Vísir - 26.04.1916, Blaðsíða 2
V í SIR
Herbergi.
Tveir ungir menn í góðum stöð-
um hér, óska að fá tvö herbergi,
annaö lítið, með góðum húsgögn-
um, í eöa nálægt Miðbænum. Til-
boð merkt »Thor« sendist afgr.
Vísis.
Byggingarefni
Vísir hefir átt tal við Jón Þor-
láksson, landsverkfr., eftir að hann
kom heim úr utanför sinni. Full-
yrðir hann að menn þurfi ekki að
kvíöa því, að ekki verði unt að fá
öll þau byggingarefni sem hér þarf
á að halda, járn eöa annað.
Eins og menn vita, fór Jón utan
til þess meðal annars að reka á
eftir afhendingu á járni, sem Norð-
maður einn hafði selt landssjóði í
nóvember í hausí. Járn þefta átti
að afhendast á höfn hér fyrir löngu
8íðan, en daginn eftir að Jón kom
til Khafnar var það sent frá Bergen
með Flóru. En ekki álítur hann
að dráttur sá, sem orðið hefir á
afhendingu járnsins, stafi af því, að
erfitt hafi verið að fá það, heldur
af því, að það hefir hækkað nokk-
uð í verði síðan kaupin voru gerð,
og þó einkum vegna þess hve
flutningsgjaldið með Bergensskip-
unum hefir hækkað mikiö. Mun selj-
anth'nn hafa beðið töluvert tjón á
sölunni og þessvegna kinokað sér við
að fullnægja samningunum.
Mesta óráð telur landsverkfræð-
ingurinn að fresta nauðsynlegum
byggingum og innkaupum á efni.
Þvf þó að efnið fáist seinna, þá er
verðið altaf að hækka.
Það er hrein furða, að þeir sem
á byggingarefni þurfa aö halda,
skuli ekki tryggja sér það, áður en
verðið^ hækkar enn meira. Fyrir
1. apríl var ,hægt að fá cement
hingaö komið fyrir 9 kr. tunnuna,
en nú|er ekki hægt að fá það ó-
dýrara en 12 kr., og eftir 1. maí
er búist við að það hækki enn
meira.
Hvað einstaklingurinn
gerði.
19. þ. mán, spyr Landiö svo:
»Hvað mundi einstaklingurinn gera
y ef hann ætti völ á tveimur jafn-
hentugum lóðum, annari á kr. 32
! og 50 aura meterinn, en hina á
meira en 111 kr. mtr. ?«
Með venjulegri skarpskygni á-
lyktar ritstjórinn, að einstaklingur-
inn mundi velja ódýrari lóðina.
Ekki er gott að segja, hversvegna
ritstjórinn er að spreita sig á
þessu, honum líklega mjög erfiða,
viðfangsefni, nema ef vera skyldi
að það væri til þess að reka af sér
óvitaorðið. Að vfsu setur hann
þessa spurningu fram í sambandi
vib lóðakaup Landsbankans, en
honum láist algerlega að færa sönn-
ur á að Arnarhólslóðin sé jafnhent-
ug og Hótel Reykjavíkur, en á því
byggir hann.
Það verður að vísu ekkert sannað
um þaö, hvort H.R. lóðin sé hent-
ugri, en ritstj. Vísis telur hana það.
Hann lelur hana svo mikiö hent-
ugri, að ekki sé horfandi í verð-
muninn. — Það er betra að borga
segjum 70 þús. kr. meira fyrir lóð-
ina í eitt skifti fyrir öll, en að tapa
svo og svo miklum viðskiftum á
ári meðan bankinn stendur, vegna
þess að hann stendur á óhentug-
um stað. Þess vegna getur ritstj.
Vísis ekki mælt með Arnarhólslóð-
inni.
Enginn efi er á því, að hver
kaupmaður myndi heldur kjósa H.
R. lóðina og kaupa hana, þó að
verðmunurinn sé svo mikill, ef
hann ekki skorti fé til þess. Bank-
ann skortir ekki fé. Og það er
léleg hagsýni, að láta það ráða, hvor
Ióðin er ódýrari, ef nokkur vafi er
á því hvor er hentugri.
Skatta-álögur
Breta.
McKenna, fjármálaráðh. Breta,
hefir Iagt fyrir þingið nýtt skatta-
málafrumvarp, og eiga skattarnir
eftir því að nema 500 miljónum
sterlingspunda.— Er það sú stór-
kostlegasta skattabyrgði, sem
nokkru sinni hefir verið lögð á
nokkra þjóð, meira en 10 sterl.-
pund á mann. — Þó segja ensk
blöð að frumvarpi þessu hafi
verið tekið með fögnuði, enda
beri það ótvíræðan vott um
styrkleik enska rfkisins og engin
ófriðarþjóð önnur hafi treyst sér
að ná svo miklum tekjum, til að
standast kostnaðinnn af ófriðn-
um, á þennan hátt.
Stærsti skatturinn sem frum-
varpið leggur á þjóðina er tekju-
skatturinn — ekki tollar. Hann
nemur 195 miljónnm punda eða
sem nœst nákvæmlega jafn miklu
og allar tekjur breska ríkisins
síðasta árið fyrir ófriðinn. Hver
maður sem vinnur sér inn meira
en 2500 pund, eða hefir aðrar
tekjur er nema 2000 pd. greiðir
5 sh. af hverju stérlingspundi.—
Allir ríkustu tnennirnir eiga þann-
ig að greiða fjórða hluta tekna
sinna til ríkis þarfa, auk þess
sem á þá er lagt með öðrum
sköttum. Þeir sem vinna sér inn
500—1000 pd.st., greiða einn átt-
unda hlutann (63—125 pd.st.)
auk annara skatta, en af öðrum
tekjum, jafn-miklum einn fimta
hluta (100—200 pd.st.).
Skattskyldir eru allir sem hafa
130 st.pd. árstekjur.
Hlutafélög, sem borga ágóða
til hluthafanna, eiga að greiða
einn fjórða hluta af ágóða þeim
sem til skifta kemur. Þó er tek-
ið tillit til þess hverjar tekjur hlut-
hafarnir hafa.
Fasteignaskatturinn er. áætlað-
ur 30 miljónir.
Af aukagróða, sem stafar af
ófriðnum greiðist sérstakur skatt-
ur, 60 % af gróðanum, en að
meðtöldum tekjuskattinum og
öðrum sköttum sem á fyrirtækj-
unum hvíla, eru greidd 77 % af
þessum aukagróða til ríkisins.
Af nauðsynjum eru tollar lagðir
að eins á te og sykur. Þessir
tollar koma all þungt niður á fá-
tæklingum, en eru líka einu skatta-
býrðirnar sem á þeim hvíla. —
Toll á einnig að leggja á eldspít-
ur, um 30 aura á þúsund hvert.
Þá hefir verið lagður skattur á
skemtanir og járnbrautarfarseöla.
— Skemtanaskatturinn er mjög
vel látinn, En eina nýmælið sem
mætt hefir nokkurri verulegri mót-
spyrnu er skatturinn á járnbraut-
arfarseðlana.
Eins og áður er sagt, láta ensk
blöð mjög vel yfir frumvarpinu,
auðvitað eru undantekningar
frá því. Fylgismenn verndartoll-
anna eru æfir yfir því, að tæki-
færið var ekki notað til þess að
leggja tolla á allar aðfluttar vör-
ur, sbr. vörutollinn íslenska. —
En líklegt er að sú stefna ryðji
sér seint til rúms á Englandi.
SetvdxB au^sxtv^av
ttmatvtega.
T I L MINNIS:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, Id.kv. til 11
Borgarst.skrifat. i brunastöð opín v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op. v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk. Laufásv. kl. 12-3 og 5-7.v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K. F. U. M. Alm. samk. sunnd. 81/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl, 11-1.
Landsbankinn 10-3, Bankastjóm til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
Landssiminn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúrugripasafnið opið Þ/,-21/, siðd.
Pósthúsið opið V. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d,
Vífilsstaðahælið. Hcimsóknart'mi 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
Ókeypis lækning háskólans
Kirkjustræti 12:
Alm. lækningar á þriðjud. og fðstud.
kl. 12—1.
Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud.
kl. 2—3.
Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3.
Augnlækningar i Lækjargötu 2 á mið-
vikud. kl. 2—3.
Landsféhirðir kl. 10—2 og 5—6.
VANDAÐAR og ÓDÝRASTAR
Líkkistur
seljum vlO undlrrltaOir.
Kisturnar má panta hjá
' hvorum okkar sem er. <v"í
Steingr. Guðmundsson, Amtm.st. 4.
Tryggvi Arnason, Njálsg. 9.
Jtatvtwu
s\6mcww 02
— vanar fiskverkun — geta feng-
ið atvinnu á Austfjörðum í sum-
ar. Hátt kaup. Semjið við Jón
Sveinsson, Amtmannsstíg 4, —
Heima kl. 4—6 e. h.
Matjurta-
garðar,
2—3 óskast leigöir, helzt í aust-
urbænum.
Guöný Ottesen,
Klapparstíg 1 B.
2000 pd. af töðu
eða góðu útheyi
kaupist nú þegar.
Afgr. vísar á.
Líkkistur.
Miklar birgðir fyrirliggjandi.
Séð um jarðarfarir ef óskað er
Sími 93. Hverfisg. 40.
Helgi Helgason