Vísir - 01.04.1916, Síða 1
Utgefandi
HLUTAFÉLAG
Ritstj. JAKOB MÖLLER
SÍMI 400
Skrifstofa og
afgreiðsla í
Hótel ístand
SÍMI 400
6. árg.
Lau gard agi n n 1. apríl 1916.
91. tbi.
GamSa Bíó
Maðurinn með
andlitsbindið
Lögreglumynd í 2 þáttum,
afarspennandi og vel leikin
af ágætum amer. leikurum.
Draumur
skrípateiknarans.
Gamanmynd.
larðarför ekkjufrúar Sigríð-
ar Eiríksdóttur frá Auðkúlu,
fer fram Inánudaginn 3. apríl
næstk. og hefst með húskveðju
á heimili hinnar látnu, Skild-
inganesi kl. 12 á hád.
Aðstandendur.
Fermlngarkort. Lang-fjölbreyttasta úr-
valið í bænum er á-
Sumarkort reiðanlega í Pappír. &
íslenzsk og utlend ritfangaverzi. Laugav. 19
Símfrétt.
Eyrarbakka í gær.
Sýslufundur stendur nú yfir hér.
Stærsta málið sem fyrir fundinum
liggur, er um kaup á Þorlákshöfn;
það er í nefnd.
Gættaleysi hefir verið hér síðan
fyrir rokið siöast í fýrri viku. Mótor-
bátar réru í gær og fengu 3 í hlut.
Enginn afli f Þorlákshöfn, en heyrst
hefir að eitthvað hafi fiskast í Sel-
voginum og f Herdísarvík.
Htjómleikar
Lofts Guðmundssonar
verða endurteknir með breytingum á morgun kl. 9 síðd. í Bárubúð.
Emil Thoroddsen aðstoðar.
Aðgöngum. fást í dag í ísafold og hjá Sigf. Eymundsen og á
morgun í Bárubúð frá 10—12 og 2—5 og við innganginn.
MEÐ því að kaup preníara frá og
með þessum degi hækkar að miklum mun
(25°|0) neyðast undirritaðar prentsm. til
að hækka verð á prentun að sama skapi*
Þetta tilkynnist háttvirtum viðskifta-
vinum vorum.
Reykjavík 1. apríl 1916.
Hlutafélaglð Gutenberg
Þorv. Þorvarðarson. Friðf. Guðjónsson. Þórður Sigurðsson.
Isafold. x; Félagsprentsmiðjan.
Óiafur Björnsson. Stelndór Gunnarsson.
Prentsm, Rún Prentsm. Þ. Þ. Clementz
Pétur Halldórsson. Þ. Þ. Clementz.
Símskeyíi
frá fréttaritara Vísis
& Bæjaríróttir
Afmæli í dag:
Jónína Magnúsdóltir, húsfr.
Afmæli á morgun:
Elín Ingimundard.,, 71 árs.
Guöm. Eirfksson, trésm.
Einar Ólafsson, vélstj.
Guðm. Eiríksson.
Guðr. Bjarnadóttir, húsfr.
Guðl. Hannesdóttir, ekkja.
Haraldur Sigurðsson, verzlm.
Helgi Jakobsson, sjóm.
Ingibj. Steingrímsdóttir, húsfr.
Laura Finsen, húsfr.
Runólfur Guðmundsson, sjóm.
Snæbj. Arnljófsson, Þórshðfn.
Fermingar- og afmælls-
kort með íslenzkum erindum fást
hjá Helga Árnasynl í Safna-
húsinu.
Prentarar
hér í bænum hafa krafist kaup-
hækkunar sem nemur i/l hluta
kaups þess, sem þeir hafa haft, að
viðlageri almennri vinnu-uppsögn
ef ekki yrði gengið að kröfunni
Prentsmiðjueigendur hafa gengið að
kröfunni þannig, að hækkunin er
miðuð við lágmarkslaun prentara
og verður því kauphækkun á hvern
mann 5 kr. á viku.
Khöfn 31. marz.
Þjóðverjar hafa ekkert unnið á f 5. áhlaupinu á
Verdun,
Bretar hafa flutt bréfapóstin úr Hellig Ólaf á land.
Nýja Bíó
Hulin fegurð
Ljómandi fallegur sjónleik-
ur leikinn af hinu alþekta
ítalafélagi. Efni leiks þessa
er skemtilegt og frágangur
myndarinnar ágætur.
Messur á morgun:
í Dómkirkj. á hádegi sr. Bjarni
Jónsson. —
KI. 5 (síðd.) sr. Jóh. Þorkels-
son (altarisganga).
í Fríkirkj. í Hafnarf. á hádegi
sr. Ól. Ól.
í Fríkirkj. í Rvík kl. 5 Ó1 Ól.
Þrifnaður.
Tvær stúlkur hafa búið saman í
leiguherbergi hér í bænum f vetur.
Hefir önnur þeirra altaf orðið að
bera allan hita og þunga dagsins
af gólfþvottum og þess háttar, en
varð loks þreytt á því að stjana
þannig undir hinni. Og fyrir
Leiktelag Reykjavíkur
Sunr.udaginn 2. apríl kl. 8.
Systurnar
frá KinnarhvolL
Æfintýraleikur
eftir C. Hauch
Pantaðra aðgöngumiða sé vitjað
fyrir kl. 3 þann dag sem leikið er,
annars verða þeir
þegar seldir öörum.
Mt. 3^® 7*
Fundur annað kvöld kl. 6
á venjulegum stað.
Framhaldsumræður um ætt-
arnöfn o. fl.
Bláa bókin athuguð.
skömmu síðan las hún lesturinn
yfir sambýiiskonu sinni og sagði
henni, að hún yrði nú hér eftiraö
þrifa til í herberginu að sínum hluta.
— Já, / sei, sei, hin tók vel í það,
og sagðist skyldi þvo gólfið strax
í dag. Síðan tók hún íiát undan
rúmi sínu til að þvo úr, en af því
að bæði var lítiö í því og kalt, þá
bætti hún volgu í. Hreint hand-
klæöi sem hin átti tók hún þar af
veggnum til að þvo með og haföi
fataburstahennarfyrir »gólfskrúbbu«,
en undir hné sér lagði hún nýleg-
an morgunkjól af stallsystur sinni,
og þvoði síðan gólfið svo að gus-
urnar stóðu af í allar áttir. En að
Ioknu verki fór hún með ílátið og
helti úr því út um gluggann.411 Hús-
ráöandinn, sem sjálfur hefirsagtfrá
gekk í þessu um götuna og varð
fyrir dembunni.
Ólýginn sagði mér!
Frh. á 4. síðu.