Vísir - 08.04.1916, Qupperneq 2
VISIR
A f g r e i ð s I a blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi,
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað, inng. frá
Aðalstr, — Ritstjórinn til viðtals frá
kL 3-4.
Sími 400,— P. O. Box 367.
Morgunkjólar. Svunfur. Kvenn
& Telpukápur. Barnakjólar.
Álnavara. Cheviot.Silki. Slifsi o.fl
Saumastofan á Laugavegi 24
Frá bæjarstj.fundi
6. apríl.
B a n k a 1 ó ö i n. Fasteignanefnd-
in hefir haft það mál til meöferðar,
en ekkert hefir veriö afráðið um
kaupin enn.
Skipasmíðastöðin. Swit-
zersfélagið hefir leitað fyrir sér eftir
lóð undir skipasmíðastöð hjá bæj-
arstjórninni, en enginn endi bund-
inn á það mál heldur.
Útstrikaðar skuldir. Eftir
tillögu fjárhagsnefndar var samþ.
að strika út ófáanleg bæjargjöld frá
síöasta ári að upph. kr. 486,80.
Þannig er ástatt um gjöld þessi,
aö þau hafa veriö lögð á menn
sem ekki hefir spurzt til síðan.
E f t i r 1 a u n var samþ. að veita
Magnúsi Magnússyni fyrv. sótara,
25 kr. á mánuöi, þetta ár.
M j ó 1 k u r - e f t i r I i t i ð var
samþ. að fela efnarannsóknastofunni
þetta ár fyrir 50 kr. á mánuði.
Verður mjólk frá öllum seljendum
rannsökuð nákvænúega einu sinni
í mánuði og skýrsla gefin heilbr.
nefnd mánaðarlega. Rannsóknastof-
an tekur að sér allar aðrar mat-
vælarannsóknir fyrir bæinn fyrir 10
krónur á mánuði. (Eftiriitið með
mjólkursölustöðum veröur eftirsem
áöur hiá heilbr.fulltrúa.) Aöra umr.
þarf um þetta mál.
Fitumagn mjólkur. Til-
kynt var að Stjórnarráðið hefði
staðfest breytingu á heilbr.samþykt-
inni um að fitumagn nýmjóikur
skuli ekki minna en 3,25 prct.
Heilbrigðis-fulltrúinn
hafðí eftir ráðstöfun heilbrigðis-
nefndar gengið um bæinn til að
rannsaka kjallaraíbúöir í bænum og
fengið sér til aðstoðar Hjört Hjart-
arson byggingafulltrua. Að Joknu
verkinu gaf heilbrigðisfulltrúinn
skýrslu um þessar íbúðir og reikn-
ing fyrir fyrirhöfn þeirra beggja, að
upphæð kr. 120.00. Fjárhagsnefnd
taldi sjálfsagt að greiða Hirti 60
krónur, en þótti vafasamt að heil-
brigðisfulltrúinn gæti krafist sér-
stakrar borgunar fyrir þetta verk og
vildi ekki gera tillögu um það,
einkum vegna þess, aö skýrslan var
svo ófullkomin, að ekki var unt að
sjá hvort íbúðir þessar fnllnægðu
kröfum heilbrigöissamþyktar eða
ekki. — Á fundinum var það aug-
lýst, að samkvæmt erindisbréfi sínu
á heilbrigðisfulltrúinn að skoða allar
íbúðir í bænum og aðgæta að þær
fulinægi öllum kröfum heilbrigöis-
samþyktarinnar, fyrirskipa lagfær-
ingar á því sem umbóta þarf innan
ákveðins tíma og líta eftir að það
sé gert. Þótti bæjarfulltrúum því
yfirleitt sem heilbrigðisfulltrúinn
hefði átt að geta sagt heilbrigðis-
nefnd til um þaö, þegar er hann
var spuröur hvort nokkrar íbúðir
væru óviðunandi í bænum, ef hann
hefði rækt starfið samkvæmt er-
indisbréfinu, og að þessi framfarna
skoðun væri skylduverk háns, sem
ekki gæti lcomið til mála að hann
ætti heimting á borgun fyrir. Að-
eins var talið efasamt að hann vær
skyldur til að gefa skýrslu um á-'
stand íbúðanna. En þar sem skýrsl-
an var talin mjög ófullnægjandi
varð meiri hluti bæjarsljórnarinnar
því mótfallinn að taka reikning
heilbrigöisfulltrúans til greina og
sumir vildu jafnvel láta hann borga
Hirti fyrirhöfu hans. Samþykt var að
borga 60 kr. til Hjartar, en felt með
4 gegn 3 atkv. aö taka kröfu heil-
brigðisfulitrúans til greina.
Bjarnaborgarkaupin
voru samþykt með 6 atkv. gegn 2
Ágúst Jósefsson og Jör. Brynjólís-
son, Þorv. Þorvarðsson greiddi ekki
atkv. (Frá umræðum verður skýrt
síðar).
Skólabygging. Sigurður
Jónsson bar fram þessa tillögu:
»Bæjarstjórnin felur skólanefnd að
taka til sérstakrar yfirvegunar nauð-
syn og möguleika tit þess að byggja
á næsta ári nýtt barnaskólahús fyrir
bæinn, eða viðbót við núverandi
skólahús«. Tillaga þessi var sam-
þykt meö 4 : 3 atkv., á móti voru:
Benedikt, Hannes Hafliðason og
Þorvarður.
Leiðangui Shackeltons.
Um það leyti sem ófriðurinn
mikli hófst, lagði Shackelton
heimskautsfari í leiðangur til
Suðurpólsins. Ætlaði hann að
fara þvert yfir heimsskautið frá
Weddell-fióa og koma fram hjá
Ross-hafi. Fór hann suður á
skútunni Endurance, en annað
skip, Aurora var sent suður í
Ross-haf til þess að taka á móti
honum þar. Aurora slitnaði upp
í ofsaroki í vetur. Var skipstjór-
inn þá í landi við 10. mann.
þeir sem eftir voru á skipinu
gátu þó komið því norður úr
Ross-hafinu og ætla að halda til
Nýja-Sjálands, því nú fer vetur í
hönd á Suðurhveli jarðar og þess
vegna ekki viðlit að komast inn
í Ross-hafiÖ aftur. Fréttir þess-
ar sendi Aurora frá sér með loft-
skeytum 600 mílur (enskar) fyrir
sunnan Nýja-Sjáland.
Endurance er ekki enn komin
að sunnan og búast menn hálf-
gert við að Shackelton hafi ekki
lagt upp í fyrrahaust og komi
því með skipinu. En hafi hann
konist þvert yfir heimsskautið
og ofan að Ross-hafinu, þá verð-
ur hann að sitja þar til næsta
vors ásamt skipverjunum frá
Auroru. Mælt er að þeir hafi
nægar vistir, því bæði höfðu þeir
flutt eitthvað úr skipinu áður en
það slitnaði upp og auk þess eru
forðabúr þar syðra frá því Scott
var á ferðinni.
Herþjónustuskylda.
Sir Edward Carson, fyrrum
ráðherra í samsteypuráðuneytinu
breska, hefir verið veikur nokk-
urn tíma og ekki getað sótt
þingfundi. Nú er hann orðinn
svo heill heilsu að hann getur
setið á þingi og búast menn við
að hann muni gera hríð að stjórn-
inni fyrir að hún hafi ekki beitt
sér sem skyldi í ófriðnum. Car-
son er foringi þess hluta aftur-
haldsflokksins, sem vill koma
á almennri herþjónustuskyldu á
Bretlandi. Margir þingmenn úr
frjálslyndaflokknum hafa og mynd-
að flokk sér, í því skyni að
hvetja stjórnina og þjóðina til
þess að leggja fram krafta sína
óskifta í ófriðnum. Hefir þessi
flokkur fallist á að bezt sé að
koma á almennri herþjónustu-
skyldu. Er talið líklegt að þessi
flokksbrot renni saman, þar sem
bæði hafa sömu grundvallarstefnu.
Myndast þá öflugur stjórnarand-
stæðingaflokkur í þinginu.
Frá Saloníki
í nýkomnum blöðum frá út-
löndum er skýrt frá því að her
bandamanna í Saloníki sé nú
farinn að sækja fram norður
Vardardalinn. Skömmu fyrir síð-
ustu mánaðamót gerðu þjóð-
verjar árás á borgina á loftskip-
TIL M i N N IS:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, Id.kv. ti) 1!
Borgarst.skrif.st. í hrnnastöð opín v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K, F. U. M. Alm. samlc, sunnd. 81/, siðd
Landakotsspit. Sjúkravitj.tími kl, 11-1,
Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við-
tals 10-12
Lándsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
Landssiminn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúrugripasafnið opið l1/,-21/, síðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1
Þjóömenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
Ókeypis lækning háskólans
Kirkjustræti 12:
Alm. lækningar á þriðjud. og föstud.
kl, 12—1.
Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud.
kl. 2—3.
Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3.
Augnlækningar í Lækjargötu 2 á ir.ið-
vikud. kl. 2—3,
Landsféhirðir kl. 10—2 og 5—6.
um. Vörpuðu þeir niður um 20
tundurhylkjum, en gerðu lítinn
usla að því er bandamenn segja.
Ef Verdun heíði fallið
Amerískur fjármálamaður, sem
nýlega fór um England á leið frá
Þýzkalandi, segir, að því er ensk
blöð herma, að Þjóöverjar hafi gert
sér vonir um að vinna Verdun á
einni viku, og átti það að verða
síöasla stórorustan af þeirra hálfu.
En þegar þeir heföu náð Verdun
á sitt vald, hefðu Þjóöverjar ætlað
að bjóöa bandamönnum frið með
þeim kjörum, að Þjóðverjar sleptu
tilkalli til Belgíu og þess hluta
Frakklands, sem þeir nú hafa á sínu
valdi, en áskilji sér greiddan her-
kosnað í peningum. Allar þýzkar
nýlendur skyldu bandamenn láta
af hendi og mikinn hluta af land-
eignum Belgíu í Kongó. Jafnrétti
á sjó skyldi trygt af öllum stór-
veldum Norðurálfunnar, Ameríku
og Japan. Pólland skyldi verða
sérstakt konungsríki.
Ef bandamenn vildu ekki ganga
að þessum skilmálum, ætluðu Þjóð-
verjar að kalla öll hlutlaus ríki til
vitnis um tilraunir þeirra tit að
koma friði á, og síðan halda ó-
friðnum áfram, en eftir þaö ætluöu
þeir aðeins að verjast, nema á sjón-
um. Kafbátahernaðurinn átti að
verða hálfu grimmari eftir en áður.
Korn frá Rúmenfu
Miðríkin hafa nýlega keypt af
Rúmenum 100,000 vagna af hveiti
og 40,000 af mais. En þjóðverj-
ar selja Rúmenum ýmsar iðnað-
arvörur í staðinn.