Vísir - 27.04.1916, Blaðsíða 2

Vísir - 27.04.1916, Blaðsíða 2
VÍSIR VISIR Afgrelðsla blaðsins á Hótel Island er opin frá kl. 8—8 á hverj- um degi, • Inngangur frá Vallarstræti. Skrifstofa á sama stað, inng. frá Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá ld. 3-4. Sími 400.- P. O. Box 367. Fatabúðin. Karlmannaföt, fermingar.'öt, nær- fatnaður, enskar húfur, regnkápur, morgunkjólar, barnakjólar og kápur, slifsi og m. f). Bezt að verzla í Fatabúðinni í Hafnarstræti 18. (Inngangur um miödyrnar). Horfur austan fjalls 21. apríl (föstudaginn langa). Nú er sumariö komið, en ekki er útlitið sumarlegt: norðan bál og kuldi á hverjum degi, og í dag hefir veriö bylnæðingur. í Vík í Mýrdal hefir verið svo vondur byl- ur í dag, að vaiia hefir verið fært húsa í miili og fannkoma svo rnikil, að fönnin er komin upp á miðja glugga á timburhúsum. Undan- farna daga hefir verið sólbráð, og er því víðast hvar allvel uppleyst. Þó eru ísalög víða allmikil ennþá, t. d. er enn ein íshella á Þjórsá, frá Urriðafossi og fram í sjó, og er slíkt sjaldgæft um sumarmál. Ennþá mun víðast hvar öllum fén- aði gefiö, að minsta kosti hálf gjöf. Hvergi er taiað um heyskort hér um sýslur (Árness- og Rangárvalla- sýslu) og fénaður mun vera í góðu standi. í Skaftártungu og Síðu, í Vestur-Skaftafellssýslu er sagt að menn séu orönir heytæpir, enda gátu þeir ekki náð öllu heyi sínu í haust. Aflabrögð hér austanfjails eru með langminsta móti. í Þorláks- höfn er kominn 80 fiska hlutur hæst, en hjá sumum sama sem ekki neitt. Sagt er aö þar séu nú nær 500 sjómenn. Fer þar mikill vinnu- kraftur til lítils, þegar ekki er meira að gera en nú er þar. í Selvogi er kominn 200 fiska hlutur. í Herdísarvík 300 hæst, en 50 fiska hlutur lægst. Undanfarn- ar vertíðir hefir verið lítið um út- ræði í Herdísarvík, en í vetur fluttu sig nokkrir úr Þorlákshöfn þangað, Og ganga nú 6 skip þaðan. Lík- indi að þar rísi upp aftur veiði- stöð. Á Eyrarbakka eru komnir 200 fiska hlutir hæst og talsvert af því smælki. Á Stokkseyri 2— 300 fiska hlutir. Ekki eru menn samt vonlausir að úr öllu þessu kunni vel að ræt- J ast. Það var gamalla manna mál- tak: »það batnar upp úr páskun- um«, og enn mun trú þessi lifa, að þaö batni til lands og sjávar upp úr páskunum. Ó. 1. Bémi Hollweg og ispiili. Þýski kanslarinn, von Beth- mann Hollweg, hélt nýlega ræðu í þýska þinginu um ófriðinn og friðarhorfur. x Hann kvað óvinina halda að Þjóðverjar væru að þrotum komn- ir, að þá vantaði lið og að allur kjarkur væri úr hermönnum þeirra. En ekki þyrfti annað en benda á orrustuna hjá Verdun til sann- indamerkis um að þessu vœri ekki svo farið. Og yfirleitt mættu Þjóðverjar vel við una hvernig sakir stæðu á öllum vígstöðvun- um. — Þá kvað liann óvinina reyna að vinna á Þjóðverjum með sulti og hafnbanni, er þeir gætu ekki unnið þá með vopnum. Sagðist hann vera hissa á því að óvin- { irnir syldu enn þá halda að þeim tækist það. Það væri að vísu satt, að víða vœri þröngt í búi á Þýskalandi um þessar mundir, en landsmenn væru fúsir til að Ieggja hart á sig. — Úr þessu myndi brátt rakna því uppskeru- horfur væru góðar. Mestur hluti ræðu kanslarans var um fyrirætlanir Þjóðverja og friðarhorfur. Kvað hann til lítils að tala um frið ef hann ætti að kosta það að »hervald Prússa yrði algerlega brotið á bak aft- i ur«, eins og Asquith hefði sagt. j Slíkum orðum svöruðu Þjóðverj- ar með sverðinu. Hann kvaðst hafa látið uppi að Þjóðverjar væru fúsir til að semja frið, en um ó- vinina væri öðru máli að gegna. Það væri auðsætt á því sem stjórnmálamenn þeirra alira hefðu talað undanfarna mánuði. Hann gat þess að ekki gæti komið til mála, að við friðarsamningana yrðu gerðar sömuríkjaskipanir og verið hefði fyrir ófriðinn. Pólland mundi verða gert að sérstöku ríki, sem ætti að vera til varnar fyrir ágangi Rússa. Hann kvað engan mann geta vænst þess, að Þjóðverjar sleptu þeim löndum, sem þeir hefðu tekið á vestur- vígstöðvunum, nema þeir gætu verið öruggir um framtíð sína. Þeir mundu búa svo um hnút- ana að Belgía yrði ekki undir- Iægjuríki Engla og Frakka. Var helst á kanslaranum að heyra, að Þjóðverjar mundu stofna þar nýtt ríki, þar sem flæmska yrði töluð og flæmski þjóðflokkurinn réði lögum og lofum. Asquith stjórnarformaður Breta svaraði ræðu kanslarans nokkr- um dögum síðar í veislu, sem haldin var fyrir franska þing- menn í kynnisför til Englands. Kvað hann auðsætt að kansl- arinn teldi bandamenn verða að eiga upptökin að friðarmálum, eins og þeir væru sigraðir en Þjóðverjar sigurvegarar.— »En«, mælti hann, »við erum ekki sigr- aðir og verðum ekki sigraðir«. Asquith kvað kanslarann hafa snúið út úr orðum sínum um að brjóta á bak aftur, þau orð lytu eingöngu að því að brjóta á bak aftur völd hernaðarflokks- ins sem nú réði lögum og lof- um á Þýskalandi. Hann mintist á Pólland og Belgíu. Pólverjar mundu muna meðferð Prússa á sér. Það mundu fáir trúa því að Pólverjar fengju að ráða sér sjálfir og tala móð- urmál sitt eins og kanslarinn hefði komist að orði. Mönnum væri í fersku minni tiIraunirPrússa um síðastliðin 20 ár að gera Pól- verja þýska. Kanslarinn sjálfur hefði verið aðalhvatamaður þess að þýskir bœndur hefðu verið settir niður í lönd Pólverja í Pos- en fyrir nokkrum árum. Pólsku hefði veri bannað að tala í skólum þeirra nema við trúarbragðakenslu, en það hefði jafnvel þótt of mikið svo nú yrðu börn Pólverja að læra bæn- irnar sínar á þýsku, Út af því sem kanslarinn hefði sagt að Þjóðverjar ætiuðu að setja á stofn nýja Belgíu að ófriðn- um loknum, þá væri því til að svara að bandamenn einsettu sér að endurreisa g ö m 1 u Belgíu. Taflraun. Frank J. Marshall skákkonungur Bandaríkjanna hefir nýlega teflt 105 skákir samtímis. Hann vann 82, tapaði 8, en 15 voru.jafntefli. g&zú að \ ^xsv T I L M I N N I S: Baöhúsið opið v. d. 8-8, ld.kv. til 11 Borgarst.skrifst. í brunastöð opín v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2 og 4-7 Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d Islandsbanki opinn 10-4. K, F. U. M. Alm. samk, sunnd. 81/, siðd Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl, 11-1. Landsbankinn 10-3, Bankastjórn til við- tals 10-12 Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3 Landssiminn opinn v. d. daglangt (8-9) Helga daga 10-12 og4-7 Náttúrugripasafnið opið 1V.-21/, siðd. Pósthúsið opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1 Samábyrgðin 12-2 og 4-6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d. Vífilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1 Þjóðmenjasafnið opið sd. þd, fmd. 12-2 Ókeypis lækning háskólans Kirkjustrætl 12: Alm. lækningar á þriðjud. og föstud. kl. 12—1. Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud. kl. 2—3. Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3. Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið- vikud. kl. 2—3. Landsféhirðir kl. 10—2 og 5—6. Nóg af savÆstúnnum Hjá J óni í Söif hóli. VANDAÐAR og ÓDÝRASTAR Líkkistur seljum viO undlrrltaOir. „■v Kisturnar má panta hjá j. ' hvorum okkar som er. Steingr. Guömundsson, Amtm.st. 4. Tryggvi Arnason, Njálsg. 9. Líkkistur. Miklar birgðir fyrirliggjandi. Séð um jarðarfarir ef óskað er Sími 93. Hverfisg. 40. Helgi Helgason Frá Vestur-Islendingum Verðlaun fyrir hraðkappskák. Hraökappskák fór fram í Winni- peg í vetur. Keppendur voru 30 og einn þeirra fslendingur, aö nafni Sumarliði Sveinsson. Varð hann annar í rööinni, tapaöi aö eins einni skák, fyrir þejm sem sjgUr Vann. Sumarliði fekk því önnur verðlaun. Hann hafði þó aldrei þreytt hraö- skák áöur, en í henni eru aðeins gefnar 10 sekúndur til hvers leiks. Og sagt er aö keppendur aliir hafi verið úrvals skákmenn. — Sumar- liði fluttist vestur um haf vorið 1913. Haföi þá nýlega tekið þátt í kapp- skák hér heima og oröið næstur Pétri Zóphoníassyni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.