Vísir - 28.02.1916, Síða 1

Vísir - 28.02.1916, Síða 1
Utgefandi HLUTAFÉLAG Ritstj. JAKOB MÖLLER SÍMI 400. VISIR Skrifstofa og afgreiðsla í Hótel Island SÍMI 400. 6. árg. Mánudaginn 28. febrúar 1916. í • Gamia Bíó * Sprengingin l Ástarleikur í 3 þátlum, leikinn af þektum dönskum leikurum, svo sem Hr. Einari Zangenberg. Hr. Anton de Verdier. rrk, Ellen Rassow. i ____Leíkfélag Reykjayíkur. Miðvikudaginn 1. mars. Tengdapabbi. Sjdnleikur í 4 þáttum eftir Gustaf af Geijerstam. Pantaðra aðgöngumiða sé vitjað fyrir kl. 3 þann dag sem leikið er, annars verða þeir þegar seldlr öðrum. Síðustu freguir af ófriðuum Eins og kunnugt er og áður hefir verið skýrt frá hér í blað- inu, hafa daglega borist hingað fregnir af ófriðnum síðan síminn bilaði. Hafa símamenn hér tæki til að veita móttöku loftskeytum sem send eru frá Englandi, Frakklandi og Pýskalandi, en ekkert af þessum skeytum hefir verið birt opinberlega. En vegna þess að ýmsar kviksögur ganga um bæinn sem settar hafa verið í samband við loftskeyti og lagður trúnaður á þær, þá mun Vísir framvegis reyna að birta það markverðasta af þessum fréttum. Ein kviksagan, sem um bæinn gengur, er sú, að Svíar séu komnir í ófriðinn eða rétt að því komnir. Saga þessi er aiveg til- hæfulaus. Eini flugufóturinn fyrir henni er sá, að í loftskeytum var fyrir nokkrum dögum kveðið svo að orði: Konungurinn og sænska þjóðin æskir einkis framar en aö friður geti haldist, »en vér erum reiðu- búnir til að hleypa af fallbyssum vorum þegar á þarf að halda . Og síðar hefir verið kveðið svo að orði, að öllum hugs- andi Svíum, jafnt hægrimönnum og frjálslyndum sé Ijós sú hætta sem ríkinu stafi af því að ganga í bandalag við Þjóðverja. Aðrar helstu fregnir eru þetta: Þjóðverjar hafa tilkynt að þeir hafi nýlega unn- ið allmikinn sigur á vesturvfgstöðvunum og tekið 8 000 fanga. 3^* söt\$\)asa$x\. - I. BINDI — 150 uppáhaldssönglög þjóðarinnar rneð raddsetningu við allra hcefi. Stærsta 0fl ódýrasta íslenska nótnabók- in sem ut hefir komið til þessa. Prentuð von uöustu nótnastungu Norðurálfu á sterkan og vandaðan pappir. Ómissandi fyrir alla söngvirti landsinsl Feest hjá öllum bóksölum. Verð 4 kr. Innb. 5 kr. Bókaversl. Sigf. Eymundssonar. Ibúð. I 3 4 herbergi og eldhús ósk- ast til leigu frá 14. maí. Hjörtur A. Fjeldsted, (símastöðin á Auðnum). sem allir vilja er altaf til ' Nýhöfn, Frakkar tilkynna 26. þ. m, að þeir hafí brotið á bak aftur áhlaup Þjóðverja f Champagne og tekið 340 fanga. Rúmenar hafa allan her sinn vfgbúinn og hafa tekið í herþjónustu jafnt annara þjóða menn búsetta þar í landi, sem landsmenn. Sarrail, hershötðingi Frakka, kom til Aþenu- borgar þann 20. þ. m. og varð sá árangur af þangað komu hans, að nú er fengið fult samkomulag milli bandamanna og Grikkja. Sagt er að misscettið milli Búlgara og Þjóðverja fari mjög í vöxt og að Þjóðverjar sýni Búlgururh mesta yfirgang. Nýlega hafi komið til blóðsúthellinga. Pjóðverjar neituðu búlgörskum hermönnum um fóður handa hestum sínum og tóku þá Búlgarar 5 Þjóðverja og skutu þá. Verð á matvörum er orðið afskaplega hátt í Konstantínópel og horfir þar til vandræða og jafnvei uppreistar. Wilson forseti hefir varað Bandaríkjaþegna við því að ferðast með vopnuðum kaupförum ófriðar- þjóðanna. Farþegar sem ætluðu með franska skipinu Es- pagna frá Ameríku fengu nafnlaust aðvörunarbréf eins og farþegar á Lúsitaníu. Aður en skipið Hollandía lagði af stað frá Bandaríkjunum, voru teknir úr því 200 pokar af togleðri, sem tekist hafði að Eauma út í það, og auð- vitað hafa verið ætlaðir Þjóðverjum. 'Yfirleitt verður lítið ráðið af fregnum sem berast frá vígveil- inum í Frakklandi, því að þaðan koma vanalegast gagnstæðar staðhcefingar frá Frökkum og Pjóðverjum. Frh. á 4. síðu. 58. tbl. f4ýja Bfó Hax moO bbííO. Framúrskarandi gamanleikur í 3 þáttum leikinn af Pathé Fréres í París. Aðalhlutv. leikur hinn óviðjafnanlegi gamanleikari Max Linder, Jaröarför minnar kæru móður, Idu Nielsen, er á* kveðin mlðvikudaginn 1. mars. Hefst með hús- kveðju kl. e. h. frá heimlli okkar Laufásveg 43. Inger Östlund. Appelsínurnar í lýhöt'n eru svo dæmalaust svalandi og sætar. Frá Grikkjum Skuludis forsætisráðherra Grikkja hefir nýlega á þingi haldið allharð- orða ræðu í garð bandamanna, mintist þar á að hlutleysi landsins hefði verið brotiö með því að Korfu hefði verið tekin og kastal- inn Kara Burnu. Hann kvað Grikki ekki mundu taka ti! vopna með bandamönnum jafnvel þótt banda- menn héldu áfram aðþröngva kostum þeirra. Hingað til hafa ítalskir hermenn ekki verið settir á land í Grikk- landi, en nýlega var send sveit manna frá Ítalíu til Korfu, og átti hún að aðstoða í því að koma skipulagi á her Serba sem þar er. Grikkjum er sérstaklega illa við það að ítalir skuli komnir í land þeirra og hefir óvild þeirra ti! bandamanna vaxið við það. Grikkir telja ftall keppinauta sína bæði í Albaníu og um eyjarnar í Grikklandshafi, og er meinilla við að þeim vaxi fiskur um hrygg. Gerhveitið góða, er aftur komið í N ý h ö f n.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.