Vísir - 17.02.1916, Síða 2

Vísir - 17.02.1916, Síða 2
VÍSIR VISIR A f g r e i ð s 1 a blaðsins á Hótel Island er opin frá kl. 8—8 á hverj- um degi. Inngangur frá VallarstrætL Skrifstofa á sama stað, inng. frá Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá kL 2-3. Sími 400.— P. O. Box 367. Smyglun í Hollandi. Amerískur blaðamaður, sem dval- ið hefir um hríð í Hollandi, lætur mikið yfir því, að laumað sé vör- um þaðan til Þýskalands. Segir hann að margir menn séu nú orðn- ir auðugir, sem ekki áttu áður mál- ungi matar. Her Hollendinga á aðallega að gteta þess, að smyglun eigi sér ekki stað. Og er sagt að liðs- mðnnum og foringjum verði það á, að loka augunum þegar smýgl- unum kemur þaö vel. Varðmanns staðan við landamærin er talin all- arðvænleg. Eru dæmi til þess að hafst hafi upp úr henni um 1000 krónur á einni nóttu. Smyglar hafa neytt margra ráða til að koma vörum yfir landamærin* Það var lengi vel alsiða að á hverri jámbrautarlest, sem kom til Hol- lands frá Þýskalands, voru þrefalt fleiri þjónar en þurfti. Þessir menn átu og drukku lyst sína þegar til Hollands kom, og höfðu heim með sér eins mikið af vörum og lög frekast leyfðu. Varð þetta feröalag til þess að gefin voru út lög um það hve margir jámbrautarþjónar mættu vera á hverri lest. Eitt sinn fór kaupmaður nokkur í Rotterdam að senda feiknin öll af Kvennhetjan frá Loos. --- Frh. an um hann og taka handa hon- um gröf?“ Hann varla lcit á mig cn sagði á góðri frönsku: „Haldið þér, að eg sé líkkistu- 8miður ?“ ,Nei, það veit eg“, svaraði eg döpur, því háðsyrði hans sœrðu tilfinningar mínar, „en þér hafið ajálfsagt einhverja menn, sam gcta, gjört það°. ,Okkur varðar ekkert um þetta. það þarf heidur enga kistu utan um föður yðar. Ein- hvcrjir af föngunum geta tekið gröfina, eg skal gefa skipun um það. þér megið gjöra prestinum aðvart og svo er það mál út- kljáð". Hermaður fór raeð mér í fang- legsteinum til Þýskalands. Voru svo mikil brögð að því, að gár- ungi einn þar í borginni sagði að það liti helst út fyrir að hver ein- asti hermaöur á Þýskalandi ætti að fá legstein. Loks komst stjómin að því, að legsteinarnir voru ekkj annað en olíuflát. Um eitt skeið var mikið flutt af sápu frá Hollandi lil Þýskalands, en *oks tóku tollþjónarnir eftir því, að ekki var hægt að þvo úr sápunni Hún var nærri því eingöngu fitu- efni. Eitt var það sem hollenska stjórn- in tók eftir seint og síðarmeír, var það, að hollensk skip, sem sigla til þýskra hafna, komu venjulega aftur atkerislaus eða skrúfulaus. Kváðust skipstjórarnir hafa mist þessa hluti. En þeir höfðu selt þá Þjóöverjum vegna þess að þeir voru úr kopar. Fengu Hollendingar jámatkeri til að nota á Ieiðinni heim. Um skurðina á Hollandi ganga stórir bátar og hafa stórar vatnstunnur á þilfari. Bátar þessir koma stundum til Þýskalands, og er taliö að á þeim bátum hafi aldrei verið vatn á tunnunm, nema ef til vill á leið frá Þýskalandi. Ann- ars hafi þær verið fullar af olíu. Til að ráða bót á smygluniuni hefir stjórnin ákveðið að banna að geyma vörubirgðar á 5 kíló- metra löngu svæði hjá landa- mærum Þýskalands, og láta herinn vera einvaldann á þessu svæði. Þýskir friðarskilmálar. Eftir ameriakum blööum. í amerískum blöðum er skýrtfrá síöustu friðarboðum Þjóðverja á þessa leið: Þýskaland er reiðubúið að sleppa öllu tilkalli til Kiautschau og ástr- ölsku eyjanna, sem Þýskaland hefir átt; það vill einnig gera þann samn- ing við England, að það fái ný- lendu eina í Afríku, sem Þjóðv. hafa átt, eða aörar landeignir. Þýskaland krefst: 1. Viðurkenningar á því, að Tyrkland sé undir þýskri vernd og hafi Þjóðverjar fult vald til að auka og efla þýska verslun í Litlu-Asíu og Arabíu. 2. Að Þýskaland fái Kúrland. 3. Pólland verði sjálfstætt kon- ungsríki, en konungur verði þar þýskur prins, Austurríki láti nokk- uð af Galiztu af hendi við þetta nýja konungsríki. 4. Rúmenía fái Bessarabfu frá Rússlandi og Búkovfnu og Tran- sylvantu frá Austurrfki. Þýskur kafbátur í Themsárósum. —:o:— Frá Berlín hefir verið tilkynt, að " þýskur kafbátur hafi sökt vopnuðu bresku varðskipi, einu belgisku og þremur breskutn fiskiskipum, sem notuö voru sem varðskip. — Þetta á að hafa skeð yst í Themsárós- um. Stóra franska lánið í franska þinginu hefir verið samþykt, að heimila stjórninni að verja alt að 180 milj. til að inn- leysa vaxtamiða af stóra franska 5% láninu (sigurláninu) fyrir fyrsta ársfjóröunginn. önnur lönd hafa T I L M I N N I S: Baðhúsið opið v. d. 8-8. ld.kv. til 11 Borgarstakrifjt. i brunastðð opín v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2 og 4-7 Bæjargjaldk, Laufásv. ki. 12-3 og 5-7 v.d Islandsbanki opinn 10-4. K, F. U. M. Alm. samk. sunnd. 81/, siðd Landakotsspit Sjúkravitj.tími kl. 11-1. Landsbankinn 10-3. Bankastjóm til við- tals 10-12 Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3 Landssiminn opinn v. d. daglsngt (8-9) Helga daga 10-12 og 4-7 Náttúrugripasafnið opið 1V.-21/, siðd. Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1 Samábyrgðin 12-2 og 4-6. Stjómarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d. Vífilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1 Þjóðmenjasafnið opið sd. j>d. fmd. 12-2 Okeypis lækning háskólans , , Kirkjustræti 12: Alm. lækningar á þriðjud. og föstud c , . kt 12-1. Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud. kL 2-3. Tannlækningar á þriðjud. Id. 2—3. Augnlækningar f Lækjargötu 2 á mið- vikud. kl. 2—3. Landsféhirðir kl. 10—2 og 5—6. Islenskar fiskibollur fási hjá Jóni frá Vaðnesi. lagt sinn skerf til lánsins svo sem hér segir: Engiand 602 miljónir, Holiand 20 milj., Spánn 12 milj,, Sviss 80 milj., Grikkland 4 tnilj. og 700 þús., Danmörk 4 milj., Portú- gal 47j milj., Noregur 9 miljónir. elsið og liðsforlngi benti þar á tvo gamla menn frá Loos, sem áttu að fara með mér tíl að taka gröfina. „Ekki nema tveir, þeir eru svo gamlir og hrumir". „Ó, þeir geta vel unnið, það eru ekki annað en ólíkindalœti þegar þeir barma sér“. Samt lofaði hann mér eins og elnhverri náð, að hann skyldi lána mér fjóra menn næsta dag til að bera líkið til grafar. Svo fór eg til prestsins. Var honum leyft að jarðsyngja föður minn, en þýsk- ur hermaður átti að fylgja hon- um. Eg kom heim aftur en þorði ekki að segja mömmu minni að mér hefði verið neitað um kistu. Hvað átti eg til bragðs að taka ? Mér kom þá til hugar að reyna að búa tii kistu sjáif. Eg kallaði á bróður minn og sagði honum fyrirætlun mína. þó hann væri ekki nema 10 ára gamall þá var hann hraustur og duglegur dreng- ur og við lögðum bæði af stað í næsta hús því þar hafði búið trésmiður. Húsið var að mestu leyti í rústum, en smíðastofan var að mestu óskemd og þar var vlður og verkfæri. Eg bjó til dálítinn uppdrátt og við tók- um nú að saga og negla saman kistu eins vel og við gátum. Tárin hrundu niður eftir kinn- unum á mér meðan eg var að smíða og þegar eg minnist þess- ara stunda þá er naumast að eg geti haldið á pennanum. Loksins var kistan tilbúin og tveir borgarar úr Loos, fangar þó, hjálpuðu okkur að kistuleggja. Stundu eftir hádegi komu her- menn með prestinn og fjóra fanga sem áttu að bera kistuna. Hvet1 veit nema þessi gamalnienni hafi öfundað föður minn af hvíld- inn! Eg var hrædd við að sjá örvænt- ingu móður minnar, svo eg vildi ómögulcga að hún fylgdi föður mínum til grafar. Hún hélt því kyrru fyrir hejma; börnin voru hjí henni og reyndu að hugga hana, en eg gckk aleín á eftir kistunni. þegar eg heyrði fyrstu mold- arhnausana falla niður á kistu- lokið, hélt eg að mundi líða yfir mig * * *• þegar presturinn og hermenn- irnir voru farnir burt úr kirkju- garðinum, kraup eg niður við leiði föður míns og lofaði að hefna hans — og guði sé lof, þó veik sé, þá hef eg samt átt kost á að sýna hvað mikið eg hata þjóðverja. Daginn áður en faðir minn var jarðaður hafði þýskur liðs- foringi komið inn til okkar og sagst ætla að búa hjá okkur. En mér hafði tekist að koma hon- um burt með því að sýna hon- um að í húsinu væri lík. En nokkrum dögum seinna komumst við ekki undan að hýsa annan liðsforingja og þjóna

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.