Vísir - 27.04.1916, Qupperneq 2
VÍSIR
VISIR
Afgrelðsla blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi, •
Inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað, inng. frá
Aðalstr. — Ritstjórinn til viðtals frá
ld. 3-4.
Sími 400.- P. O. Box 367.
Fatabúðin.
Karlmannaföt, fermingar.'öt, nær-
fatnaður, enskar húfur, regnkápur,
morgunkjólar, barnakjólar og kápur,
slifsi og m. f).
Bezt að verzla í Fatabúðinni í
Hafnarstræti 18. (Inngangur um
miödyrnar).
Horfur austan fjalls
21. apríl (föstudaginn langa).
Nú er sumariö komið, en ekki
er útlitið sumarlegt: norðan bál og
kuldi á hverjum degi, og í dag
hefir veriö bylnæðingur. í Vík í
Mýrdal hefir verið svo vondur byl-
ur í dag, að vaiia hefir verið fært
húsa í miili og fannkoma svo rnikil,
að fönnin er komin upp á miðja
glugga á timburhúsum. Undan-
farna daga hefir verið sólbráð, og
er því víðast hvar allvel uppleyst.
Þó eru ísalög víða allmikil ennþá,
t. d. er enn ein íshella á Þjórsá,
frá Urriðafossi og fram í sjó, og
er slíkt sjaldgæft um sumarmál.
Ennþá mun víðast hvar öllum fén-
aði gefiö, að minsta kosti hálf gjöf.
Hvergi er taiað um heyskort hér
um sýslur (Árness- og Rangárvalla-
sýslu) og fénaður mun vera í góðu
standi. í Skaftártungu og Síðu, í
Vestur-Skaftafellssýslu er sagt að
menn séu orönir heytæpir, enda
gátu þeir ekki náð öllu heyi sínu í
haust.
Aflabrögð hér austanfjails eru
með langminsta móti. í Þorláks-
höfn er kominn 80 fiska hlutur
hæst, en hjá sumum sama sem ekki
neitt. Sagt er aö þar séu nú nær
500 sjómenn. Fer þar mikill vinnu-
kraftur til lítils, þegar ekki er meira
að gera en nú er þar.
í Selvogi er kominn 200 fiska
hlutur. í Herdísarvík 300 hæst, en
50 fiska hlutur lægst. Undanfarn-
ar vertíðir hefir verið lítið um út-
ræði í Herdísarvík, en í vetur fluttu
sig nokkrir úr Þorlákshöfn þangað,
Og ganga nú 6 skip þaðan. Lík-
indi að þar rísi upp aftur veiði-
stöð. Á Eyrarbakka eru komnir
200 fiska hlutir hæst og talsvert
af því smælki. Á Stokkseyri 2—
300 fiska hlutir.
Ekki eru menn samt vonlausir
að úr öllu þessu kunni vel að ræt- J
ast. Það var gamalla manna mál-
tak: »það batnar upp úr páskun-
um«, og enn mun trú þessi lifa, að
þaö batni til lands og sjávar upp
úr páskunum.
Ó. 1.
Bémi Hollweg
og ispiili.
Þýski kanslarinn, von Beth-
mann Hollweg, hélt nýlega ræðu
í þýska þinginu um ófriðinn og
friðarhorfur. x
Hann kvað óvinina halda að
Þjóðverjar væru að þrotum komn-
ir, að þá vantaði lið og að allur
kjarkur væri úr hermönnum þeirra.
En ekki þyrfti annað en benda
á orrustuna hjá Verdun til sann-
indamerkis um að þessu vœri
ekki svo farið. Og yfirleitt mættu
Þjóðverjar vel við una hvernig
sakir stæðu á öllum vígstöðvun-
um. —
Þá kvað liann óvinina reyna
að vinna á Þjóðverjum með sulti
og hafnbanni, er þeir gætu ekki
unnið þá með vopnum. Sagðist
hann vera hissa á því að óvin-
{
irnir syldu enn þá halda að þeim
tækist það. Það væri að vísu
satt, að víða vœri þröngt í búi
á Þýskalandi um þessar mundir,
en landsmenn væru fúsir til að
Ieggja hart á sig. — Úr þessu
myndi brátt rakna því uppskeru-
horfur væru góðar.
Mestur hluti ræðu kanslarans
var um fyrirætlanir Þjóðverja og
friðarhorfur. Kvað hann til lítils
að tala um frið ef hann ætti að
kosta það að »hervald Prússa
yrði algerlega brotið á bak aft- i
ur«, eins og Asquith hefði sagt. j
Slíkum orðum svöruðu Þjóðverj-
ar með sverðinu. Hann kvaðst
hafa látið uppi að Þjóðverjar væru
fúsir til að semja frið, en um ó-
vinina væri öðru máli að gegna.
Það væri auðsætt á því sem
stjórnmálamenn þeirra alira hefðu
talað undanfarna mánuði. Hann
gat þess að ekki gæti komið til
mála, að við friðarsamningana
yrðu gerðar sömuríkjaskipanir og
verið hefði fyrir ófriðinn. Pólland
mundi verða gert að sérstöku
ríki, sem ætti að vera til varnar
fyrir ágangi Rússa. Hann kvað
engan mann geta vænst þess, að
Þjóðverjar sleptu þeim löndum,
sem þeir hefðu tekið á vestur-
vígstöðvunum, nema þeir gætu
verið öruggir um framtíð sína.
Þeir mundu búa svo um hnút-
ana að Belgía yrði ekki undir-
Iægjuríki Engla og Frakka. Var
helst á kanslaranum að heyra, að
Þjóðverjar mundu stofna þar nýtt
ríki, þar sem flæmska yrði töluð
og flæmski þjóðflokkurinn réði
lögum og lofum.
Asquith stjórnarformaður Breta
svaraði ræðu kanslarans nokkr-
um dögum síðar í veislu, sem
haldin var fyrir franska þing-
menn í kynnisför til Englands.
Kvað hann auðsætt að kansl-
arinn teldi bandamenn verða að
eiga upptökin að friðarmálum,
eins og þeir væru sigraðir en
Þjóðverjar sigurvegarar.— »En«,
mælti hann, »við erum ekki sigr-
aðir og verðum ekki sigraðir«.
Asquith kvað kanslarann hafa
snúið út úr orðum sínum um
að brjóta á bak aftur, þau orð
lytu eingöngu að því að brjóta
á bak aftur völd hernaðarflokks-
ins sem nú réði lögum og lof-
um á Þýskalandi.
Hann mintist á Pólland og
Belgíu. Pólverjar mundu muna
meðferð Prússa á sér. Það mundu
fáir trúa því að Pólverjar fengju
að ráða sér sjálfir og tala móð-
urmál sitt eins og kanslarinn
hefði komist að orði. Mönnum
væri í fersku minni tiIraunirPrússa
um síðastliðin 20 ár að gera Pól-
verja þýska. Kanslarinn sjálfur
hefði verið aðalhvatamaður þess
að þýskir bœndur hefðu verið
settir niður í lönd Pólverja í Pos-
en fyrir nokkrum árum.
Pólsku hefði veri bannað að
tala í skólum þeirra nema við
trúarbragðakenslu, en það hefði
jafnvel þótt of mikið svo nú
yrðu börn Pólverja að læra bæn-
irnar sínar á þýsku,
Út af því sem kanslarinn hefði
sagt að Þjóðverjar ætiuðu að setja
á stofn nýja Belgíu að ófriðn-
um loknum, þá væri því til að
svara að bandamenn einsettu sér
að endurreisa g ö m 1 u Belgíu.
Taflraun.
Frank J. Marshall skákkonungur
Bandaríkjanna hefir nýlega teflt 105
skákir samtímis. Hann vann 82,
tapaði 8, en 15 voru.jafntefli.
g&zú að
\ ^xsv
T I L M I N N I S:
Baöhúsið opið v. d. 8-8, ld.kv. til 11
Borgarst.skrifst. í brunastöð opín v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K, F. U. M. Alm. samk, sunnd. 81/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl, 11-1.
Landsbankinn 10-3, Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
Landssiminn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúrugripasafnið opið 1V.-21/, siðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-6.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vífilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd, fmd. 12-2
Ókeypis lækning háskólans
Kirkjustrætl 12:
Alm. lækningar á þriðjud. og föstud.
kl. 12—1.
Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud.
kl. 2—3.
Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3.
Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið-
vikud. kl. 2—3.
Landsféhirðir kl. 10—2 og 5—6.
Nóg af
savÆstúnnum
Hjá
J óni í Söif hóli.
VANDAÐAR og ÓDÝRASTAR
Líkkistur
seljum viO undlrrltaOir.
„■v Kisturnar má panta hjá j.
' hvorum okkar som er.
Steingr. Guömundsson, Amtm.st. 4.
Tryggvi Arnason, Njálsg. 9.
Líkkistur.
Miklar birgðir fyrirliggjandi.
Séð um jarðarfarir ef óskað er
Sími 93. Hverfisg. 40.
Helgi Helgason
Frá Vestur-Islendingum
Verðlaun fyrir hraðkappskák.
Hraökappskák fór fram í Winni-
peg í vetur. Keppendur voru 30
og einn þeirra fslendingur, aö nafni
Sumarliði Sveinsson. Varð hann
annar í rööinni, tapaöi aö eins einni
skák, fyrir þejm sem sjgUr Vann.
Sumarliði fekk því önnur verðlaun.
Hann hafði þó aldrei þreytt hraö-
skák áöur, en í henni eru aðeins
gefnar 10 sekúndur til hvers leiks.
Og sagt er aö keppendur aliir hafi
verið úrvals skákmenn. — Sumar-
liði fluttist vestur um haf vorið 1913.
Haföi þá nýlega tekið þátt í kapp-
skák hér heima og oröið næstur
Pétri Zóphoníassyni.