Vísir - 19.03.1916, Blaðsíða 4
VISIR
Embættl.
Sóknarpresta hefir ráöherra skip-
að: Sigurð Sigurösson cand. theol,
í Þykkvabæjarklaustursprestakalli og
Jóu Guönason cand. theo!. í Staö-
arhólsprestakalli.
Samverjinn.
5 krónur voru Vísi færðar aö
gjöf frá ónefndum til Samverj. í
gær. Þökk fyrir.
Aflinn.
R á n kom inn í fyrrakv. eftir 5
daga útivist með undir 100 smál.
af fiski, og M a r z í gærmorgun,
hlaðinn af fiski.
Þ i 1 s k i p i n: Skarphéðinn með
12 þús. fiska, Toiler meö 11 þús.
og Surprise meö 13 þús.
Skálholt
á að fara til útl. í kvöld.
Gullfoss
fór frá Leith í fyrrad.
Gestir í bænum.
Konráð læknir Konráðsson frá
Eyrarbakka og kona hans eru í
bænum þessa dagana.
Kirkju-koncert
Páls jísólfssonar verður endur-
tekinn í Dómkirkj. í kvöld k). 7.
S í m s k e y t i
frá fréttaritara Vísis.
Khöfn í gær.
Orustan við Verdun er nær
hætt vegna þess, hve Þjóðverj-
ar hafa beðið gífurlegt mann-
tjón.
Upprelst er í aðsígi í Kína.
I
Konungaskifti
í Búlgaríu.
Búlgarakonungur fór til Coburg
um síðustu mánaðamót. Var sú
ástæða borin fyrir, að hann þjáð-
ist af lungnakvefi og sagt er að
hann muni ekki fara aftur til
höfuðborgar sinnar fyrstumsinn.
Er því fleygt, að veikindin séu
ekki alvarleg, og séu að eins
notuð sem átylla fyrir fjærveru
konungsins, en það liggi á bak
við, að konungur ætli að segja
af sér en krónprinsinn, Boris,
eigi að taka við ríkjum nú þegar.
Gróði Dana.
Gufuskipafélög Dana hafa grætt
feiknin öll síðasta ár. Ágóði
hluthafanna yfir árið nemur þetta
30—100 prc., og hafa þó stórar
fjárhæðir verið lagðar í varasjóð.
Nýkomið
tnikið af
Pataefnum
Bláum og mislitum
f klæðaverzlun
&v&m.
Pientsmiðju brunar.
—:o:—
í brunanum mikla í Bergen,
brunnu til ösku 11 prentsmiðjur.
Unnu þar um 200 prentarar.
í Molde fengu prentsmiðjurnar
illa útreið. Öll blöðin mistu
prentsmiðjur sínar, og voru því
í vandræðum. í Bergen hafa
prentsmiðjurnar sem af komust,
reynt að hjálpa svo sem untvar,
en oft hefir verið þraungt um út-
komu blaðanna.
Sum þeirra hafa nú fengið sér
nýjar prentsmiðjur sjálf og aðrar
eru á leiðinni, en meiri hluti
blaðanna er enn prentaður þar
sem best gengur í það og það
skiftið.
Nafnkunnar prentsmiðjur sem
brunnu í Bergen voru þessar:
Prentsm. „Aftenbladet®, „Gula
Tidend" og „Bergens Tidende".
Eg er Pétam-maður.
Eins og getið hefir verið um í
Vísi, er það hald manna, að Frakk-
ar hafi sérstakt lið til áhlaupa
e?ns og þjóðverjar og að Pétain
hershöfðingi hafi yfirherstjórn
-þess. Marka menn það af því,
að Pétain réði fyrir áhlaupunum
er gerð voru í Chamagnehéraði
í fyrra haust og að hann stýrir
gagnáhlaupum Frakka hjá Verd-
um. Milli þess að liðið er haft
til áhlaupa, er það látið eiga góða
daga, þarf t. d. ekki að vera á
verði í skotgröfum.
Eitt sinn í vetur var franskur
foringi að skemta sér suður í
Parísarborg í heimfararleyfi sínu.
Hann var ör á fé og það svo
mjög að einn af kunningjum hans
hafði orð á því við hann, að
hann eyddi fé um efni fram. —
„Hvað gerir það góðurinn minn“,
svaraði foringinn, „eg er Pétain-
maður". Og vildi hann þarmeð
sagt hafa, eg er dauðans matur.
Enn geta nokkrar
stúlkur
vanar fiskverkun fengið alvinnu
á Austurlandi.
Óvanalega hátt kaup.
Áreiðanleg borgun. Semjið strax
viðJÓN ÁRNASON, Vesturg.39.
Manntjón Breta
Hjá Saloniki.
Stjórnin á Englandi hefir skýrt
frá því, að manntjón (fallnir, sár-
ir og herteknir) hers þess er þeir
sendu til Saloniki hafi verið 37
foringjar og 1439 liðsmenn. —
Skýrslan nær til 20. febr.
Japan og Eússland.
í erlendum blöðum er sagt frá
því, að Japanar og Rússar séu
að byrja samninga um nánara
bandalag sín á milli.
Divan eöa sofi óskast lil leigu.
A. v. á. [194
Silfurbrjóstnál (Filigrantarb.) fót-
laus, innpökkuð, týndist þ. 16. þ.
m. frá Bergstaðastr. 1 að boxadeild
pósthhússins. Skilist gegn fundar-
launum í Bergstaðastræti 1. [199
Drengjahúfa töpuð í miðbænum.
Finnandi skili í Fischers. 3. [208
Fundist hefir handtaska með hann-
yrðum. Uppi.- á Bókhl.st. 11. [209
Barniaus hjón óska efúr 1—2
herbergjum ásamt eldhúsi. Uppl.
á Vatnsstíg 4. [163
2 herbergi og eldhús til leigu frá
14. maí til 1. okt. fyrir barnlausa
fjölskyldu. A. v. á. [175
Einhleyp stúlka óskar eftir 1—2
herbergjum ásamt geymslu. A. v. á.
[176
Herbergi vantar fyrir einhleypan
nú þegar. A. v. á. [178
Herbergi með húsgögnum óskast
fil leigu. A. v. á. [190
Góð stofa til leigu við miðbæinn
fyrir einhleypan karlmann, helzt sjó-
mann. A. v. á. [200
1 herbergi með forstofuaðgangi,
rúmi og húsgögnum. er til lpigu
fyrir skilvísan mann 14. maí A.v.á.
_________________ [201
Til leigu 1 tasía, 3 herbergi og
eldhús, á miðjum Bergstaðastíg.
Uppl. á Njálsgötu 15. ]202
Skemtilegt herbergi óskast 14.
maí. Áreiðanleg borgun. , A. v. á.
[211
Morgunkjólar smekklegastir, vænst-
ir og ódýrastir, sömuleiöislangsjöl og
þríhyrnur eruávalt til sölu í Garða-
stræti 4 uppi. (Gengiö upp frá
Mjóstræti 4). [l
Morgunkjóiar góðir og ódýrir fást
og verða saumaðir á Vesturgölu 38
niðri. [2
Morgunkjólar hvergi betri né ó-
dýrari en í Doktorshúsinu (Vesturg.)
_______________________________[3__
Brúkaðar sögu og fræðibækur fást
aitaf með niðursettu verði í Bóka-
búðinni á Laugavegi 22. [40
Fermingarkjóll, stór, fæst keyptur.
Sýndur í Suðurgötu 8 A. [182
Mótorbátur til sölu í ágætu standi
Uppl. gefur Ólafur Grímsson, Lind-
argötu 23. [192
Steinhús, nýtt, lítið til söiu með
stórri byggingarlóð vel ræktaðri.
Lágt verð, góðir borgunarskilmálar.
Uppl. á Grettisgötu 38. [193
Lítið hús til sölu, A. v. á. [203
Kvendragtir og fermingarkjólar og
kjóllíf tii sölu á Kárastíg 13 B7
[204
1 saumavél tii sölu með góöu
verði. A. v. á. [205
Unglingspilt vantar mig nú þegar.
Jón Eyjólfsson Grímsstaðaholti.
[165
Ráðskona óskast á lítið sveita-
heimili á næsta vori. Hæg staða,
vel launuð. A. v. á. [206
Rösk stúlka óskast í kaupavinnu
á næstk. sumri upp í Borgarfjörð.
Gott kaup í boði. A. v. á. [207
Duglegan skipstjóra og mótorista
vantar nú þegar. Sömuleigis 3 há-
seta. Afgr. v. á. [210