Vísir


Vísir - 06.06.1916, Qupperneq 2

Vísir - 06.06.1916, Qupperneq 2
VÍSIR VISIR Afgrelðsla blaðsíns á Hótel Island er opin frá kl. 8—8 á hverj- uni degi, Inngangwr írá Vallarstræti. Skrifsíofa á sama stað, inng. frá Aðalstr. — Ritistjórinn til viðíals frá ld. 3-4. Sími 400.— P. O. Box 367. Þjóðarskömm. —o— Það er undarlegt, en það er samt satt, að áfengisnautnin er nú að gera íslendinga að skrælingjum í augum annara þjóða manna, sem hingað koma. Það er undarlegt, vegna þess að hér er bannaður innflutningur á víni, en stafar af því, eða þeim örðugleikum, sem orðnir eru á því að fá vín í landi. Það fyrsta þjóðareinkenni, sem ókunnugir menn, sem hingað koma á skipum, verða varir við hjá ís- lendingum, er áfengisgrœðgiti. Strax á fyrstu höfninni, sem skipið kemur á, drífur bátana að skipinu, tugum saman, og upp úr þeim koma mennirnir á handahlaupum upp stigann, augun standa á stilkum af áfergi, og þeii ganga á milli far- þeganna, þó að þeir þekki þá ekki í sjón og biðja þá og grátbæna að vera sér hjálplegir með að fá vín hjá brytanum. Því að brytarnir selja ekki hverjum sem hafa vill — þora það ekki. En varan er æði mikið ódýrari um borð í skipunum en hjá »stórkaupmönnunum« í landi. En svo tekur ekki betra við. — Á hverri höfn, sem skipið kemur á, bætist fjöldi farþega við til næstu hafnar. Og skipið er ekki fyr kom- ið út úr höfninni, en fylliríið byrj- ar. — Nótt og dag eru ólætin svo mikil, að enginn getur notið næðis í farrýmunum. Heiiar nætur líða svo að enginn getur sofið. Þetta ásland er alveg óþoiandi. Og ef ekki er hægt aö bæta úr því á annan hátt, þá ættu heiðarlegir menn, sem á ferð eru með skip- unum, að gera sér það að skyldu, að birta nöfn þeirra manna, sem þannig haga sér. — Annars furðar mig mjög á því, ef skipstjórar eru ekki skyldugir til að haida uppi betri reglu á skipum sínum en svo að þetta geti átt sér stað. Eg veit ekki hvort menn gera sér það Ijóst, hverja þýðingu þetta geti haft fyrir þjóðina út á við — Það er óhjákvæmilegt, að skrælingja- orð leggist á þjóðina, og af því leiðir að hún tapar öllu trausti annara þjóða. Og — því miður — þetta á =STEINOLIA= fæst hvergi, en ódýrust þó, sem ávalt fyr í Versl. VON Send kaupendum heim! Uftfll Limonade k Sódavatn frá Gosdrykkjaverksmiðju Seyðisfjarðar er b e s t. Fæst í versi. VON. sér ekki stað aðeins hér heima á milli hafna. Á ferðunum milii landakveðureinnig mikið að drykkju- skapnum oft og einatf. Sannleikurinn er sá, að það á- stand sem nú er getur orðið þjóð- inni afarhættulegt ef ekkert er að gert. En svo virðist sem árar hafi verið lagðar í bát um alt eftirlit með þessu. — En . svo búið má ekki slanda. Þetta mál þolir enga bið. Það rná breyta bannlögunum á næsta þingi og skerpa hegningarákvæðin, en svo búið má ekki standa til þess tíma. Og fyrst og fremst verða menn aö gera sér Ijóst, að ástandið er sannkölluð þjóðarskömm, eins og það er nú. B. D. Bretar á yígvellinum --- Frh. Oft er spurt um það, hvernig á því geti staðið, að herlína Breta sé svo stutt, í samanburði við herlínu Frakka og Belga, þarsem Bretar hafi þó eina miljón hermanna á víg- vellinum. En menn verða að gæta þess, að í enska hernum eru ný- liðar einir. Frönsku hermennirnir hafa allir haft þriggja ára undir- búning. í öðru Iagi verða menn að minnast þess, að svæði þaö sem Bretar eiga að verja’ er ein flat- neskja, og því miklu verra aðstöðu þar. Loks eru skotgrafir Breta í leiðinni þegar halda á til borganna við sundið, en það er alkunnugt, að ákvörðunarstaöur Þjóðverja á vesturvígstöðvunum er Calais. Þó að brezku vígstöðvárnar séu stuttar þá hafa þar staðið tryltustu orust- urnar, sem háðar hafa verið í ó- friðnum, og þegar Þjóðverjar hafa fundiö upp einhverja nýlundu — eins og t. d. eiturgasið — þámeiga menn eiga það víst, að það verða Bretar, sem fyrstir fá að finna smjör- þefinn af henni. Fyrsta orustan, þar sem eiturgas var notað og sem máli skifti, var orustan hjá .Ypres, sem stóð yfir frá 20. apríl til 13. maí 1915. Með hjálp eiturgasins lá við sjálft að • Þjóöverjum tækist að brjótast í gegn um herlínu bandamanna, og þeim hefði tekist þaö, ef hersveitirnar frá Kanada hefðu ekki barist þar eins og hetjur. Stórskotahríð Þjóðverja á Ypres byrjaði 20. apríl, og sprengikúlun- um rigndi svo þétt yfir þennan gamla, fagra bæ, að eftir 2 daga stóö þar ekki steinn yfir steini. — Á sjö rasta svæði, norðan við borg- ina, voru þá nýlendumenn Frakka frá Algier og Senagatl og nokkur herfylki úr her Frakka. Síðla dags hinn 22. apríl sáu framverðirnir, . er gægðust upp úr skotgröfunum undarlega sýn. Langt úti á slétt- unni sást stór gulgrænn þokumökk- ur, sem vindurinn flutti óðfluga nær. Hann nálgaðist skotgrafirnar með líkum hraða og hestur á brokki. Mökkurinn geysaði yfir sléttuna óviðráðanlega eins og forlögin væru TI L M I N N IS: Baðhúsið opiö v. d. 8-8, ld.kv. til 11 Borgarst.skrifat. i brunastðð cpin v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-2 og 4-7 Bæjargjaidk. Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d Islandsbanki opinn 10-4. K. F. U. M, A!m. samk. sunnd. 81/, siðd Landakotsspit. Sjúkravitj.tími kl, 11-1. Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við- tals 10-12 Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3 Landssiminn opinn v. d. daglangt (8-9) Helga daga 10-12 og4-7 Náttúrugripasafniö opið U/,-21/, siðd. Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1 Sarnábyrgðin 12-2 og 4-6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d. Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1 Þjóðmenjasafniö opið sd. þd. fmd. 12-2 Ókeypis lækning háskólans Klrkjustræti 121 Alm. lækningar á þriðjud. og föstud. kl. 12—1. Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud. kl. 2-3. Tannlækningar á þriöjud. kl. 2—3. Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið- vikud. kl. 2-3. niíe'irVr kl. 10—2 og 5—6. > i JtÆutsolw • ^ 00 m^ovk í fiöskum og dósum, besta teg., 1 *V)evst 6 y. Haframjölið besta fœst í Versl. V O N á ferðinni. Það sem gerðist á bak við hann var hulið sjónum fram- varðanna. En þar sem mökkurinn fór yfir, sviðnaði allur gróður, eins og sina í eldi. Hönd dauðans var í för- inni. Enginn af framvörðunum hafði hugmynd um hvað þetta var eða hvaðan það kom. Brátt var það aðeins í hundraö metra fjar- lægð frá frönsku stöðvunum . . . þá fimtíu . . . þrjátíu . . . tíu . . og alt í einu lagðist mökkurinn yfir alt. Frh. Prentvilla hefír slæðst inn í greinina «Bygging borgarinnar*. Á 4. síðu 1. d. stendur að Tryggvi Gunnarsson sé hinn eini smekk- maður «sem lifað hefir hér í bæ og sltift sér af byggingum bæjarins, en á að vera: »skift sér af bygg- ingu bæjarins. Hitt getur mis- skilist, því auðvitað hafa einstakir menn reist hér laglegar byggingar, sem prýða bæinn.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.