð var um það.
að nokkuð yrði úr því að kol
yrðu tekin upp úr kolanámunni
í Stálvík, eða hún rannsökuð
nánar að þessu sinni, var vikið
að því hér í blaðinu, að Reykja-
víkurbær yrði þá þegar að út-
vega sér kol til vetrarins. — Á
þessu var hin mesta nauðsyn
af tveim ástæðum. — Fyrst gát-
um vér ekkert um það vitað,
hvort kol myndu verða fáanleg
í Englandi í vetur, nema til skipa.
f öðru lagi mátti gera ráð fyrir
að kol mundu stíga jafnvel all-
mikið í verði er á veturinn liði.
Og viti menn, skömmn síðar
auglýsti bœjarstjórnin eftir til-
boði um sölu á éinum eða fleiri
förmum af kolum. — En þar við
situr. —
Bæjarstjórnin hefir sjálfsagt
ekki athugað það, að þessi aug-
lýsing hennar hlaut, ef ekki átti
meira að gera, að verða að eins
til ils. — Ef bæjarstjórnin hefði
ekkert gert, var ekki ósennilegt
að bæjarbúar hefðu bundist sam-
tökum, um að útvega sér kol.
En þegar búið var að auglýsa,
mun mönnum hafa þótt málinu
vel borgið, í jþeirri trú, að hug-
ur fylgdi máli hjá bæjarstjórn-
inni.
Að vísu eru ekki miklar líkur
til þess að bærinn verði koialaus,
en þó eru menn farnir að vakna
við illan draum, er þeír heyra
nú talað um að kol muni nú
bráðlega hækka allmikið i verði.
Menn minnast þess, að hafa
heyrt þess getið, að verkamenn
á Akureyri hafi birgt sig upp að
kolum í haust og fengið þau fyr-
ir 6—7 kr. skpd. Hér í Reykja-
vík hafa menn orðið að greiða
8 kr. og þar yfir. Og nú mega
nýkomið.
Sturla Jónsson.
menn jafnvel búast við að verða
að borga enn meira.
Sá sem þetta ritar minnist
þess, að hafa heyrt það í haust,
að aðalkolaversl. bœjarins mundi
hafa nægar birgðir af kolum handa
bænum, ef ekki yrði selt því
meira til skipa. Hafi bæjarstjórn-
in iátið sér nœgja þetta og þess
vegna hætt við kolakaupin, þá
var það því að eins forsvaran-
legt, að hún, að minsta kosti,
trygði sér að kolaverðið hækkaði
ekki frá því sem það þá var. —
En auðvitað hefir það ekki verið
gert. Og hafi verslun þessi nú
þegar selt þær birgðir, þá má
vœnta þess, að hún sjái sig til
neydda að setja upp verðið.
Það eru nú að vísu til þau fífl
sem jafnvel láta sjá nafn sitt á
prenti undir þeirri vitleysu, að
engin dýrtíð sé nú í bænum, en
væntanlega dylst það engum
skynbærum manni, að almenn-
ingur má ekki við því, að kaupa
kolaskpd. fyrir mikið meira verð
en 8 kr. Og það liggur í aug-
um uppi, að einhver ráð verður
að finna til þess að koma í veg
fyrir þá hækkun.
Og eitt ráð er áreiðanlega tll.
Landsjóður á fyrirliggjandi all-
miklar kolabirgðir. Og þau kol
mnnu vera miklu ódýrari en önn-
ur kol sem nú eru fáanleg. —
Pessi landsjóðskol munu að vísu
hafa verið keypt sérstaklega með
það fyrir augum, að tryggja land-
ið gegn algerðu kolaleysi. En
bæði er nú það, að þau myndu
sjálfsagt hrökkva skamt undir
þeim kringumstæðum, og annað
hitt, að ef kolaverð hækkar mik-
ið frá því sem nú er, þá má svo
segja, að all-margir menn séu
kolalausir, þeir geta ekki keypt
kolin. — Auk þess má telja það
víst, að úígerðarmenn geti altaf
fengið kol í Englandi. Englend-
ingar munu áreiðanlega undir öll-
um kringumstæðum vilja vinna
það til að fá fiskinn af botn-
vörpungunum. Enn er svo liðið
á veturinn, að gera má ráð fyrir
að kol landsjóðs endist til vors,
að minsta kosti ef farið er spart
með þau, en ýmsir efnaðir menn
sem mest kol þurfa, hafa þegar
birgt sig upp til vetrarins.
Pað er því alger óþarfi að láta
kolaverðið hækka frá því sem
nú er. Jafnvel fullvel ástæða til
að fara að selja landsjóðskolin
nú þegar, til þess að menn eigi
kost á ódýrari kolum en nú eru
fáanleg í bænum.
Borgari.
Batnar hægt.
Nei, nú nenni eg ekki lengur að
elta ólar við skrif B. H. B. um
gangverðsverðlagið, sem hann kall-
ar svo.
Hve gersatnlega skilningslaus
hann er á máli þessu, sést best á
samanburði hans á pósthúsi og
bönkum. Það er eðlilegt að verð-
lag pósthússins fari eftir danska
verðlaginu. Fyrst og fremst ganga
öll þess viðskifti við England í
gegn um Danmörku og hlýtur
verðlag þess því að fara eftir dönsku
verðlagi. En auk þess kaupir það
aldrei víxla eða ávísanir á England
eins og bankarnir og þarf því ekki
að taka tillit til innkaupanna eins
og þeir við sölu ávísana á Eng-
land. — Að verðlag bankanna,
þrátt fyrir það, nær ávalt er lægra
en pósthúsverðlagið kemur þessu
máli ekki við og heldur ekki það,
að pósthúsið einstakasinnum er
lægra.
FuIIyröing B. H. B. um það,
að bankarnir eigi að velja tímann
til kaupa á erl, mynt er í svo áber-
andi mótsögn við kröfu hans um,
að bankarnir taki tillit til þarfa við-
skiftamannanna, að mig furðar á
T I L M I N N I S:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, ld.kv. til 11
Borgarst.skrif.it. í brunastöð opín v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K, F. U. M. Alm. sanik, sunnd. 81/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl, 11-1.
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
Landssíminn opinn v. d, daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og 4-7
Náttúrugripasafnið opið U/,-21/, síðd,
Pósthúsið opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vifilsstaðahælið. Hcimsóknart«mi 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
Ókeypis lækning háskólans
Kirkjustræti 12:
Alm. lækningar á þriðjud. og föstud.
kl. 12—1.
Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud.
kl. 2—3.
Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3.
Aiignlækningar í Lækjargötu 2 á mið-
vikud. kl. 2—3.
Cigarettur
mest úrval í
Landstjörnnniii
því að hún skyldi ekki standa í
honum.
Það er auðvitað, að þar sem
bankarnir hér hafa keypt ensk pund
I
i í sumar fyrir meira en 18 kr. og
selt þau í haust fyrir miklu lægra
verð, þá getur hér alls ekki verið
um gróða eða álagningu að tala.
Stagl herra B. H. B. um þetta er
því bersýnilega út í hött og alls
ekki svara vert. — Enda mun eg
láta hér staðar numið.
Merc.
S k r í 11 u r.
Maðurinn (hjá lækninum): Stattu
nú bein Gudda, svo Iæknirinn geti
séð hvað þú ert skökk.
Frænkan (tekin að eldast): Dæma-
Iaust er að vita þetta krakki, nú hefir
þú verið látin sitja yfir í skólanum
einu sinni enn.
lnga litla: Heyrðu frænka, ætli
það sé nokkuð verra en að sitja
yfir á böllunum — ha?
Litli drengurinn (við mömmu
sína á bryggjunni); Mamma, mér
finst eg vera farinn að sökkva upp
á móti.
Hans litli (heyrir lætin í þrumu
veðrinu): Hvaða læti eru þetta
mamma?
Móðirin: Guðinn Þór er að aka
úti Hans minn.
Hans litli: Finst þér ekki mamma,
hann ætti að láta setja gummíhjól
á vagninn sinn.