Vísir - 31.01.1916, Side 4

Vísir - 31.01.1916, Side 4
VÍSIR Lífsábyrgðarfélagið ,.Danmark” er áreiðanlegasta og ódýrasta lífsábyrgðarfélagið á Í1 orðurlöndum Lág iðgjöldl --- Hár Bónus! = Nýtísku barnatryggingarí — Ef trygði hættir í félaginu einhverra hluta vegna, fær hann mest öll iðgjöld endurgreidd. Eimskipafélagið Og strandferðirnar. Á síðasta þingi var svo ráð fyrir gert, að Eimskipafélagiö taeki að sér 8trandferðirnar hér við Iand frá því í aprílmánuði þ. á., svo framarlega sem unt væri að fá skip leigð til þeirra með kjörum sem við mætti una. Félagið hefir nú reynt fyrir sér um skipaleigu, verið að því síðan í haust, snuið sér til 133 skipaeig- enda, flestra á Norðurlöndum, en ókleyft var að fá nokkur skip nema meö því afarverði, sem landsstjórnin taldi óaðgengilegt með öllu. Er félagið hafði tjáð landsstjórninn ár- angurinn af þessum tilraunum sín- um, fór hún fram á að Eimskipa- félagið léti sklp sín »GulIfoss« og »Ooðafoss« haga ferðum sínum svo, að bætt yröi upp strandferðaleysið. Um þetta hafa nú tekist samningar með Iandsstjórninni og félaginu. Fær félagið greiddan aukakostnað og bættan hallan við breytinguna meö 73325 króna styrk úr landssjóði. Hefir það gefið út n ý j a á æ 11 u n, sem gildir frá 26. janúar. Aðal- breytingin frá hinni fyrri er sú að viðkomustöðum hér á landi er fjölg- að mikið og skipin látin sigla þannig að viðkomustaðirnir á Norður- og Austurlandi fá samband við Reykja- vík í flestum þeim mánuðum ársins, sem skip sameinaða félagsins sigla ekki milli þessara staða. Fyrsta ferð •Goðafoss* til Reykjavíkur norðan um er í mars (til Rvk 12. apríl). Fyrsta ferð »Gullfoss« til Austur- landsins er frá Rvk 2. apríl ogsvo þar eftir samkvæmt nýju feröaáætl- uninni. Bænabréfin ensku. Mér þótti vænt um grein hr. Nísbet um þau í biaði þessu ný- verið. Raunar kom mér aldrei í hug að hann hefði komið þeim af stað hér í bæ, enda hafa þau verið fyr á ferðinni hér en í vetur. Mér hefi jafnan fundist að þau bæru vott um kaþólska hjátrú hver sem hefir komið þeim af stað. Slík bréf eru al- geng erlendis og oft varað við þeim í blöðunum, — en hvað stoða aðvaranir gegn hjátrúnni ? — En ráða vil eg öllum þeim, sem taka til greina orð mín um trúmál: Stundið bænrækni, — en varpið svona bréfum í ofninn. S. Á. Gíslasort. De Wet. Eins og kunnugt er var De Wet Búaforingi látinn laus gegn því að hann gæfi sig ekki að stjórnmálum. Petta skilyrði þykir stjórninni hann hafa haldið mið- lungi vel. Hafa honum verið haldin fagnaðarsamsœti af fylgis- mönnum hans og þykja ræður De Wets við þau tækifœri frem- ur hafa aukið óánægju Búanna en lægt hana. í febrúar á að halda De Wet veislu í Vrede og þeim sem látn- ir voru lausir með honum. Hafa fylgismenn hans mikinn viðbún- að undir þá veislu. Út af því hefir Botha-stjórnin skrifað De Wet bréf. Ekki bannar hún hon- um að fara í veisluna, en bend- ir honum á skuldbindingar þær sem hann hafi undirgengist þeg- ar hann var látinn laus oghvað við liggi ef hann brjóti þær. Kvennalistinii. D-listinn hefir þó vakið dálitla eftiríekt á sér — þótt sumt sem sagt hefir verið í sambandi við hann þurfi leiðréttingar við. Eg á hér við fullyrðing þá er birst hefir í 25. tbl. Vísis og 7. tbl« ísafoldar um það, að konum hafi verið boðin samvinna af hálfu karlmanna við þessar bæjarstjórn- arkosningar, er nú eiga fram að fara. Að svo hafi verið verð eg algerlega að mótmæla. Háttvirtir greinarhöfundar kalla það tæpast í alvöru samvinnu- tilboð þótt Sjálfstæðisfélagið og félagið »Fram« hafi boðið 2—3 konum sæti á listum þeim, er fé.'ögin ætluðu að setja upp fyrir bæjarstjórnarkosningar þessar.— Karlmenn kunna yfirleitt vel að gera greinarmun á því tvennu, að bjóða kvenfélögum bœjarins eða einstaka konu sem einstak- ling að taka þátt í kosningum og kosninga undirbuningi. Öðru máli er að gegna um skilning frú Bríetar á slíku til- tilboði, samborið grein hennar sem birtist í Morgunblaðinu í gær og meðal annars fjallar um samvinnutilboð það, sem konur hafi fengið — en hafnað — kos- ið heldur að borast sér með sérstakan lista. Frúin er formaður Kvennrétt- indafélagsins og er svo sagt, að hennar hagsmunir og skoðanir eigi all-oftast samleið með »fé- lagsviljanum* — í öllu falli síð- an »þversumkonunum« hefir fækkað í félaginu. Og senni- lega er það þess vegna að frúin ályktar að tiiboð það sem ein- hver einstök kona fær, sé sama og að gera heilu félagi tilboð. Engu skal um það spáð, hvers- vegna frúin álítur áhrif og af- skifti kvenna við þessar bæjar- stjórnarkosningar óþarfari nú en áður. Er það af því að hún sjálf á sæti í bæjarstjórninni eins og er, eða af hinu að henni líka ekki konurnar sem í kjöri eru? Eða óttast hún að reka sig á »þversum-konur« sem hún svo nefnir, einhvern tíma ef skyndi- lega þarf að venda? Spyr sú sem ekki veit. Inntökupróf í skólann á þessu ári geta nemendur tekið hvort heldur þeir vilja um miðjan apríl í vor, eða á venjulegum tíma í haust. — Peir sem cetla að taka prófið í vor, segi til sín í tíma, helst fyrir marslok. Jón Ólafsson, (form. skólanefndar). @ Bankabyggsmjöl ^ heimamalað fæst ávalt í ^ Njálsbúð. J Sími 521. f£} KAUPSKAPUR Morgunkjólar smekklegastir, vænstir og ódýrastir, sömuleiðis I a n g s j ö I og þ r í h y r n u r eru ávalt til sölu í Garðastræti 4 uppi (Gengið upp frá Mjóstræti 4). Morgunkjólar frá 5,50—7,00 fást hvergi ódýrari né betri en í Doktorshúsinu við Vesturgötu. Verslunin Bókabúðín á Lauga- vegi 22 selur brúkaðar bækur með miklum afslætti. Ágætur olíuofn er til sölu á Lauga- vegi 5 (uppi). H ÚSNÆÐI Barnlaus hjón óska eftir 1—2 herbergjum ásamt aögangi að eldhúsi. Ekki seinna en 26 febrú- ar. Fyrirfram borgun ef óskað er. Afgr. v. á. Ung stúlka getur fengið vist á Laugarnesspítala. Semja ber við fröken Kjær yfirhjúkrunarkonu. Vinnumaun vantar að Laugalandi næstkomandi vor. Fermdur unglingur óskast til léttra morgunverka á fáment heimili. Uppi. á afgr. Prentsmiðja Þ. Þ. Clementz.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.