Vísir - 07.04.1916, Page 2

Vísir - 07.04.1916, Page 2
VÍSIR VISIR Afgreiðsla blaðsins á Hótel Island er opin frá kl. 8—8 á hverj- um degi, Inngangur frá Vallarstræti. Skrifstofa á sama stað, inng. frá Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá U. 3-4. Sími 400.— P. O. Box 367. v fcæwum Morgunkjólar. Svuntur. Kvenn & Telpukápur. Barnakjólar. Álnavara. Cheviot.Silki. Slifsi o.fl Saumastofan á Laugavegi 24 Brjóstsykurinn og sœtindin hans Blöndahls, áreiðanlega Ijúfengust og best. Sjálfs sín vegna heimta allir sœtindavinir af kaupmanni sinum brjóstsykur úr verksmiðjunni í Lækjargötu 6 Pvík. _ Menthol best gegn M H T1 ] n* hœsi °g brjóstkvefi JJIUIHU- No. 77 (brendur), hinn þjóðarfrægi. Kalt Ijós Franskur maður, að nafni Dus- saud, fann fyrir nokkrum árum að- ferð jtil þess að gera rafmagns- Iampana svo úr garði, að nota mætti nær alt afl rafmagnsstráums- ins til þess að framleiða Ijós, ístaö þess að venjulega eyðist 80—90 prct. af aflinu til að framleiða hita. Ljós Dussaud's er því nær alveg kalt en 9 afar bjart. — Skömmu eftir að ófrið- urinn hófst, fór Dussaud og bauð hermálaráðuneytinu sína þjónustu, en einhvern veginn fór það svo, að ekkert varð úr því, skrifstofu- hléypidómar bönnuðu honum allar leiöir. Hann var sendur úr einni skrifstofunni í aðra þangað til hann uppgafst eftir fjögra mánaðaárang- urslausar tilraunir til aö koma sér á framfæri. Ári fyrir ófriðinn — 1913 — hafði firma eilt í Berlín keypt einka- rétt á uppgötvuninni fyrir Þýzka- land. Og það er einkennilegt, að 17. júlí 1914, hálfum mánuði áður en ófriðurinn skall á, gerði þýzki sendiherrann í París fyrirspurn um það til Dussauds, hvort hann hefði fúndið upp nokkrar umbætur á verkfærinu. — Og fjórum dögum síðar. kom sama fyrirspurnin frá sendiherra Austurríkis. Nú halda menn að Zeppelins- skipin noti ljós þetta. Franskir flug- menn, sem hafa elt þau, segja að ljósið frá þeim hafi algerlega blind- að sig. Og áhorfandi einn segir aö stundum hafi svo bjart Ijós fallið á Parísarborg frá Zeppelinsskipum að nóttu til, að eins bjart hafi orð- ið á götunum og að degi til í glaða sólskini. En hvaö sem um það er, þá hefir Gallieni hershöfð- ingi nú ákveðið að láta gera til- raunir með þessa lampa, hvort ekki megi nota ljósiö til þess aö Ieita uppi loftskipin þegar þau eru á ferð í þoku og þykku lofti. + Rögnv R. Magnúsen frá Fagradal. Dáinn 13. marz 1916. Kveðja frá systur hans. Ársólin hló í fagra fjallasalnum er fyrrum með þér lék eg bróðir kær, en burt hún fló úr sorgar djúpa dalnum er dýra hjartað þitt ei lengur slær, Þín sál var sterk, sem slegin væri stáli og stíltur, þögull, gekstu þína braut. Þitt handtak fast og hugur fylgdi máli og hjartagæzkan var þitt aðal-skraut. Eg flyt þér kveðju frænda kærra og vina, þér fararheilla óska hinztu stund. Og biðjum öll þig mæfan okkur muna, er móður, föður sérö í Edenlund, Frá dætrum mínum hjartans huldu tónar f heitust andvörp falla í þína sál, sem árstjörnur um ásýnd þína ljómar og endurspegla heilagt kærleiks bál. Vertu nú sæll, þú kvaddir dimma dalinn og djúpið hulda örugt lagðir á. Vertu nú sæll og faðmi drottins falinn brátt fæ eg þig að líta Kristi hjá. Arndis R. Magnúsen. Sagan um Stóra-Björn og andarnefjuspikið Eftir J. F. Rönne. Frh. þeim miðaði nú drjúgum áfram því fallið var með þeim. Snemma um morguninn voru þeir komn- ir inn á víkina og sáu þar hús og bryggju og þar lentu þeir að lokum. Stóri Björn skreið í land, en svo var hann máttfarinn, að hann varð að hvíla sig við geymsluhússvegginn. Eftir það fór honum að ganga betur og loks komst hann að neðsta hús- inu þar barði hann að dyrum með hnífskaftinu. þá var lokið upp glugga. Einn af heimamönnum rak höfuðið út um gluggann. Hvað gengur á ? Hver er úti ? það er Björn. Á, er það Björn. Eg man ekki til að eg hafi séð þig fyr — ertu fullur. Eg er veikur. Já eg þekki þá veiki, sagði heimamaður og ætlaði að loka glugganum, en Björn stakk hend- inni í milli. það liggur á. Hvað liggur á? Mennirnir í bátnum. Nú fór heimamaður að spyrja Björn spjörunum úr. Hann var kaupmaður í þorpinu. — Síðan klæddist hann og gekk ofan að bátnum. Kaupmaðurinn varð svo skelkaður af því sem hann sá þar, að hann tók til fótanna og hljóp alt hvað af tók upp í bæ- inn til þess að ná í menn til hjálpar. Björn settist á kassa og hallaði sér upp að geymsluhúss- veggnum. Ekki leið á löngu áður menn tóku að flykkjast ofan að bryggj- unni og lintu ekki á spurning- um. En Björn var svo máttlaus, að hann nenti ekki að svara. — Menrt sáu líka að hér þurfti hjálp- ar við, síðar meir var hægt að seðja forvitnina. Veslings mennirnir voru nú dregnir hver á fætur öðrum upp úr bátnum. það varð að bera þránd, hinir gátu gengið ef tveir menn studdu þá. Björn raklest- ina óstuddur. Ekki inn í stofu! Ekki inn í stofu, sagði hann er hann sá að bera átti þránd inn, látið þá í úthýsi. þeir sem báru þránd staðnæmd- ust og hikuðu við. Látið þá í úthýsi, segi eg, við erum ekki í húsum hæfir. þeir sáu að Björn hafði satt áð mæla. Er þeir höfðu ráðgast um stutta stund, breiddu þeir hey á gólfið í kofa þar skamt frá, ©g lögðu mennina þar. Kaupmaðurinn varð aftur og aftur að segja frá því sem fyrir hann hafði borið um morguninn. En svo spurði einhver hvort ekki ætti að sækja sýslumanninn. Menn urðu forviða á því að T I L MINNIS: Baöhúsið opið v. d. 8-8, Id.kv. til 11 Borgarst.skrifst. í brunastöð opiu v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2 og 4-7 Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d Islandsbanki opinn 10-4. K. F. U. M. Ahn. sanik, sunnd. 81/, siðd Landakotsspit. Sjúkravitj.timi kl, 11-1. Landsbankinn 10-3, Bankastjórn til við- tals 10-12 Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3 Landssiminn opinn v.'d. daglangt (8-9) Helga daga 10-12 og 4-7 Náttúrugripasafnið opið Þ/,-21/, siðd. Pósthúsið opið v.' d. 9-7, sunnd. 9-1 Samábyrgðin 12-2 og 4-6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d, Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1 Þjóömenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2 Ókeypis lækning háskólans Kirkjustræti 12: Alm. lækningar á þriðjud. og föstud. kl. 12—1. Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud. kl. 2-3. Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3. Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið- vikud. kl. 2-3. Landsféhirðir kl. 10—2 og 5—6. ' * þeim skyldi ekki hafa dottið þetta fyr í hug. Hlupu nú þrír menn á stað til að sækja hann. þegar hann kom, gekk hópur- inn á móti honum, snéri síðan við og fylgdi honum ofan að bátnum. Sýslumaðurinn stóð lengi og virti bátinn fyrir sér með embættissvip. þorpsbúar stóðu hjá fullir fjálgleika og biðu þess að sýslumaður segði eitthvað. En hann sagði ekki eitt ein- asta orð. þetta er þó ekki kólera? Sýslumaðurinn náfölnaði og hopaði aftur á bak, en þá sté hann ofan á skott á hundi, en seppi tók að ýlfra mjög ámátlega. Við það sló enn meiri óhug á menn og þeir sem stóðu á bryggj- unni hypjuðu sig á burtu. Loks sagði sýslumaður að það þyrfti að sækja læknirinn. a(metw\\t\$s Brunasímarnir og götuljósin. Væri ekki hægf fyrir bæjarstjórn- ina að sjá um að kveikt yrði á kvöldin á Ijóskerum þeim, sem eru næst við brunasímana ? það er ekki áhlaupaverk að finna þá um miðja nótt, ef eldsvoða ber að höndum, því ekki eru allir svo kunnugir aö þeir viti hvar næsti brunasími er. í bæjum og borg- um erlendis er látiö loga alla nótt- ina við símana, og er þaö Ijóskerið merkt með rauðu gleri, svo strax sé hægt að átta sig á að þar sé brunasími. Mundi ekki vera ráðlegt að gera eitthvað líkt hér ? J. V. - B. Vísir telur mjög æskilegt að farið yrði eftir þessari uppástungu.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.