Vísir - 22.03.1916, Page 1

Vísir - 22.03.1916, Page 1
Utgefandi HLUTAFÉLAG Ritstj. JAKOB MÖLLER SÍMI 400 VXSER Skrifstofa og afgreiðsla í Hótel ísland SÍMI 400 6. árg. M i ð v i k u d a g i n n 22, marz 1916. 81. tbl. Gamla Bíó Astin eflir. Ahrifamikill sjónl. í 2 þáttum. Aðalleikeikendur eru: Frk. Emilie Sannom. * Hrr. Emanuel Gregers. Lifandi frétfabiað Orustan hjá Verdun Franska blaðið Matin ritar meðal annars um orustuna hjá Verdun: Herforingjar, sem komu frá Verdun ljúka allir upp einum munnium það, að áhlaup þjóðverja á Vaux vígið, föstudaginn 10. marz, hafi verið mannskæðara en dæmi séu til í sögunni. þjóð- verjar féllu eins og hráviði fyrir kúlum Frakka, — heilar fylk- ingar féllu og fallnir menn og sárir ultu eins og snjóskriður of- an brekkurnar, og lágu í hrönn- um þar fyrir neðan. þjóðverjar gáfust seinast upp á því að klifra yfir falina og særða félaga sína og hættu áhiaupinu. Hollenzkur blaðamaður nokkur fekk að koma á vígstöðvarnar hjá Verdun þjóðverja megin. — Fanst honum mest til um það hve margar fallbyssur þeir höfðu. Á öllum vegum sem lágu til Ver- dun úði og grúði af fallbyssum og skotfærum. Telur hann að þess muni engin dæmi í veraldarsög- unni að svo mörgum fallbyssum væri komið fyrir á jafnlitlu svæði. Á einum stað fyrir norðvestan hefðu fjallshlíðarnar, sem áður voru skógi vaxnar, litið út eins og plægður akur eftir skothríð þjóðverja. Hann kvaðst hafa verið orðinn vanur því á víg- völlunum að sjá fallbyssur og skotvopnum komið fyrir neðan- járðar, sér hefði því brugðið í brún að sjá hjá Verdun margar fallbyssuraðir á bersvæði. eins og títt var í orustum fyrr ádög- um. y.vl \slen»lia Kveldskemtun heidur Hið ísienska Kvenfélag fimtudaginn 23! mars kl. 8V2 síðd. í Bárubúð til ágóða fyrir Styrktarsjóð eldri kvenna. Skemtiskrá: Guðmundur Thorsteinsson listmálari syngur gamanvísur. Dr. Ólafur Danielsson kveður. Einar Hjörleifsson rithöfundur les upphafið á sögunni: >Sálin vaknar.« Leikið verður leikritið »Hann og Hún* eftir Abraham Dreyfus Persónur: Mr. Moberly (Dick) Guðmundur Thorsieinsson listmálari. Mrs. Moberly (Fanny) frú Stefanía Guðmundsdóttir. Aðgöngumiðar verða seldir í Bókaversl. Sigfúsar Eymunds- sonar og Bókaversl. ísafoldar og í Bárubúð frá kl. 7 sama dag og kosta 1 — eina — krónu. Nokkra duglega karlmenn ræð eg enn til Siglufjarðar. Löng og ábyggileg atvinna! Menn sem þegar hafa talað við mig um atvinnu finni mig hið fyrsta. Einnig þelr sem ráðnir eru hjá mér sjálfum. ^rettx Sulmutvdssotv, Aðalstræti 8. Venjul. heima kl, 7—8 s. d. Clemencaeu segir í blaði sínu, að manntjón þjóðverja í orust- unum hjá Verdun hafi verið þre- falt meira en manntjón Frakka. r&m Bæjaríréttir Afmæli á morgun: Dóra Þórhallsdóttir, ungfrú. Elisabet Björnsdóttir. Karolína Þorkelsson. Oddný S. Sverrisen, liúsfrú. Fermingar- og afmælis- kort með íslenzkum erindum fást hjá Helga Arnasyni í Safna- húsinu. Leikhúsið. Tengdapabbi verður ekki leikinn oftar vegna fráfalls Andrésar Björns- sonar. Næst verða leiknar Kinnar- hvolssystur, sem áöur hafa verið sýndar hér og var þá vel tekið, en síðan eru nú liðin nokkur ár. Enn er í ráði að sýna sjónleik eftir Bernhard Shaw, ef tfmi vinst til þess. Erl. mynt. Kaupm.höfn 02. marz. Sterlingspund kr. 16,52 100 frankar — 58,50 100 mörk — 61,50 R e y k j a v í k Bankar Pósthús Sterl.pd. 17,00 17,00 100 fr. 61,00 61,00 100 mr. 64,00 62,00 1 florin 1,55 1,55 Doll. 3,80 3,75 Sv. kr. 100 a. 101 a. ________Mýja Bfó Þess bera menn sár — Sjónleikur 1 3 þáttum eftir hinni nafnfrœgu skáldsögu Octave Feuillets. Aðalhlutverkin leika: jungfrú Napierkowska, frú Davids, Paul Capellani. Myndin stendur hálfa aðra klukkustund, og aðgöngu- miðar kosta: Bestu sæti 0,50. Önnur sæti 0,40. Almenn sæti 0,30. 1. o. G. T, &\T\\tt§\W tU. W;3 Fundur í kvöld kl. 8V2. É Alþm Jósef Björnson talar |» Str. Sigurborg les upp á færeyisku. Eftir fund verður nefndar- fundur í sjúkrasjóðsnefnd- inni, og eru allir meðlimir hennar beðnir að sækja fund- inn. — Fjölmennið! Ceres fór frá ísafirði í morgun. Botnfa fer beint til útl. kl. 8 í kvöld. Kvenfélagið hetdur kvöldskemtun annaðkvöld í Bárubúö. Sjá augl. í blaðinu. Island fór frá ísafirði í gær, kom hing- að í morgun. s Hljómleikar. Loflur Guðmundsson mun ætla að efna til hljótnl. um helgina með aöstoð E. Thoroddsen. Föstuguðsþjónusta veröur í kvöld í Fríkirkj. hér, kl. 6 (ÓI. Ól.), og á morgun í Frikirkj. í Hafnarf. kl. 7 síöd. (Ól.ÓI.) Dánarfregn. í Vestm.eyjum lézt í nótt Anton Bjarnason, kaupm. — Fékk snert af heilablóðfalli fyrir ári síðan, og var veikur upp frá því. Pappírsverð hefir hækkað mikið síðustu mán- uðina, 50—100 prct. og í ráði er að prentun hækki einnig í verði hér í bænum. Ef úr því verður, er viðbúið að blöðin verði að hækka áskriftargjald og auglýsingaverð, r; J

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.