Vísir


Vísir - 05.03.1916, Qupperneq 1

Vísir - 05.03.1916, Qupperneq 1
Utgefandi HLUTAFÉLAG Ritstj. JAKOB MÖLLER SÍMl 400. VISIR 6. árg. Sunnudaginn 5. mars 1916. • Gamla Bíó • Leiksystkinin. Fallegur og efnisríkur sænskur ástarleikur í 2 þáttum. Aðalleikendur eru: Lilli Beck og Richard Lund. Hið margumrædda franska Stórskotalið við Aisne Leikfélag Reykjavíkur. í kvöld og þriðjudagskvöld Tengdapabbi, Sjónleikur í 4 þáttum eftir Gustaf af Geijerstam. Pantaðra aðgöngumiða sé vitjað fyrir kl. 3 þann dag sem leikið er, annars verða þeir þegar seldlr öðrum. JARÐARFÖR Sigurgeirs Kristjánssonar fer fram Þriðjudaginn 7. mars kl. 12 á hád. frá Frikirkjunni. Olafur Sigurgeirsson. Þórey Árnadóttir. (Jr loftinu. Trebizond. Frá Róm er símað að Trebizond sé nú algerlega ,, innilukt. Margir kafbátar eru á sveimi í Svartahafinu fyrir framan borg- ina, en herliö Rússa á landi. Talið er að borgin muni ekki geta varist lengi. Setuliðið vantar mat og skotfæri. Bæjarbúar eru flúnir suður eftir. Mikið af Kurdum hefir gengið í lið með Rússum. Kákasus. Rússar tilkynna að orustur standi þar enn, en að lið þeirra eigi þar ilt aðstöðu sökum þess áð allir vegir séu hálfófærir vegna rigninga. Þeir hafa tekið Bitliss meö áhlaupi og náð 6 fallbyssum og handtekið marga menn, og þar á meðal marga foringja. Italir tilkynna að mikill snjór sé í fjöllunum hjá þeim, en samt haldi stórskotaliðsbardagar áfram og séu einna snarpastir hjá Oörtz. Yemen. 2. mars gaf herforingjaráð Tyrkja út tilkynningu um það, að orusta hefði staðið hjá Yemen (Arabíu) og hefðu fallið þar 170 Bretar og þar á meöal hershöfðinginn. Enska stjórnin segir ekkert hæft í því að orusta hafi staðið á þeim stað. Ráðherrafundur. Forsætisráðherrar Norðurlanda ætla að halda fund með sér f Kaupmannahöfn 13. mars. Þann fund sækja og utan- ríkisráöherrar landanna. Flugvélar. Frá Saloniki hefir frést að 7 franskar flugvélar hafi flogið til Smyrna og varpað sprengikúlum á herbúðir þar. Þær komu allar aftur heilu og höldnu eftir 300 mílna ferð. Á vesturvígstöðvunum eru háðar stórskotaorustur. Fyrir norðan Verdun er barist hjá Doumond. Frakkar hafa nokkurn hluta þorpsins á sínu valdi og hafa náð aftur ýmsum stöðvum, er þeir höfðu mist. Kirkju-koncert heldur Bollur! Fyrsta flokks boliur fást í kvöld og á niorgun í bakaríinu P á 11 Isólfsson í Dómkirkjunni 5. mars 1916 kl. 7. Hr. Pétur Halldórsson aðstoðar. á Hverfisgötu ^ 41 S. A. Gunnlaugsson. Aðgöngumiðar verða seldir í dag í Good-Templarahúsinu k!. 10—12 og 2—5 og kosta 50 aura. Kirkjan opnuð kl. ó1/,. Dilkakjöt saltað, Rjúpur og Islenskt Smjör er best að kaupa í Slátttvjé(agsvn$ Sími 211. Hafnarstr. 19. Sunnudaginn 5. mars 1916 (f dag) kl. 9 síðdegis flytur Prófessor Jon Helgason fyrirlestur í Bárubúð: Pegar Reykjavík var fjórtán vetra Aðgöngumiðar á 50 aura verða seldir við innganginn (ef rúm leyfir). —Húsið opnað kl. 81/,, síðdegis. ■■■■..... Skrifstofa og| afgreiðsla í Hótel Jsland SÍMl 400. 64. tbl. ráýja Bíó Fyrsta, annað \ °g þrsðja sinn. Sjónl. í 3 þátt. um æfintýri leikkonu. Aðalhlutv. leika: Betty Nansen, Sv. Aggerh. Leikurinn fer fram á enskum baðstað fyrir ófriðinn. Sauðskinn vel verkuð og lituð selur Jóní SölvM. Búð til leigu á úesta stað í úænum. — Afgr. v. á. — Afmæii á morgun: Anna S. Pétursson, húsfr. Anna Guðm.d., húsráðandi. Níels Andrésson, bóksali. Sigrún Jónsdóttir, húsfr. Afmæliskort með íslensk- um erindum fást hjá Helga Árnasyni í Safnahúsinu. Páll Isólfsson heldur í kvöld kl. 7 organhljóm- Ieik sinn er boðaður hefir verið. Páll hefir verið svo óvenju hepp- inn að njóta tilsagnar eins hins frægasta orgelsnillings Þjóðverja F r. S t r a u b e i Leipzig, en þeirrar tilsagnar fá ekki notið aðrir en þeir, sem þykja sérlega efnilegir. — Orgelhljómleikar eru nú orðnir mjög vinsælir hér í bænum og hafa með réttu verið kallaðir »hljómmessur«. Má búast við að kirkjan verði full í kvöld. — Pétur Halldórsson aðstoðar með einsöng. Austfirðingamót var haldið í Iðnó í fyrradag — það 12. sem haldið hefir verið hér og það fjölmennasta.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.