Vísir - 16.01.1916, Qupperneq 2
VÍSIR
VISIR
A f g r e í ð s 1 a blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi,
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað, inng. frá
Aöalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
U. 1—3.
Sími 400.— P. O. Box 367.
A s t ú I k u r geta
“ fengið tilsögn í
hannyrðum. Kenslan fjölbreytt
og ódýr — Afgr. v. á.
Skautasvellið.
—0—
Fyrir nokkru var verið að kvarla
yfir því, í einhverju af dagblöðun-
um, hve áhuginn fyrir sundíþrótt-
inni væri dofnaður hjá mönnum.
En það er því miður ekki ein-
stakt dæmi, f íþróttalífi voru. Því
aö það er ekki aðeins þannig ástatt
fyrír sundinu, heldur má einnig
sjá Ijósan vott dofnandi áhuga fyrir
skautaíþróttinni.
Þessi íþrótt er hin lang-hollasta
og skemtilegasta vetraríþrótt, sem
oss gefst kostur á að iðka. Auk
þess sem hún er mjög skemtileg,
stælir hún líkamann og gerir menn
hrausta og sterka, Það er ekki svo
bft sem vér höfum gott skauta-
svell á Tjörninni. Snjókoma og
rigningar hafa, undanfarna vetur,
staðið því mjög fyrir þrifum. Þar
af leiðandi hafa menn að mun
mist áhugann fyrir henni og er
það illa farið. En í vetur er öðru
máli að gegna. Tjörnin hefir vik-
um saman verið lögð og hefir ísinn
ávalt verið hinn ákjósanlegasti.
Þegar snjóað hefir, hefir Skauta-
félagið látið sópa skautabraut sína
og upplýst hana á kvöldin. En þá
hefir greinilega komið í Ijós, hví-
líkum afturförum skautaíþróttin
hefir tekið, hér á landi. Marga
daga í vetur, í ágætisveðri, hefir
aðeins mátt sjá örfáa menn renna
sér á glærum og spegilsléttum ísn-
um. Það er afsakanlegt, þótt
menn sjáist þar ekki um há-
bjartan daginn, þar eð margir hafa
ýmsum störfum að gegna, en þeim
væri þó vorkunnarlaust að koma
þar á kvöldin. En því hefir ekki
verið þannig farið. Aðeins örfáar
hræður Lhafa sést renna sér þar á
kvöldin, því að lang-flestir hafa
heldur kosið, að sitja í loftillum
kvikmyndaleikhúsum og rykfyltum
kaffihúsum, kvöld eftir kvöld, en
að hlaupa sér til skemtunar og
hressingar á Tjörninni. Það er
leitt að menn skuli láta skauta-
fþróttina víkja fyrir »Bíóum« og
kaffihúsum. Það er þeim til stór-
Nýkomið
til
— V. B. K.
Flonel. Léreft.
Handklæðadregill.
Rekkjuvoðir.
Alklæði. Kjólatau.
Tvistau. Sirz.
Tvinni. Lakaléreft.
Sjöl.
Segld úkur.
Vandaðar vörur. Ódýrar vörur.
Nýkomin
Blá Fataefni,
— ekta litir. —
Fín
V etrarf rakkaef n i.
Margar teg.
F a t a e f n i.
^x\§\xv \)tx<K\æ{&\xx\,
G-uðm. Sigurðsson.
minkunar, því að slíkri fþrótt er
aldrei of mikill áhugi sýndur.
Þessa daga er afbragðs skauta-
svell á Tjörninni, en það getur
farið þegar minst vonum varir,
Því er fastlega skorað á alla þá,
sem skauta hafa eða geta aflað sér
þeirra að nota nú vel skautasvell-
ið, það sem eftir er vetrar, bæði
sjáifs sín vegna og til þess, að
þessi ágæta íþrótt megi blómgast
og dafna hjá oss í stað þess að
hverfa úr sögunni, sem hún hlýtur
að gera, ef þessu heldur áfram.
S n j ó 1 f u r.
Kinnhesturinn.
Smásaga
frá stjórnarbyltingunni.
Frh. ---
Hann gekk framan að greifanum
og hélt svo áfram:
»Síðan eru nú liðin tvö ár, en
eg hefi ekki gleyml því. Vegna
þess að eg komsl nokkrum mínút-
úm síðar til hallarinnar, en þér
höfðuð ákveðið, gáfuð þér mér
kinnhest í stað þjórfjár! — Vegna
þess að hjörðin yðar varð okkur til
farartálma á veginum, og það var
ekki mér að kenna! — — Þegar
þér nú viljið að eg bjargi iífi yð-
ar, megið þér ekki gleyma því, að i
eg er ónýtur ökumaður. Mig svíð-
ur enn í kinnina. Eg fer heim og
óska yður góðrar nætur, herra greifil*
»Jacques, Jacques, hvað ertu að
segja. Guð hjálpi þér! Þú ert
genginn af vitinu, eða ertu fullur?*
kallaði Arrault. »Biddu hans há-
göfgi fyrirgefningarb
»Hér er engin hágöfgi! Við er-
um allir jafnir! Það er eg sem
hef verið móðgaður. Það er sam-
borgari okkar Borderie, sem á að
biðja mig fyrirgefningar. Geri hann
það fyrst, þá gefum við séð hvað
setuKþar’á eftir«.
Þá varð dauðaþögn.
T I L M I N N I S:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, ld.kv. til 11
Borgarst.skrifjt. í brunastöð opín v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk. Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K. F. U. M. Alm. samk. sunnd. 81/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl, 11-1.
Landsbankinn 10-3, Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
Landssiminn opinn v. d, daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúrugripasafnið opið P/,-21/, síðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
Ókeypis lækning háskólans
Kirkjusfræti 12:
Aim. lækningar á þriðjud. og föstud,
kl. 12—1.
Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud.
kl. 2—3.
Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3.
Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið-
vikud. kl. 2—3.
Greifafrúin hafði sest aftur og fól
nú andlitið í höndum sér.
»Það er ómögulegt!---------Það
er ómögulegt!« tautaði greifinn.
»Nei, þá kýs eg heldur að deyja«.
— Greifafrúin laut niður að barn-
inu, sem vaknaði í þessu og kysti
það tneð viökvæmni, alvarleg á svip.
Arrault var nú oröinn reiður. —
»Eg skipa þér að fara, heyrirðu
það ökumaður! Þú verður rekinn
úr vistinni ef þú neitar*.
»Það gildir“einu,1 það mun vitn-
ast hver sökin er. Egffer ekki. Eg
fer heim. Góða nólt!«
Þá breytti póstafgreiðslumaðurinn
um aðferð. Hann hljóp á eftir hon-
um og tók f handlegg hans.
»Bíddu við, Jacques minn góöi,
hafðu nú skynsemina í ráðum. Þú
getur sett eins mikiö upp og þér
sýnist, þú ert enginn auðmaður—«
Greifinn kastaöi pyngju sinni á
borðið.
»Þarna eru 2000 kr. Við skul-
um hafa hraðann á«.
»Eg hirði ekki um peninga. Þér
verðið að biðja mig fyrirgefningar«.
»Heyrðu mig Jacques*, sagði
Arrauit í bænarrómi. »Gerðu þetta
mín vegna*.
»Nei!«
En . . .«
»Fyrir mann sem hefir rekið mér
utan undir að ósekju . . .«
Greifinn krefti huefann. Hann
þráði að lúberja þennan bónda-
garm, sem hagaði sér eins og herra-
maður, setti skilyrði og viidi láta
biöja sig fyrirgefningar I Fyrirgefn-
ingar! Greifinn de la Borderie!
Biðja bóndastrák fyrirgefningar I.. •
Nei I Komi hvað sem koma vill I
Svo lágt gat hann ekki lotiö! Hann
skyldi sýna honum hverja meðferð
hann verðskuldaði ....
Frh. á 4. síðu.