Vísir - 08.06.1916, Side 2
VlSIR
Drekkið
CARLSBERG
Porter
Heimsins bestu óáfengu
drykkir.
Fás alstaðar
Aðalumboð fyrir ísland
Nathan & Olsen
VISIR
A f g r e 1 ð s 1 a blaðsins á Hótel
Island er opin frá kl. 8—8 á Iiverj-
um degi.
Inngangur frá Vallarstrætl.
Skrifstofa á sama stað, inng. frá
Aöalstr. — Ritstjórlnn til viðtals frá
Id. 3-4.
Sími 400.— P. O. Box 367.
Verkfallið.
—-:o:—
Vísir hefir orðið fyrir illyrðum
miklum frá nokkrum mönnum út
af hásetaverkfallinu. Hann kippir
sér lílt upp við það. Hann hefir
flutt hógvært skrifaða grein um af-
leiðingar verkfallsins (eftir »Kunn-
ugann<), sem að vísu bar það með
sér aö höfundurinn var andvígur
verkfallsmönnum. En blaðið flutti
einnig greinar frá vinum verkfalls-
manna og hefði fúslega flutt fleiri
hógværar greinar um málið frá
þeirra sjónarmiði, ef þess hefði
veriö leitaö, Það hefir því alls enga
hlutdrægni sýnt í því efni.
Á einni grein, fyrstu greininni,
sem uin málið kom, verður blaðið
sjálfsagt að taka alla ábyrgð. í þeirri
grein var því haldið fram að gá-
lauslega hefði verið af stað farið
með verkfalliö og það hafið að
óþörfu, að því er virtist.
Leiötogar verkamanna verða, hvort
sem þeim líkar það betur eða ver,
að taka á sig bróðurpartinn af á-
byrgðinni á verkfallinu, einnig þeir,
sem aðeíns hafa oröið við
t i 1 m æ 1 u m umað leiðbeinaþeim.
— Það var því eðlilegt, að þeir
sem álitu að hér væri gálauslega
að farið og g ó ð u m á 1 i s t o f n-
a ð í v o ð a, beindu ekki sízt ásök-
unum til leiðtoganna. En á því
þarf engan að furða, þó að þeir
bregðist illa við, aö minsta kosti
þeir af Ieiðtogunum, sem hafa ætl-
að aö nota verkamannahreyfinguna
sem lyftistöng fyrir sjálfa sig.
Nú skal reynt að leiða rðk að
því, aö gálauslega hafi verið af stað
farið með verkfallið, þó að saga !
þess ætti rannar aö vera fullkomin i
sönnun fyrir því.
Það hefir viðgengist æöi lengi,
að hásetar hafa fengið lifur sem
uppbót á kaupij — Sumir útgerð-
armenn segja að þeir hafi fengið
lifrarverðiö sem »premíu«, en há-
setar segjast hafa fengið lifrina til
cignar. — Hvort réttara er skiftir
ekki máli.
Þegar um slíka ráöningasamninga
er aö ræða, getur hvor aðilinn sem
er heimtað breyfingar, og þó að
útgerðarmenn hafi áöur látið háseta
íá lifrina til eignar, þá Iiggur í
augum uppi að þeir eru ekki bundnir
við það um aldur og æfi. Þeir
hafa altaf rétt til að breyta ráðn-
ingakjörunum, og hásetarnir hafa
þá auðvitað líka rétt til að hafna
þeim kjörum, sem í boði eru.
Meðan eignarrétturinn er viður-
kendur, eins og verkfallsmenn ó-
neitanlega halda fram eignarrétti há-
seta á lifrinni, þá liggur í augum
uppi, að útgerðarmenn hafa fullan
siðferðislegan rétt, eins og þeir hafa
lagalegan rétt, til að ráðstafa skip-
um sínum og til að ákveða með
hvaða kjörum þeir vilja ráða há-
seta. — Þegar verkfallsmenn tala
um aö útgerðarmenn »steli« lifrinni
af hásetunum, þá eru það því van-
hugsuð reiðiorð. Þegar lifrin hækk-
aði í verði, höfðu útgerðarmenn að
sjálfsögöu rétt til að draga hana
undir sig, en þá var líka sjálfsagt
að hásetar heimtuðu hærra kaup,
eða fengju þann skaða bættan á
einhvern hátt,
Þessi deila úm eignarréttinn á
lifrinni mun fyrst hafa risiö upp, er
botnvörpungarnir áttu að fara að
byrja vetrarvertíðina. Eftir því sem
Vísi hefir verið skýrt frá varö það
að samkomulagi, aö skipin legðu
út, áöur en málið var endanlega
útkljáð. En um miðjan febrúar-
mánuð geröi stjórn Hásetafélagsins
samning þann við útgerðarmenn,
sem nú er alkunnur orðinn. Sam-
kvæmt þeim samuingi áttu hásetar
að fá 35 kr. fyrir hverja lifrartunnu,
sem flutt væri á land úr skipi, til
mánaðarmóta apríl og maí, en frá
þeim tíma til síldarvertíðar áttu þeir
aö fá gangverð. Deilunni var því
alls ekki lokið að því er eignar-
réttinn snerti. Þar sat hver fastur
við sinn keip.
Samningur þeábi var, eftir því
sem Vísir hefir heyrt, heldur illa
þokkaður af mörgum hásetum. Þeir
vildu fá eignarrétt sinn viðurkendan
fyrst og fremst. En óánægjan magn-
aðist þó um allan helming við það,
að einn útgerðarmaður galt háset-
um hærra verð fyrir lifrina en 35
krónur.* 1) Þess vegna gerðu hásetar
verkfall í byrjun maímánaðar, og
tóku ekkert tillit til þess, aö ein-
mitt frá þeim tíma áttu þeir að fá
gangverð fyrir lifrina. Frh.
x) Dagsbrún segir að þessi út-
gerðarmaður sé nú farinn að stela
lifur af hásetum.
Bretar á vígYellmum
---- Frh.
Bresku hermennirnir eru látnir
vera 3 vikur í skotgröfunum í
senn — »í eidinum«. Að þeim
tíma liðnum fá þeir viku frí og
eru sendir aftur fyrir vígvöllinn
til að hvíla sig, helst svo langt,
að þeir heyri ekki tallbyssuþrum-
urnar. En í þessar þrjár vikur
má segja að liðið hafist að öllu
ieyti við í skotgröfunum, þó að
það sé Iátið skreppa upp úr þeim
þriðja hvern dag, að eins til að
anda. Þrjár vikur í skotgröfun-
um! Eg efast um að menn geri
sér Ijósa grein fyrir því, hvernig
það líf er í raun og veru. Hugs-
ið yður, herra lögmaður, herra
læknir, herra kaupmaður, að þér
œttuð ag eyða sumarfríinu yðar
í gryfju, fjögra feta breiðri, átta
fetra djúpri, stundum standandi
í vatni upp að knjám, loítræsing
er engin, óg rotnandi lík liggja
þar í hrúgum í fárra faðma fjar-
lægð og eitra andrúmsloftið, og
og kúlurnar þjóta jafnt og 'þétt
uppi yfir höfðum hermannanna.
Um svefn er ekki að ræða, nema
hlé verði á stórskotahríðinni og
þá ekki nema stutta stund, og
þér yrðuð að leggjast á rakan
hálm, sem villidýrin myndu blygð-
ast sín fyrir. Geta menn gert sér
grein fyrir því, hve óþægilegt
er að vera í einkennisbúningi,
sem getur staðið sjálfur af skít
og svita, eða í nærfötum er grotna
í sundur utan á manni og með
hárið kvikt af lús! — Það er ó-
mögulegt að fá tækifæri til að
T I L M I N N I S:
Baðhúsið opiö v. d. 8-8, ld.kv. til 1!
Borgarst.skrifjt. i brunastðð opin v. d
11-3
Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op. v. d. 10-7
og 4-7
Bæjargjaldk. Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d
Islandsbanki opinn 10-4.
K, F. U. M. Aliri. samk, sunnd. 81/, siðd
Landakotsspit. Sjúkravitj.tími kl. 11-1.
Landsbankinn 10-3, Bankastjórn til við-
tals 10-12
Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3
Landssimlnn opinn v. d. daglangt (8-9)
Helga daga 10-12 og4-7
Náttúrugripasafnið opið l1/,-21/, siðd.
Pósthúsið opið v. d. 9-7. sunnd. 9-1
Samábyrgðin 12-2 og 4-b.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d.
Víiilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1
Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2
ókeypis lækning háskólans
Kirkjustræti 12:
Alm. lækningar á þriðjud. og föstud.
kl. 12—1.
Eyrna-, nef- og hálslækningar á fðstud.
kl. 2—3.
Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3.
Augnlækningar í Lækjargðtu 2 á mið-
vikud, kl. 2—-3.
ndsféhirðir kl. 10—2 og 5—6.
baða sig, menn mega þakkafor-
sjóninni ef þeim auðnast að fá
að þvo sér einu sinni á viku
um andiit og hendur. En þetta
eru smámunir einir. Þar við bœt-
ist kvíðinn fyrir því áð vindstað-
an breytist svo að óvinirnir fái
tækifæri til að veita eiturgasi
i gegn stöðvunum, óttinn við að
eitthv, sprengikúluferlíkið springi
uppi yfir gryfjunni, að neðan-
jarðarsprengja þeiti manni í loft
upp, eða einhver »dúfan« (Taube
= þýsk flugvél) hafi komið auga
á gryfjuna og sendi þá og þeg-
ar kveðju sína. — Er það furða
þó að liðsforingjar og hermenn
hafi hundruðum saman orðið
brjálaðir í þessu Helvíti.
Menn geta enga hugmynd gert
sér um það, með hvílíkum krafti
stoérstu sprengikúlur óvinanna
springa. 42. cm. sprengjur Þjóð-
verja eru víðfrægar, en þó eru
verkanir kúinanna úr Skoda-fall-
byssum Austurríkismanna enn
þá voðalegri. Þær kúlur eru kall-
aðar »Pilsnarar« í daglegu tali.
»Pilsnarinn« er 2800 pd. á þyngd,
fer 8 kíiómetra í loft upp og
þegar hann fellur niður á vana-
legan moldar jarðveg, grefur hann
sig tuttugu fét í jörð niður. —
Sprengingin verður 2 sek. eftir
að kúlan kemur við og hún drep-
ur ait sem kvikt er í kring í 100
faðma fjarlægð. Alt stál sem í
nánd er, t.d. byssuhiaup, bráðn-
ar eins og eldingu hefði lostið
niður. Af sprengingunni verður
svo mikil gasþrýsting að hún
brennir og eyðir öllu á einni
sekúndu. Þar sem »Pilsnarinn«
hefir komið niður, éraldrei neitt
sem þarf að jarðá. Hanngengur
hreinlega frá. Frh.