Vísir - 07.06.1916, Blaðsíða 1
Utgefandi
HLUTAFÉLAG
Ritstj. JAKOB MÖLLER
SÍMI 400
Skrifstofa og
,'afgreiösia íl
Hóte! fsland
SÍMI 400
6. árg.
Miðvikudaginn 7« júní 1916.
154. tbl.
Gamla Bíó
F
Gamanleikur í 3 þáttum.
Aöaihlutv. leika:
Frú Edith Psilander, hr. E.
Zangenberg, hr. W. Bewer
og hin gullfagra leikkona
frk. Miczi Mathé.
Þessi ágæta gamanmynd er
leikin á »Grenens Badehotel á
Skagen*, einum fegursta bað-
stað Dana, meðal þúsunda af
baðgestum.
Betrt sæti tölus. 0.60, alm. 0,40
barnasæti 0.40.
Bæjaríréttir 1
.»»3328®
Afmœli á morgun:
Guðbj. Gísladóttir húsfrú.
Lovísa Fjeldsted húsfrú.
Sigríður Bernhöft húsfrú.
Sigríður Pétursdóttir ekkja.
Fermingar- og afmœlis-
kort með íslenzkum erindum
fást hjá Helga Árnasyni í Safna-
húsinu.
Eri. mynt.
Kaupm.höfn 2. júní.
Sterlingspund kr. 15,98
100 frankar — 57,00
100 mörk — 61,25
Reykj a v í k
Bankar Pósthús
Sterl.pd. 16,20 16,00
100 fr. 58,00 58,00
100 mr. 63,00 64,00
1 florin 1,48 1,42
Dolf. 3,50 3,50
Settir prestar.
Síra Kjartan Kjartansson í Grunna-
vík er settur prestur að Sandfelli
(síra Gísli bróðir hans hefir feng-
ið lausn sökum vanheilsu). Aðstoð-
arprestur síra Ásmundur Guðmunds-
son í Stykkishólmi er settur prest-
ur að Helgatelli (þ. e. Stykkis-
hólmi).
Settur prófastur
í Snæfellsnessprófastsdæmi, frá
fardögum, er síra Árni Þórarinsson
á Stórahrauni.
Botnía
er væntanleg til Hafnarfjarðar að
vestan um kl. 3 í dag.
»Rán«
kom af fiskveiðum í gær með
hlaðafla. Haföi 70 tunnur af lifur
ehir 9 daga útivist fyrir Vesturlandi.
Hátt kýrverð.
Á Engeyjaruppboðinu í fyrradag
voru boðnar 340 og 360 krónur í
tvær kýrnar. »Deyr enginn sá er
dýrt kaupir®, sagði kaupandinn.
Pétur Jónsson
syngur enn í Bárubúð í kvöld,
í íjórða sinn, breytta söngskrá. —
Altaf er húsfyllir hjá Pétri og kem-
ur öllum saman um að betrisöng
rnann hafi þeir ekki heyrt hér. Einn
af beztu sðngfræðingum okkar.sem
dvaliö hefir laugvistum erlendis,
komst svo að orði við rítstj. Vísis
í gær, að hann efaöist um að hanu
hefði nokkurntíma heyrt betri söng-
mann en Pétur, — hljóðin svo
mikil, fögur og vel tamin.
Veðrið í dag:
Vm.Ioftv. 765 logn a 6,7
Rv. “ 765 logn a 5,5
íf. “ 766 logn a 3,7
Ak. “ 766 logn a 4,0
Gr. « 728 logn « -1,0
Sf. “ 763 na. kul a 4,1
Þh. “ 754 n. st.gola a 6,0
Gullfoss
fer héðan kl. 11 — 12 í kvöld.
Goðafoss
kom til Fáskrúðsfjarðar í gær.
K.F.U M.
Knattspyrnufél. »VALUR«.
Æfing í kveld kl. 8VS
Áríöandi að allir mæti stundvís-
lega.
Beztu þakkir leyfi eg mér hér
með að færa öllum þeim sem sýnt
hafa mér hluttekningu við fráfall
konunnar minnar Halldóru Hall-
dórsdóttur.
p. t. Rvík 6. júní 1916.
(Hótel Island).
Ágúst Benediktsson.
Súkkulaði
og
Kakaó
altaf nægar birgðir af hinum
ágætu tegundum
v
Wýja Bíó
Undir þessu merki
skaltu sigra.
,In lioc signo vinces!‘
ítalskur sjónleikur í sjö þáttum leikinn af hinu heimsfrœga
»Savoia«-féiagi.
Mynd þessi hefir verið sýnd kveid eftir kveld í Palads-leik-
húsinu í Kaupm.höfn, og fer af henni mikið orð, enda er
hún ein af hinum alkunnu sannsögulegu kvikmyndum ftala.
Sýning stendur 2 stundir.
Aðgöngum. [tölusettir] Betri sæti kosta 85, alm. 70 aura.
Eftir kl. 4 er tekið á móti pöntunum í síma 107.
Pétur Jónsson
operasöngvari
heldur söngskemtun í Bárubúð íimtudag kl. 9 síðd.
Ný söngskrá.
Aðgöngumiðar fást í Bókaversl. ísafoldar og Sigf. Eymundssonar.
Símskeyti
frá fréttaritara Vísis
Khöfn 6. júní.
Aköf sókn af hendi Rússa frá Pripjet-fljóti og að landa-
mærum Rúmeníu. Fyrsta daginn tóku þeir 13000 fanga.
Kitchener lávarður druknaður.
Brezka stjórnin hefir tilkynt það oþinberlega í gær að beitiskipið
»Hampshire« hafi farist á tundnrdufli eða ef til vill verið skotið tundur-
skeyti vestur af Orkneyjum. Skipið var á leið til Rússlands með Kitch-
ener lávarð, hermálaráðherra Breta, og eru allar líkur til þess að hann
háfi látið þar lífið, því enginn veit til þess að nokkur maður hafi bjarg-
ast af skipinn.