Vísir - 18.05.1916, Blaðsíða 2
VISIR
Þessir kumpánar, sem Iranað hafa
sér fram í trúnaðarstöður hjá verka-
mönnum, núa þannig hásetunum
því um nasir, að þeir hafi gert sig
seka um vítavert athœfi. En eru
þeir þá svo blindir, þessir »sjálf-
kjörnu« foringjar alþýðunnar, að
þeir sjái þaö ekki, að skylda íor-
ingja er ckki aðeins að eggja ekki
til vítaverðra athafna, heldur að ráða
frá þeim ?
En hvað segja annars hásetar
urti þessi lubbamenni, sem hafa
setið á fundum með þeim og héyrt
allar ráðagerðir þeirra án þess að
mæla í móti, en koma svo aftan
að þeim, þegar þeir eru orðnir
undir, og segia, að þeir hafi gerl
sig seka í vítaverðu athæfi ?
Þeir, sem le^jð hafa Vísi meðan
á verkfallinu stóð, geta bezt borið
um það, hve -miklar lygar hann
flutti um alþýðuna, eins og »Dags-
brún» komst að orði. Ritstjóri
hans þarf því ekki að bera hönd
fyrir höfuð sér, en þótfi rétt, í
eitt skifti fyrir öll, að gera grein
fyrir því, hvers vegna hann mun
leiða hjá sér að eiga orðastað við
þessi skítmenni.
Þó skal það fekið fram, að Visir
treystir sér ekki úl aö skera úr því
hvort ræður meiru um orð og
gerðir þessara pilta, óþokkaskapur-
; inn eða heimskan. — Verður að
álíta, að fítungur sá, sem hlaupið
hefir í kennarann frá Hrtflu
út af meinlausri frétt, sem Vísir
flutti og hafði eftir skilríkum manni,
stafi af flónsku einni. Því að varla
er manninum það alvara, ef hann
er með fullu viti, að telja það
«bíræfna og ósvífna* blaöamensku,
að segja frá því, aö hann hafi farið
á báti út í skip með vini sínum
Ólafi Friðrikssyni, þó hann hafi
aldrei í bátinn komið og um mis-
sýningu hafi verið að ræða.
góðs af, ef það borgar sig að
vinna þær námur og flytja kolin
til Noregs og Svíþjóðar, því þá
myndi auðvitað einnig borga sig
að flytja þau til Danmerkur. —
En af dönskum blöðum virðist
mega ráða það, aö Danir gerði
sér fult svo miklar vonir um ís-
lensku kolin í Stálvík og er mikið
um þau skrifað í dönskum blöð-
um. Er þar sagt áð félag hafi
verið stofnað til að vinna nám-
una og muni það njóta styrks
r í k i s i n s — verður það varla
skilið öðruvísi en að þar sé átt
við d a n s k a ríkið.
Að vísu megum vér vera þakk-
látir fyrir það að hreyfing kemst
á málið, hver sem hreyfingunni
veldur, en óneitanlega hefði það
verið betur í samræmi við sjálf-
stæðisskraf okkar, að við hefðum
sjálfir sýnt þá manndáð, að hrinda
máli þessu í framkvæmd en að
láta D a n i taka það upp á sína
arma. 0.
Fe 11 i r ?
Ekki fara enn sögur af því að
skepnur séu farnar að íalla á
Norðurlandi, en þó getur varla
hjá því farið, að svo sé. — Um
páskana var sagt að bændur ættu
alment ekki nema viku forða af
heyjum, en síðan eru nú fullar
þrjár vikur. — Að vísu tók snjó
eitthvað upp í Húnavatns- og
Skagafjarðarsýslum um eitt skeið
en síðari fregnir segja þar þó
jarðlaust með öllu. Matur var
sendur all-mikill norður með
Goðafossi, um 500 smálestir, en
það segir lítið, enda hafði hann
verið »rifinn út« á svipstundu.
VISÍR
A f g r e I ð s 1 a blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á hverj-
um degi,
inngangur frá Vallarstræti.
Skrifstofa á sama stað, Inng. frá
Aöalstr. — Ritstjórinn til vfðtals frá
kl. 3-4.
Sími 400.— P. O. Box 367.
y. j. u 3R.
VŒRINGJAR vinna á Melun-
um í kveld frá 6V2.
Blómsveiga
úr Tuhja og Blodbög
selur
Yerslunin GULLFOSS.
M Allar betri tegundir af 1
Iðunnartauui I
1 til sölu í
Vöruhúsinu.
Til DagsbrúnarliysMsms
—o —
Blað það, sem svívirðir alþýðu
þessa lands með því að telja sig
málgagn hennar, hefir upp á síö-
kastið verið að kasta auri á ritstjóra
Vísis. — Menn þeir, sem hafa troð-
ið sér upp á verkamenn, sem ieið-
togar þeírra, virðast teija það skyldu
sína að gera málgagn þeirra að svo
svívirðilegu saurblaði, að þeim fer
nú óðum fækkandi, sem ekki skamm-
0
ast sín fyrir að lesa þaö. Ogkump-
ánar þeir, sem í það skrifa, ögra
heiðviröum mönnum, sem þeir hafa
ráöist á að ósekju, til þess að höfða
meiðyrðamál gegn sér eða ritstjóra-
skepnu þeirri, sem gert hefir sér
það að atvinnu að Ieppa allan ó-
þverrann. En vel vita þeir, að eng-
um dettur í hug að hafa svo mikið
við þá.
Mannskepnur þessar halda lík-
lega aö þær geti unnið aftur fraust
það, sem þeir halda að þeir hafi
haft hjá alþýðunni, áður en verk-
fallið fór svo hrapallega í mola í
höndum þeirra, og bezii vegurinn
sem þær sjá til þess að vinna það
aftur, er sá, að hella ókvæðisorðum
yfir þá menn, sem voru svo sam-
vizkusamir, að benda verkfallsmönn-
um á það, út í hverja ófæru þeir
væru komnir. — Og nú bera þeir
hver um antian þveran hönd fyrir
höfuð sér, og þykjast hvergi hafa
nærri komið verkfallinu, og »ekki
eggjað nokkurn mann nokkurntima
til vltaverðra athafna«.
Kolin.
Eitthvert allra aivarlegasta
vandamál, sem nú er á dagskrá
allra Norðurlanda, er kolamálið.
Er mikið um það rætt í dönsk-
um, norskum og sœnskum blöð-
um. — Eru miklar líkur til að
farið verði nú að vinda að því
að vinna kolanámur, sem fundist
hafa á Svalbarða (Spitzbergen).
Gera Norðmenn, Svíar og Rúss-
ar kröfur til náma þeirra, og ó-
víst hver verður hlutskarpastur.
— Pað þykir galli á þeim nám-
um hve flutningar eru Iangsóttir
og örðugir.
Dai)ir eiga þar ekkert tilkall
til, en auðvitað mundu þeir njóta
Yfirlýsing.
Pó litlu skifti vil eg iýsa yfir
því að síðan hásetaverkfallið hófst
og til þessa dags, hefir engin
grein komið eftir mig, hvorki í
Vísi eða nokkru öðru blaði, hvorki
um verkfallið né annað efni. —
Munu ritstjórarnir geta vottað aö
þetta sé rétt hermt.
Síðar ætla eg mér að rita nokk-
ur orð um verkfall þetta, tildrög
þess o. tl. Mun nafn mitt
'standa við þau.
Þingholtsstræti 3, Reykjavík,
16. maí 1916
Árni Árnason,
(frá Höfðahólutn).
T I LgM I N N i S:
Baðhúsið opið v. d. 8-8, ld.kv. lil 11
Borgarst.skrifjt. í bnmastöð opin v. d
i 11-3
, Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2
og 4-7
■ Bæjargjaidk, Laufásv. ki. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K. F. U. M. Aim. samk, sunnd. 81/, siðd
Landakotsspít. Sjúkravitj.tímj kl, 11-1.
I Landsbankinn 10-3. Bankastjóm tii við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
| Landsstminn opinn v. d, daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og 4-7
I Náttúrugripasafnið opið U/.-21/, siðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-b.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
Ókeypis lækning háskólans
Kirkjustræti 121
! Alm. iækningar á þriöjud. og föstud.
| kl. 12—1.
Eyrna-, nef- og háislækningar á föstnd.
! kl. 2-3.
I Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3.
Augnlækningar í Lækjargötu 2 á miö-
vikud. kl. 2—3.
Landsféhirðirgkl. 10—2 og 5—6.
"Utan aj land\.
Úr Norðfirði, eystra
er skrifað 5. þ. m.: Ástandið er
afarílt hjá bændum hérna. Allir
orðnir næstum heylausir—sumir
algerlega. — Enginn á aflögum.
í gær og fyrradag stórhríð. Snjó-
ar afarmiklir til dala. Margir eru
i búnir að reka fé sitt á fjörur og
I firði, þar sem snjólítið er. —
Veturinn var góðviðrasamur en
innistöður mikiar. En altaf er sett
eins á. — Þannig mun það vera
á öðrum fjörðum hér eystra, að
alt er i kalda koli ef ekki batnar
fljótt.
Zeppelinsloftfar
ferst.
Skömmu eftir síðastliðin roánað-
amót hrakti Zeppelinsloftskip til
Noregs og fórst þar skamt frá
Stavanger. Einhverjum af skips-
höfninni varð bjargað.
Trfbitch Lincoln.
Tribitch Lincoln fyrrum þing-
! maður í enska þinginu og síðar
njósnarmaður Þjóöverja strauk til
Bandaríkjanna í fyrravor. Kröfðust
Bretar að fá hann framseldan, með
því að hann hefði gert sig sekan
um vixlafals. Hefir hæstiréttur
Bandaríkjanna kveðið upp úrskurð
um að Lincoln skuli framseldur.