Vísir - 06.02.1916, Page 1
H L
Ritstj.
Utgefandi
utafélag
, JAKOB MÖLLER
SÍMI 400.
6- árg.
bs Sunnudaginn 6 . febrúar 1916. wstm
f Gamia Bfó •
Framúrskarandi fallegur og spennandi
sjónleikur i 3 þáttum.
Aðalhlutv. leíkur hin góðkunna leikkona
Henny Porten.
Sagan um skyrtuna.
Afar hlægllegt.
3sl. söw^vasajw.
— I. BINDI —
150 uppáhaldssönglög
þjóðarinnar með raddsetningu
við allra hœfi.
Stærsta og ódýrasta islenska nótnrbók-
in sem út hefir komið til þessa. Prentuð
í vönduðustu nótnastungu Norðurálfu á
sterkan og vandaðan pappir.
Ómissandi fyrir alla söngvini
laudsins!
Fæst hjá öllum bóksölum.
Verð 4 kr. Innb. 5 kr.
Bókaversl. Sigf. Eymundssonar.
Afmæli i dag :
Sveinbjörn Árnason stud. art.
Soffía Haraldsdóttir ungfrú.
Afmæli á morgun:
Ágúst L. Lárusson málari.
Guðr. Teitsdóttir húsfrú.
Lára Á. Níelsson húsfrú.
Þorsteinn Arnljótsson, Þórshöfn.
Afmæliskorf með íslensk-
um erindum fást hjá Helga
Árnasyni í Safnahúsinu.
Eri. mynt
Kaupm.höfn 4. febr.
Sterlingspund kr. 17,26
100 frankar — 62,25
100 mörk — 66,85
R e y k j a v í k
Bankar Pósthús
Sterl.pd. 17,55 17,55
100 fr. 63,00 63,00
100 mr. 67,25 67,00
1 florin 1,55 1,55
Doll. 3,85 3,90
Svensk kr. 102 a.
Maí
kom af fiskiveiðum í gær, en
hafði aflað mjög lítið. Á hann að
halda áfram veiðum í nokkra daga
áöur en hann fer til Englands.
Bögglapósturinn.
Með skipum Eimskipafélagsins er
gert ráð fyrir, að ekki verði teknar
ti! sendingar héðan í bögglapósti
sendingar til Þýskalands eða banda-
ríkja þess og engir bögglar, sem í
er bannvarningur. Með skipum Sam-
einaða félagsins verða fluttir allir
bögglar, sem ekki er í ull eða
gærur. Hafa félögin sjálf sett skil-
yrðin og fá vottorð póstmeistara
þar að Iútandi. En allar sending-
ar eru á ábyrgð sendanda.
fjársvik Robltns-stjórnarinnar yfir-
leitt, þótt af öðru tagi sé.
Er þetta góður minnislisti fyrir
þá Vestur-íslendinga, sem göluðu
hæst um spillingu viðskiftalífsins á
íslandi — þegar verið var að stofna
Eimskipafélagið hér um árið.
Þýsk áhrif,
Fiskur.
2 vélbátar komu hlaðnir af fiski
í gær sunnan úr Sandgerði, annar
til fisksölu bæjarins, en hinn til
fisksalanna. Fiskur fisksalanna hafði
allur verið seldur fyrirfram á 12
aura pundið, en bæjarsalan seldi á
10 aura, og var ös hjá henni þang-
að til alt var uppselt, en margir
urðu frá að hverfa fisklausir.
Bæjarsíminn.
Vísir hefir nú í nokkra daga,
nokkrum sinnum á dag, beðið um
aðgerð á símanum hjá sér, en enga
áheyrn fengið.
Hneyxlismál í Canada.
Pugsley, sem var ráðherra opin-
berra verka í ráðnneyti Sir Wilfrid
Lauriers, hefir borið ýmsar sakar-
giftir á nefnd þá, er breska stjórnin
hefir skipað til að sjá um skotfæra-
gerð í Canada. Flokkur hans
(stjórnarandstæðingar) hafa krafist
þess á þingi, að nefnd yrði skipuð
til að rannsaka það, hvort einn af
þingmönnum stjórnarflokksins hafi
verið milligöngumaður miili nefnd-
arinnar og skotfæraverksmiðjanna,
og stungið allmiklu af fé' landsins
í sinn vasa.
Þetta er ekki í fyrsta skifti að
slík hneykslismál koma upp í Canada.
( fyrrahaust urðu tugir af þing-
mönnum stjórnarflokksins aö segja
af sér, vegna þess að þeir urðu
sannir að sök um að hafa svikið
fé úr landssjóði, í sambandi við
herútbúnað fyrstu liðsendingarinnar
til Bretlands.
Þá voru og þær sakir bornar á
Bride forsætisráðherra í British Coi-
umbia, að hann hefði verið milli-
göngumaður þess, að landið keypti
bráðónýtt herskip.
Þá er og alkunnugt þinghús-
byggingarhneykslig í Winnipeg og
HoIIenska blaðið »Telegraaf«
hefir síðan ófriðurinn hófst dreg-
ið taum bandamanna. Par hafa
meðal^annars verið birtar skop-
myndir eftir Raemaeker, skop-
myndateiknara. Hafa þær mynd-
ir síðan verið teknar upp í blöð
annara landa og þótt llstaverk í
þeirri grein. Er í flestum mynd-
unum skopast að Þýskalands-
keisara eða Þjóðverjum. Þýsk
blöð hafa haft í heitingum við
»Telegraaf« út af myndunum og
[ fleiru og hugsa Raemaeker þegj-
[ andi þörfina að ófriðnum Iokn-
| um. — í haust var höfðað mál
gegn ritstjóra blaðsins, Schöcler,
fyrir það að hann hafði nefnt
þá sem með völdin fara í mið-
ríkjunum »Þorpara Mið-Evrópu».
Málinu lauk svo að ritstjórinn
var sýknaður.
Nú hefir Þjóðverjavinum tekist
að ná haldi á blaðinu og hetir
einn af aðaleigendum þess feng-
ið því til leiðar komið að fjölda
af starfsmönnum við blaðið hefir
verið sagt upp stöðunni. Blaða-
mannafélagið í Amsterdam hefir
rannsakað málið og síðan sent
út áskorun til hollenskra blaða-
manna um að taka ekki að sér
stöður þeirra manna sem reknir
hafa verið!
Yerkfallið í Hafnarfirði.
Bæjarstjórnin í Hafnarfirði hafði
kosið þriggja manna nefnd, til
þess að reyna að miðla málum
milli verkamanna og vinnuveitenda
þar út af verkfallinu. — En svo
lauk starfi þeirrar nefnar, að
verkamenn neituðu i fyrradag að
vinna með henni; annað hefir
ekki gerst í því máli.
Skrifstofa og
afgreiðsla í
Hótel island
SÍMI 400.
36. tbl.
eíg) Mýja Bíó e^§)
Hvíta mærin.
V
Skemtileg draugasaga frá
gömlu herrasetri.
— í þrem þáttum. —
Aðalhlutverkið leikur hin
fræga leikkona
Rita Sacchetto.
Leíkfélag Reykjavíkur.
Hadda Padda.
Sjónleikur í 4 þáttum eftir
Guömund Kamban.
Verður leikin í dag
í síðasta sínn I
Pantaðra aðgöngumiða sé vitjað
fyrir kl. 3 þann dag sem leikið er,
annars verða þeir
þegar seidir öðruni.
Fiskur þurkaður
með rafmagni.
Sagt er í norskum blöðum að
Norðmaður einn að nafni Niko-
las Spjelkavik, smiður í þránd-
heimi, hafi fundið aðferð til að
þurka fisk með rafmagni. Mað-
ur þessi hefir lagt mikla stund á
uppfindingar og hefir þótt takast
margt vel. Hann hefir búið til sér-
stakar vélar til notkunnar við
fiskþurkunina og einnig sett sam-
an eitthvert duft, sem hann segir
að geri fiskinn snjóhvítan. Með 8
hestöflum rafmagns kveðst Spjel-
kavik geta þurkað 25000 af fiski
á hálfum mánuði og verði fisk-
urinn, þannig þurkaður, besta
vara.
Ýmsar aðferðir hafa verið reynd-
ar til að þurka fisk við hita, en
rafmagn hefir ekki verið reynt
Jyr. — Ef aðferð þessi reynist
hagkvæm, er það vonandi að
þetta flýti fyrir því að komið
verði upp rafmagnsstöð í Reykja-
vík.