Vísir - 09.04.1916, Síða 4

Vísir - 09.04.1916, Síða 4
VÍSlR Símskeyti frá fréttaritara Vísis Sagan um Stóia-Björn Khöfn 8. apríl. Héruðin Kanton og Kvantung (í Kfna) hafa lýst sig óháð ríkisheildinni. Roosevelt verður í kjöri við forsetakosningarnar f Bandarfkjunum. TT * sem kynnu aö vilja selja Laugarnessspítala, IJ | í um eitt ár frá 14. maí næstkomandi að telja ^ hérumbil 50 lítra af nýmjólk, heimflutta á hverjum morgni í hús spítalans, sendi mér tilboð sín með lægsta verði fyrir 15. apríl næstk. Laugarnesspítala 18. mars 1916. Bæjarfréttir, Frh. frá 1. síðu. Bjarnaborgarkaupin. Á fundi bæjarstj, á finitudaginn töluðu þeir H. Hafliðason og Sig. Jónsson með kaupunum, auk borg- arstj., en vegna rúmleysis í blaðinu var ekki hægt að birta ágrip af ræðum þeirra, enda alt tekið fram í ræöu borgarstjóra sern með þeim mælti. Sig. taldi líklegt að hann heföi veriö mótfallinn kaupunum, ef hann ætti ekki sæti í fátækra- nefndinni og þekti ekki af eigin raun hve erfitt hún á með að fá húsnæði handa þurfalingunum. — Líklegt er að mál þetfa verði bráð- lega athugað nánar hér í blaðinu. Einar Indriðason, , ♦ bankaritari hefir tekiö sér ættar- nafniö Viöar. Bankalóð. Nýjasta uppástunga um lóð handa Landsbankanum er sú, að bankinn eigi að kaupa Hótel íslatid, rífa það og byggja á lóðinni. — Uppá- stungan er ágæt, þó ekki væri vegna annars en þess, að við þaö mink- aði brunahættan í bænum að mun. En sá galli er á, að margra ára leigusamningar eru á húsinu. — Annars segja sumir að það sé margsannað aö Hótel Island geti ekki brunnið. Nýtt bankamál. Sá kvittur gengur um bæinn, að nýtt bankamál muni vera í aðsígi. Oifting, í gær giftu sig í Khðfn: Páll Sæmundsson, cand. og Magnea Ouðmundsdóttir Jakobssonar (hafn- arumsjónarmanns). í Betel flytur P. Sigurösson biblíufyrir- lestur í kvöld kl. 7 um: Félagslíf kirkjunnar. Skipafregnir. E/s 01 g a fer til Olasgow á morgun. Pósti sé skilað kl. 1. A r e kom í morgun frá Eng- landi. Bjarni Björnsson endurtekur skemtun sína í kvöld í síðasta sinn. Hann fer til Vest- mannaeyja með Gullfossi. Hitt og þetta. Lyng til hernaðarþarfa. Sagt er að þjóðverjar hafi keyft feiknin öll af lyngi um öll Norðurlönd og látið flytja það til vígvallarins á Frakklandi. Nota þeir lyngið til varnar gegn eitur- lofttegundum, sem óvinirnir veita gegn þeim í bardögunum. Eru gerðir háir lynggarðar fyrir fram- an skotgrafirnar, og þegar eitur- loftið nálgast er kveikt í þurru lynginu, og hitnar þá loftið þar í kring og streymir upp. Með þeim loftstraumi berst svo eitur- loftið upp frá jörðinni og getur ekkert mein gert hermönnunum sem liggja í skotgröfum þar fyr- ir aftan. Eftir 100 ár segir vísindarit eitt enskt aö hætt muni að nota hesfa, gufu og raf- magn sem vinnuafl, þá verði aöeins notaðar vélar reknar með loftþrýst- ingi. Ljós verður þá ekki dýrara en vatn er nú og andrúmsloft í stór- borgum verður miklu hreinn vegna þess að kol verða þá ekki notuð og hávaðinn á götunum hverfur, 2000 göngustafi átti Játvarður 7. Bretakonungur þegar hann dó. og andarnefjuspikið Eftir J. F. Rönne. ---- Frh. Enginn hreyfði sig. Þá sagði kaupmaðurinn: Á ekki að yfirheyra þá? Yfirheyra, sagði sýslumaður, yfirheyra. — Jú, náttúrlega á að yfirheyra þá. Það verður að kalla þá fyrir sjórétt, — hann tók um ennið - nú fer eg að sækja réttarbókina. Hann flýtti sér af stað, en þeg- ar hann var kominn spölkorn frá bryggjunni sneri hann sér við og kallaði: Er kofinn lœstur? Látið þið undir eins slagbrand fyrir dyrn- ar svo þeir komist ekki út. Að fjórðungi stundar Iiðnunt kom hann aftur með réttarbók- ina og hafði sett upp einkennis- húfuna. Menn þyrptust í smá- hópa skamt frá kofanum. Sýslu- maður lét bera þangað borð og var það sett spotiakorn þar frá, hann settist við það, tók penna og dýfði honum ofan í blekbytt- una og skipaði réttarvottunum að Ijúka upp. Réttarvottarnir otuðu hvor öðr- um fram. Hvað er þetta, sagði sýslu- maður og hnyklaði brýrnar. Ætli sýslumaðurinn vildi ekki heldur Ijúka upp sjálfur. Hvaða vitleysa, ijúkið upp þeg- ar í stað. Annar réttarvotturinn læddist að dyrunum, ýtti frá slagbrand- inum og hratt hurðinni upp. — Síðan hopaði hann aftur á bak svo nærri lá að hann velti dóm- araborðinu um koll. Allir steinþögðu. Halió, kallaði sýslumaður. Hann fékk ekkert svar. I nafni laganna, halló, kallaði sýslumaður þá. Einhver hreyfði sig inni í kof- anum og litlu síðar kom Stóri- Björn fram í dyrnar. Hann var að nudda stýrurnar úr augunum. Vertu kyr inni! Vertu kyr inni! kallaði sýslumaður og ýtti stóln- um aftur á bak, svo hann gæti flúið ef þess gerði þörf. Björn horfði forviða á sýslu- mann. Það var auðséð að hann botnaði ekkert í því hvað hér var um að vera. Niðurl. Herbergi með húsgögnum fást leigð frá 1.—14. maí á Bergstaða- stræti 29. [76 Til leigu er stór stofa og björt (móti sól) og lítið herbergi. Gas og vatnsleiðsla fylgir. A. v. á. [107 Skemtileg herbergi til leigu frá 14. maí. A. v. á. [108 Stofa með húsgögnum tii leigu frá 14. maí í Tjarnargöfu 40, hjá Krabbe. [122 Snoturs herbergis, helzt móti sól, óskar einhleypur kvennmaður frá 14. maí. Uppl. í Þvottahúsinu á Skólavöröustíg 12. [123 Frá 14. maí er til leigu eitt sól- ríkt herbergi, á ágætum stað í bæn- um, mjög hentugt fyrir einhleypan kvennmann eða karlmann. A. v. á. '____________________[124 Góð stofa með forstofu og að- gangi að síma er til leigu á Stýri- mannastíg 9. [125 Þrjú herbergi ásamt eldhúsi og geymsiu óskast frá 14. maí. Áreið- anleg borgun, Tiiboð merkt »25« leggist inn á afgr. Vísis. [126 Fundin silfurbrjóstnál. Viljist á Laugaveg 51. [127 Tapast hefir silkiregnhlíf með grænu handfangi. A. v. á. [128 Úr fundiö. Vitjist á Spítaiast. 8. [129 Morgunkjóiar smekklegasin, vænst- ir og ódýrastir, söniuieiöislangsjöi og þríhyrnur eruávalt til sölu í Gatða- stræti 4 uppi. (Gengið upp iiá Mjóstræti 4). [ i Komið og skoðið svuntur og morgunkjólana í Doktorshúsinu Vest- urgötu. [68 Morgunkjólar úr góðu vaskaiaui fást á Vesturgötu 38 niðii. [97 Gulrófur kaupir Lauganesspítalin. _______________________(113 Vísir 201. tbl. (1. júlí) og 247. tbl. (16. ág.) óskast keypt strax í prentsmiöju Þ. Þ. Clementz, [114 Góð síld til sölu með tækifæris- verði. A. v. á. [130 Ferðakista óskast tii kaups eða leigu. A. v. á. [131 Lifandi skjaldbaka er til sölu á Laugaveg 20 B (uppi). [132 Stúlku vantar á matsöluhús frá 14. maí. A. v. á. [104 Roskin kona óskar eftir ráðskonu- störfum frá 14. maí. Uppl. á Frakka- stíg 20. [116 TAPAfl — FUNDIfi BSS5. Fæði fæst í Ingólfsstr. 4. [8

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.