Vísir - 06.04.1916, Side 3

Vísir - 06.04.1916, Side 3
Vjí SIR 35 stúlkur vantar enn til síldarverkunar. Bezlu kjör boöin. Finnið sem fyrst Laugaveg 29. Umboðssala mín á Sítd, Lýsi, Fiski, Hrognum og öðrum íslenskum afurðum mælir með sér sjálf. Áreiðanleg og fljót reikningsskil. w*™ INGVALD BERG Bergen, Norge. Leitlö upplýslnga hjá: Sfmnefnl: Útibúi Landsbankans á Isafirðl, Bergg, Bergen. Bergens Privatbank, Bergen. Drengi vantar til að bera Vísi út um bæinn. fyvnipi vantav nokkvar stúlkur til síldverkunar Senvjvð sem jvjvst »v? Magnús Blöndahl, Lækjargötu 6. 2--3 Saumastfllkur, vanar og duglegar vantar mig. Föst vinna alt áriðí Sv&m, S^^Bssotv, ^aaBslteú. Prentsm. Þ. t>. Clementz — 1916 Norðlensk Sauðatólg fæst í Versl. Asbyrgi. Hverfisg. 71. S f m i 161. 1 Vátryggið tafalaust gegn eldi vörur og húsmuni hjá The Brit- ish Dominion General Insu i rance Có. Ltd. | Aðalumboðsm. G. Gíslason Sæ- og stríðsvátrygging Det kgl. oktr. Söassurance Komp Miðstræti 6. T-als. 254. A. V. TULINIUS. Aðalumboösmaöur fyrir ísland Sendil vantar á landssímastöð- ina hér nú þegar. SvjU 3- öt&jsson. Drengur óskast til sendiferða á skrifstofu hér í bænum. A. v. á. G M E N Oddur Gíslason yfirréttarmálaflutnlngsmaöur Laufásvegi 22. Venjulega heima kl. 11-12 og 4-5 Simi 26 Det kgl. octr. Brandassurance Comp Vátryggir; Hús, húsgögn, vörur alskonar. Skrifstofutími 8—12 og 2—8. Austurstræti 1. N. B. Nielsen. að augt. \ *\Ks\ Pétur Magnússon yfirtíómslögmaöur, rundarstíg 4. O Sínii}533 Heima kl. 5—6. Bogi BrynjólfssonU ! yfirrjettarmálaflutningsmaöur. Skrifstofa Aðalstræti 6 (uppi.) Skrifstofutími frá kl. 12-1 og 4-6 e. h Talsími 250. Trygð og slægð. Eftir Quy:Boothby. 110 -------------- Frh. — Eg gef yður mínútu frest, sagöi Andrew við Maas, og tók um leið úrið upp úr vasa sínum. Alt féll í þögn. — Hálf mínúta, umlaði Andrew og hjartað barðist í brjósti Browne’s. — Fjörutíu og fimm sekúndur, hélt Andrew áfram. Dauðaþögn. — Mínúta, sagði Andrew og greip um gikkinn á byssunni. Maas hneig niður í hornið. — Eg gefst upp, hrópaði hann. Eg skal drekka þetta, et þér ábyrg- ist að mér verði ekki neitt rneint af því. — Ekki minstu vitund, svaraði Andrew og helti úr glasinu ofan í M«s. Nokkrum augnablikum síöar var hann steinsofnaður. Foote lagði hann upp í rúm og settist fyrir framan hann eins og hann væri læknir. — Þér minnist þess, sagði And- rew viö Foote, að hann hefir verið veikur um tíma. Hann sofnaði á þil- farinu og fékk lungnabólgu af því. Svo bætti hann við um leið og hann fór út: Nú fer eg inníreyk- háfinn til vinar okkar. Þér gleymið ekki, Browne, að láta mig vita þeg- ar Rússinn er farinn. — Það getið þér reitt yöur á, svaraöi Browne. f því kom skip- stjórinn og sagöi að báturinn væri kominn að skipshliðinni. 28. kapitul i. Það er víst um það að Browne gleymdi aldrei þeirri stundu, þegar kallað var á hann og honum sagt að nú væri báturinn kominn að skipshliðinni. Það hafði aldrei kom- ið yfir hann annað eins augnablik. Hann hallaði sér að Foote sem Iaut ofan yfir Maas, og sagði: — Eg verð að skilja hann eftir hjá þér, Þú hefir gætur á, að ekki verði neitt veitt upp úr honum. — Þú getur reitt þig á það, sagði Foote. Eg vona hans vegna, að hann vakni ekki meðan þeir eru hér. Svo kvöddust þeir mjög svo hjartanlega. — Guði sé lof fyrir að eg fékk þig til að fara með mér, gamli vinur minn, sagði Browne inni- lega. Þú veizt ekki hvaða léttir mér er það aö hafa þig nú hjá mér. Nú verð eg að fara og aðvara þær frú Bernstein og Katrínu. — Vertu blessaður, gamli fé- lagi, sagði Foote. Hamingjan sé með þér. Browne leit enn einu sinni á Maas. Svo fór hann út og lokaði dyrunum á eftir sér. Síðan gekk hann til Katrínar. Hún opnaði strax þegar hann hafði barið að dyrum. Hann sá á henni, að hún rendi grun í eitthvað af því sem fyrir hafði komiö. — Eg sá bátinn koma rétt í þessu, sagði hún. Eru þeir nú komnir í þeim erindum að hefja leit um skipið? — Já, sagði Browne. En þú þarft samt ekkert að hræðast. Hann er falinn á þeim stað, sem þeim dettur ekki í hug aö leita í. Og til þess að vera vissir létum við Andrew fara með honum. — En hvaða hávaöi var það, sem eg heyrði rétt áðan? spurði hún. Mér heyrðist þið vera að fljúgast á við einhvern. Browne sagði henni í fáum orö- um það sem fyrir hafði komið og bað hana að varast að segja annað en að Maas væri ákaflega veikur. Síðan bað hann hana að segja frú Bernstein tíðindin. Svo fór hann upp á þilfarið. Rétt í því að hann kom upp, kom einnig rússneski fyrirliðinn upp á þilfarið. Það var hár, laglegur maður, á að gizka um þrítugt. Hann leit í kringum sig eins og til þess að sjá að hverj- um hann ætti að snúa sér. Þegar hann sá að skipstjórinn leit á Browne eins' og til að biðja um fyrirskip- anir, þá snéri hann sér að honum og sagði á frönsku: — Fyrirgefiö þér, herra minn. En er þetta ekki Lótusblómið?

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.