Vísir


Vísir - 11.03.1916, Qupperneq 4

Vísir - 11.03.1916, Qupperneq 4
I VÍSIR Háskólahátíðin sem stúdentar háskólans stofnuðu til í Bárubúð á sprengidagskvöld, hafði verið fjölmenn og skemtileg. Þátttakendur um 130. Hófst hátíð- in með borðhaldi. Formaður Stúd- entafélags háskóians, Gunnar Sig- urðssor* frá Selalæk, setti hátíöina og bauð menn velkomna. Steinþór Guðmundsson talaði fyrir minni háskólans og kennaranna, rektor háskólans, Guðm. próf. Hannesson fyrir minni stúdentanna og Gunnar Sigurðsson fyrir minni kvenna. Síðar. var dansað fram á morgun. 17. júní hélt samsöng í gær og í fyrra- dag. Sem vænta mátti, var aðsókn mikil og skemtun góð. Sungu þeir einsöngva: Einar Indriðason, Pétur Halldórsson og Ragnar Hjörleifs- son. Þótti allur söngurinn fara vel, en einkum þótti mikið koma til Sommernat (eftir Myrberg), Olaf Tryggvason (Reissiger) og Fred- mans song nr. 33 (Bellmann). Loftskeytin.} Mörgum manninum þótti ein- kennilegt, að svo brá viö, að þeg- ar blööin tilkyntu að sæsíminn væri kominn í lag, þá höfðu þau engin skeyti að birta, En svo er tr.áI tneð vexti, að efamál et að leyfilegt sé að birta Ioftskeytin, þeg- ar síminn er í lagi, nema þá að íandstjórnin láti gera það. Botnvörpungar 2 komu til bæjarins í nótt, báðir nýkeyptir frá Hollandi. Eru það fiskiveiðafélögin Haukur og Defensor sem þá eiga. Heita þeir Porsteinn Ingólfsson og Pór. Skipafregnir. G u 11 f o s s fór frá Leiíh á leið til Kaupmannahafnar 4. marz I s1 a n d kom í morgun frá útföndum. Hafði skipið meðferðis frá Vestmannaeyjum lík Jóhann- esar Einarssonar stýrimanns af Valtý. C e r e s fór frá Leith í gær á leið hingað (norður um land). B o t n i a fer að líkindum frá Leith 4. þ. m., beina leið hingað. Frá útlöndum komu á Islandi: Gustaf Grön- vold, Hanson kaupmaður, Han- sen bakari, Magnús Magnússon kennari, Vestskov verslunarstj. og kona hans o.fl. Frá Ameríku kom Jón Sigurðsson fyrrum fó- getafulltrúi. Verkamannastr aumur og v i n n u e k I a . Eitt af mörgu sem verkamanna- félag þessa bæjar þyrfti að íhuga og leita að þeim leiðum, sem framkvæmanlegastar væru til þess að geta veitt mótspyrnu, er hinn mikli verkamannastraumur er hingað stefnir á hverjum vetri, og hrifsar að meiru eða minna leyti atvinnu þá, sem hér er fá- anleg í bænum síðari hluta vetrar og vor úr höndum bæjarmanna. Margt af þessum mönnum er hingað safnast eru sveitabændur, er fara hingað til þess að afla sér peninga, þann tímann sem þeir hafa minst að gera við heimilið, eða þá vinnumenn þeirra sem sendir eru hingað af sömu á- stæðum. Ennfremur kemurhing- að fjöldi lausamanna, að vestan, austan og norðan, alstaðar að, að - heita má landshornanna á milli. En það er ekki nóg með þaö, að þessir menn hrifsi atvinnuna úr höndum verkamanna bæjar- ins, heldur íþýngja þeir þeim persónulega með dvöl sinni hér. það mun ekki svo sjaldgæft, að þessir menn, er þeir hafa komið sér inn hjá kunningja, vini, frænda eða gömlum sveitunga, — slíku er þráfalt hampað þegar verið er að koma sér fyrir — hafi gætt þess vel að láta ekki ofmikið af hendi rakna, er þeir hafa farið,. fyrir aðhlynning og önnur óþæg- indi er þeir hafa valdið. Frá þessu eru. auðvitað heiðarlegar undantekningar. það mun ekki fjarri sanni, að allflesta daga, frá byrjun apríl til júníloka gangi eða hafi gengið undanfarin ár, einhverjir af bæjar- búum að meiru eða minna leyti vinnulausir vegna þessara að- komumanna, sem margir hverjir vinna daga og nætur þegar þess er kostur, meðan þeir eru og því miður munu hafa fundist hér þeir vinnuveitendur er hafa fremur tekið þessa menn en bæjarmenn, þó gnægð þeirra hafi verið á boðstólum. Af hverju það hefir stafað, skal eg láta ósagt, en varla mun það fjarri að geta þess til, að það hafi átt sér stað, að þeir hafi boðið sig fyrir lægra kaup en bæjarmenn, einkum á helgi- dögum. Eg hefi oft unnið hér að eyr- arvinnu, uppskipun o. s. frv. og hefir mér ekki fundist að þeir innu að jafnaði betur en bæjar- menn, svo varla getur það stafað af því, að þeir gangi fyrir hjá vinnuveitendum, auðvitað hefi eg séð suma þeirra gæta þess vel að keppast sem best við meðan yfirmenn sjá til, en slíkir menn finnast alt af innanum. Eins og nú standa sakir væri þess full þörf að geta beturtrygt verkamönnum bæjariss þá atvinnu sem vinnuveitendur hér geta veitt því ekki verður því neitað, að nú sem stendur kemur dýrtíðin harð- ast niður á verkalýð kaupstað- anna. Sveitamenn þar á móti standa vel að vígi, vegna árgæsku og hins afarháa verðs er þeir hafa fengið fyrir afurðir sínar. Frh. Víkingarnir frá Canada Svo heitir hersveit sem verið er að stofna í miðfylkjunum í Canada. Eiga eingöngu að vera í henni menn frá Norðurlöndum eða af norrænu bergi brotnir. Að líkind- um veröa einhverjir íslendingar í þeirri sveit. Wilson sigrar. Wilson Bandaríkjaforseti tók illa í tilkynningu Þjóðverja um að eftir 1. marz mundu þeir skoða öll vopnuð kaupför óvina- þjóða sem herskip. Hafði for- setinn lýst yfir því, að ef nokk- ur Bandaríkjaþegn léti lífið við það að vopnuðu kaupfari vœri sökt, þá mundi hann hætta öllu stjórnmálasambandi við Pýzka- land. Margir þingmenn í Banda- ríkjunum voru á gagnstæðri skoðun í þessu máli. Vildu þeir láta aðvara menn opinberlega við að taka sér far með vopnuðum kaupförum. Krafðist Wilson þá að greitt væri atkvæði á þingi hvort það skyldi gert eða ekki. Stóð fyrst rimma um málið í efri deild, því þar hafði Gore þing- maður úr flokki Wilsons komið fram með tillögu um að vara menn við vopnuðum kaupförum. Lauk deilunni svo að tillaga Gore var vísað frá með 68 atkv. gegn 14 atkv. Eftir því sem skýrt var frá í loftskeytunum fór fram atkvæða- greiðsla um málið í neðri mál- stofunni 8. þ. m. Vann Wilsön þar einnig sigur með miklum at- kvæðamun. Gullbrjóstnál með gulum steini tapaðist á háskólabailinu í Bárubúð. Skilist gegn fundarlaunum í Póst- hússtræti 13. [122 Tapast hefir »tugakvarði á leið frá Stýrimannaskólanum að Báru- búð, skilist gegn fundarlaunum á afgr. Vísis. [123 Tapast hefir Iykill. Skilist í Þing- holtssiræti 11 gegn góðum fundar- launum. [124 Morgunkjólar smekklegastir, vænst- ir og ódýrastir, sömuleiðislangsjöl og þríhyrnur eruávalt til sölu í Garða- stræti 4 uppi. (Gengið upp frá Mjóstræti 4). [1 Morgunkjólar góðir og ódýrir fást og verða saumaöir á Vesturgölu 38 niðri. [2 Morgunkjólar hvergi betri né ó- dýrari en í Doktorshúsinu (Vesturg.) [3 Brúkaðar sögu og fræðibækur fást altaf með niðursetlu verði í Bóka- búðinni á Laugavegi 22. [40 Mjólkurhúsið á Grettisgötu 38 hefir nú hina ágætu Garðamjólk allan daginn. — Mjólk frá degin- um áður, óskemd, selst með afslætti. [89 Sófi eða dívan óskast til kaups eða leigu. Afgr. v. á. [113 Ferðataska stór og góð óskast til kaups. Afgr. v. á, [114 Brúkuð togarastígvél eru til sölu á Vesturgötu 30 (hjá Einari Jóns- syni skósmiður. [115 Gott rúmstæði til sölu með mjög vægu verði í Grjótagötu 14 B, kjallaranum. [125 3 herbergi handa einhleypum til leigu á Laugaveg 42. Semjið við Guðm. Egilsson. [84 2 herbergi fyrir einhleypa til leigu frá 14. maj. Afgr. v. á. [110 íbúð vantar mig 14. maí n. k. 2—3 eða 4 herbergi. Sigurjón Jónsson, pappírs- og ritfangaverzl. Laugaveg 19. Sími 504. [112 Kona með son sinn upp- kominn óskar eftir 2 herbergjum með eldhúsi eða aðgar.gi að eld- húsi, hetst í Austurbænum, frá 14. maí. Afgr. vísar á. [120 1 herbergi með húsgögnum ósk- ast strax. A. v. á. [121 Tvær duglegar stúlkur óskast í vist frá 14. maí. L. Bruun Skald- breiðe. [82 ----^----------------------------- Stúlka, dugleg og þrifin, og vön matartilbúningi og öllum húsverk- um óskast í vist 14 maí. Hátt kaup í boði. Frú Hallgrímsson, Vesturgötu 19. [102 Rösk og áreiðanlega stúlka vel að sér í dönsku, skrift og reikningi óskar eftir atvínnu í búð eða bak- aríi. Afgr. v. á. [104 Stúlka óskast í vist 14. maí, hátt kaup. Ffú Jörgensen Nýlendgötu 15 B. [107 2 kaupakonur óskast í Engey í vor og sumar. Uppl. í Þingholts- stræti 19 uppi, hjá Helga Thorder- sen, frá 12—3. [116 Hreinlegan dreng vantar á Rán. Uppl. í Söluturninum. [117 Barngóð stúlka óskast í vist á fáment heimili. Gott kaup. Uppl. Klapparstíg 1 A. [118 Stúlka óskast frá 1. apr. n.k. til 14. maí. Sigr. Oddsd. Vesturg. 24 [119

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.