Vísir - 01.02.1916, Síða 1
Utgefandi
HLUTAFÉLAG
Ritstj. JAKOB MÖLLER
SÍMI 400.
Skrifstofa og
afgreiðsla í
Hótel Island
SÍMI 400.
6- árg.
teSöö* Þriðjudaginn 1. febrúar 1916.
® Gamla Bfó •
Dr. Morris.
Stór, áhrifamikill sjónleik-
ur í 4 þáttum.
Vel saminn og snildar-
lega vel leikinn af góðkunn-
um dönskum leikurum.
Aðgm. kosta 10, 30 og 50 au.
Fundur í kveld
í Hringnum
á venjulegum
stað og tíma.
Stjórnin.
Peninga-
skápur
óskast til kaups
A. v. á.
Leikhúsið.
Hadda Padda hefir nú verið
leikinn 13 sinnum og verður nú
leikið í síðasta sinn um helgina,
líklega verður leikið bœði laugar-
dag og sunnudag. — Næst verð-
ur leikinn sænskur gamanleikur,
eftir Oustaf af Gejerstam, sem
heitir Tengdapabbi.
Hagtíðindi.
Hagstofa íslands ætlar að gefa
út blað með því nafni. 1. tbl. er
komið út og í því eru skýrslur
um útfluttar tollvörur árið 1914,
hjónavíxlur, fæðingar og mann-
dauða sama ár og mannfjölgun
í landinu síðan 1910. Er það
œtlunarverk blaðsins að flytja
ýmsar hagfræðisiegar niðurstöð-
ur, sem einhverra orsaka vegna
er ekki hægt að birta í skýrsl-
um þá þegar, Óákveðið er hve
oft blaðið kemur út.
Ný stúka.
Good-templarar hafa stofnað
nýja stúku hér í bœnum. Heitir
hún Reykjavík nr. 171. Æ.-T. er
Guðm. Guðmundsson skáld. —
Stofnendur 33.
Síminn
er enn í ólagi.
Vér teljum '
það vera mikið lán fyrir kven-
þjóðina að Haraldur Árnason
hefir nú fengið allar tegundir af
tvinna.
Hafði og greitt eða látið greiða
E. Kupferle all-stóra upphæð í
janúarrránuði 1915. Er enginn
vafi talinn á því að það sé E.
Kupferle sá sem handtekinn var
í Englandi í fyrra og sakaður
um njósnir. Kupferle hengdi sig
í fangelsinu.
Mælt er að breska stjórnin
ætli að senda Bandaríkjastjórn-
inni ljósmyndir af skjölum þess-
um. —
Bæjarstjórnarkosningm»
Kosningin stóð fram undir kl. 8
í gærkvöldi eða í 10 klukkutíma og
fór þannig, aö
A-listinn fekk 634 atkv.
B- — — 163 —
C- — — 911 —
D- — — 204 —
E — 80 —
Gild atkvæði urðu þannig 1992,
en ógild voru talin 36. Kosningu
hlutu : Jörundur Brynjólfsson 909
og */e atkv., Ágúst Jósefsson 72575
Jón Þorláksson 586 atkv., Kristján
V. Guðifiundsson 5488/b atkv. og
Thor Jensen 501 atkv.
Hafa aldrei jafnmargir bæjarmenn
kosiö í bæjarstjórn, og var þó ekki
því að heilsa að veðrið væri svo
KæÍAEFRÉTmS
Afmæli á morgun:
Axel I. Dahlstedt veitingam.
Hilarius Guðmundss. sjóm.
Kr. Linnet cand. jur.
Páll Jónsson verslm.
Sigurður Símonarson verkam.
Torfh. Þ. Hólm rith,
Pórður Bjarnason kpm.
Afmæliskort með íslensk-
um erindum fást hjá Helga
Árnasyni í Safnahúsinu.
Erl. mynt
Kaupm.höfn 28 jan.
Sterlingspund kr. 17,53
100 frankar — 63,50
100 mörk ~ 67,50
Rey k j a v í k
Bankar Pósthús
Sterl.pd. 17,90 17,90
100 fr. 64,00 64,00
100 mr. 71,00 71,00
1 florin 1,68 - 1,68
Doll. 3,90 3,90
Svensk norsk kr. ÍOU/, »•
Skjöl Papens
kapteins.
Bandaríkjastjórnin krafðist þess
í haust af þýsku stjórninni að
þeir von Papen hermálaráðunaut-
ur þýska sendiherrans í Was-
hington og Boy-Ed sjóliðsfor-
ingi yrðu kvaddir heim, með því
að þeir væru ekki geðfeldir gest-
ir þar vestra.
Á Ieiðinni heim kom skip það
sem von Papen var á, við í
Falmouth á Englandi. Þar voru
skjöl þau sem hann hafði með-
ferðis rannsökuð og sum tekin
af honum. Hefir verið birtur út-
dráttur úr þeim. Sýna þau, eink-
um ávísanabækurnar, að hann
hefir oft goldið talsverðar upp-
hæðir til manna sem hafa verið
verið riðnir við sprengingar í
’ vopnaverksmiðjum o. fl.
gott, En það var kapp í kosning-
unni. Það var auðséð. Og kappið
kom alt frá verkamönnum. Stjórn-
málaflokkarnir gerðu ekkert til að
afla listum sínum fylgis, en óhætt
að fullyrða, að blaðið Dagsbrún
hafi aflað A-listanum töluvert margra
atkvæða. Hinar heiftarlegu árásir
blaðsins á þá Jón Þorláksson og
Thor Jensen liafa ekki verkað ein-
göngu eins og til var ætlast. Þá
varð einnig framkoma E-listans til
þess að vekja Fram-menn. Þeir
fóru að óttast, að tvístringur gæti
orðiö svo mikili, að þeir e. t. v.
kæmi engum að, Afleiöingin varð
sú, að Fram-menn stóðu sem þétt-
ast um lista sinn og komu tveimur
mönnum að.
Öðru máli var að gegna um
Sjálfstæðismenn. Þeir ugðu ekki
að sér. Sá misskilningur ríkti al-
ment, aö Geir Sigurðsson myndi
áreiðanlega ná kosningu, vegna
þess að hann var á 3 listum. Og
kvenfólkið hjálpaði þeim til að
[I 31. tbl.
£!§) Mýja Bfó
Carmen
eða
ástin hatrininu yfir=
sterkari.
Sjónleikur i þrem þáttum,
leikinn af mikilli snild af
Frk. Robinne og Alexandre.
(Fegursta leikkona heimsins).
Aðgöngumiðar kosta:
60, 50, 40, 30 aur.
verða undir í kosningunni með
því að setja upp lisfa sem á voru
4 sjálfstæðiskjósendur. Pólitísk var
kösningin ekki. Aðallega má gera
ráð fyrir að hún hafi snúist um
fylgi við og andstöðu gegn verka-
mönnum. Það var því eðliegt að
Fram-listinn fengi mest fylgi, næst
verkamönnum, vegna þess að sá
listi mun alment hafa verið álit-
inn að standa fjærst þeim. Og
nokkrar líkur til þess að margir
sjálfstæðiskjósendur hafi kosið þann
lista; sumir af persónulegu fylgi
við t. d. Th. J., en sumir af and-
stöðu við verkamenn, ef til vill af
þeirri ástæðu að þeir hafa haft
meiri trú á Fram-Iistanum til að
. keppa við verkamanna-listann vegna
tvístringsings sem hefir verið í
Sjálfstæðisflokknum siðan í vor.
Af kosningunni er því ekkert
hægt að ráða um styrkleika stjórn-
málaflokkanna. Auðvitað eru allar
Iikur til þess að Heimastjórnar-
flokkurinn sé sterkari, en hve miklu
munar er ekki hægt að sjá af þess-
ari kosningu. —
Viðureignin
í Mesapotamiu.
Breskur her, undir stjórn Town-
send hershöfðingia, situr/irmiluktur
í Kut el-Amara. Hjálparlið það, er
Bretar sendu þangað hefir átt or-
ustur við Tyrki og borið sigur úr
býtum. Segja nýkomin ensk blöð,
að Tyrkir haldi nú hvarvetna und-
an og að hjálparliöið eigi ekki nema
24 mílur (enskar) ófarnar til Kut-
el-Amara.