Vísir - 07.02.1916, Page 1
rym
Utgefandi
H L U T A F É L A G
Ritstj. JAKOB MÖLLER
SÍMI 400.
VIS
Skrifstofa og
afgreiðsla í
Hótel Island
SÍMI 400.
6. £rg.
Mánudaginn 7. febrúar 1916.
37. tbl.
* Gamla Bíó ^
StúRan fra Kullen.
Framórskarandi fallegur og spennandi
sjóileikur i 3 þáttum.
Aðalhlutv. ieíkur hin góðkunna leikkona
Henny Porten.
Sagan um skyrtuna.
Afar hlægllegt.
*
s*ÓY\£\>asa$ti.
- I. BINDI -
T 150 uppáhaldssönglög
þjóðarinnar með raddsetningu
við allra hœfi.
Stærsta og ódýrasta íslenska nótnabók-
in sem út hefir komið til þessa. Prentuð
i vönduðustu nótnastungu Norðurálfu á
sterkan og vandaðan pappir.
Ómissandi fyrir alla söngvini
landsins!
Fœst hjá öllum bóksölum.
Verð 4 kr. Innb. 5 kr.
Bókaversl. Sigf. Eymundssonar.
HÉRMEÐ tilkynnist vinum og
vandamönnum að okkar elskuleg
móðir og tengdamóðir, Agnes
Kjartansdóttir, andaðist að heimili
sínu, Lækjarhvammi, þ. 6. þ. m.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Börn og tengdabörn.
JARÐARFÖR minnar hjart-
kæru eiginkonu, Ouðríðar f>órð-
ardóttur frá Ráðagerði, fer fram
miðvikudaginn 9. þ. m. og hefst
kl. llVa f* hád. frá heimlli hinn-
ar látnu.
Oddur Jónsson.
Þakklætisávarp.
Hér með votta eg innilegasta
þakklæti öllum þeim sem með ná-
vist sinni og heimsóknum styrktu
mig í banalegu og við jarðarför
minnar heitt elskuðu móður,
þennan og annan þeirra velgern-
ing henni og mér auðsýndan,
bið eg góðan guð að Iauna öll-
um þeim þegar mest á liggur.
5. febr. 1916. Njálsg. 12.
El'in Jónsdóttir.
Símskeyti
frá fréttaritara Vísis
Khöfn 5. febr. 1916.
Þegnar miðríkjanna, sem dvalfð hafa í Búkarest,
eru að flytja sig þaðan í burtu.
Austurríkismenn hafa skotið á bæi á austur-
strönd ítalíu.
Ef fregnin um brottför miðríkjaþegna lrá Búkarest er rétt, þá ælti
að mega ráða það af henni, að Rúmenar muni innan skamms skerast í
leikinn með bandamönnum. Önnur áslæða til brottflutnings þessa varla
hugsanleg.
Khöfn 6. febr. 1916.
Zeppiinsloftskipíð L 19 hefir sokkið f Norður-
sjónum. Hafði verið skotið á það frá holiensku vígi.
í fijótu bragði verður ekki séð hverja ástæðu Hollendingár hafa
haft til að fjandskapast við loftskip þetta; hugsanlegt er þó, að loftskipið
hafi verið að athuga hernaðarathafnir og víggirðingar Hollendinga með
meiri athygli en þeim hafi verið um gefið.
Afmæli á morgun:
Benedikt Björnsson kennari.
Guðrún Jónasson kaupm.
Kjartan Sæmundsson verkam.
Mary Blanche ungfr.
Jakob Einarsson stud. theol.
Júlíana G. Brynjólfsdóltir húsfrú.
Peder Lovald kaupm,
Sigr. E. Torfadóttir skrifari.
Þorbjörg Gunnlaugsd. ekkjufrú.
Afmæliskort með íslensk-
um erindum fást hjá Helga
Arnasyni í Safnahúsinu.
Erl, mynt.
Kaupm.höfn 4. febr.
Sterlingspund kr. 17,26
100 frankar — 62,25
100 mörk — 66,85
Rey kj a v í k
Bankar Pósthús
Sterl.pd. 17,55 17,55
100 fr. 63,25 63,00
100 mr. 67,50 67,00
1 fiorin 1,55 1,55
Doll. 3,85 3,90
Svensk kr. 102 a.
Ingólfur
Veðrlð f dag.
Vm.loftv.727 n. andvari (( 0,8
Rv. « 727 logn U -5-1.0
íf. 1 l 721 v. hvassv. U -5-1 »5
Ak. (i 724 n.v. andv. ii -H,0
Gr. lt 688 n. kul ii -r-5,5
Sf. i( 721 n. kaldi il 1,2
Þh. tt 731 vsv.st.kaldi. u 4,2
Fyrirlestur
Hermanns Jónassonar, sem hann
hélt í gær í Báruhúsinu um dul-
ræn efni, var mjög vel sóttur. Sagði
Hermann þar frá mörgum merki-
legum draumum, hugboðum og
fyrirboðum, og var því mjög vel
tekið.
kom í gær frá Borgarnesi með
norðan og vestanpósl.
Leikhúsið.
Hadda Padda var leikin f gær í
14. sinn, fyrir troöfullu húsi. Al-
þýðusýning verður á morgun.
Skipafregnir.
B o t n í a fór frá Leith á laugar-
daginn.
I s 1 a n d kom að vestan í nótt
til Hafnarfjaröar, fer ekki héðan fyr
en á morgun.
C e r e s fór af Skagafirði í fyrra-
dag og hafði ekkert getað athafnað
sig á Sauöárkróki.
Earl Hereford kom frá
Englandi með póst.
Nýja Bíó <s®
Hvíta mærin.
Skemtileg draugasaga frá
gömlu herrasetri.
— í þrem þáttum. —
Aðalhlutverkið leikur hin
fræga leikkona
Rita Sacchetto.
Leikfélag Reykjavíkur.
Hadda Padda.
Sjónleikur í 4 þáttum eftir
Guðmund Kamban.
Alpýðusýning
á morgun (þriðjudag)
kl. 8 síðd.
Aðgöngumiðar verða seldir í,
Iðnó á morgun og kosta:
Betri sæti 65 aura.
Alm. — 50 —
Standandi 40 —
Barnasæti 25 —
Afmælis-
fagnaður
st. Hlfn M 33 kl Qlk
í kveld.
Félagar fjölmenniðl
Kornvörukaup.
Um miðjan síðastliðinn mánub
var símað frá Bukarest til enskra
blaða, að sendiherra Breta þar
eystra hefði nýlega keypt þar
kornvörur fyrir 10 milj. sterl.pd.
það kann að virðast undarlegt
að Bretar séu að kaupa korn í
Rúmeníu, því þeir eiga óhægt með
að ná því þaðan, en þeir gera
það að líkindum til þess, að varna
því, að kornið lendi til þjóðverja
eða bandamanna þeirra.