Vísir


Vísir - 20.06.1916, Qupperneq 2

Vísir - 20.06.1916, Qupperneq 2
VÍSIR VISJR Afgrelðsla blaðsins á Hótel Island er opin frá kl. 8—8 á hverj- um degi, Inngangur Irá Vallarstræti. Sknfstofa á sama Btað, inng. frá Aðalstr. — Ritstjórlnn tll vlðtals frá kl. 3-4. Sími 400,- P. O. Box 367. Best að versla i FATABÚÐINNI! Þar fást Regnkápur, Rykfrakkar fyrir herra, dömur og börn, og allur fatn- aður á eldri sem yngri. Hvergi betra að versla en i FATABÚÐINNI, Hafnarstr. 18. Simi 269 Ofriðurinn. ---- Frh. Allar ófriðarþjóðirnar gera sér vanir um sigur. Ef þjóðirnar gerðu það ekki, yrðu stjórnirnar að semja frið.'— Stjórnirnar verða því að gera alt sem þær geta til aö halda sigurvonunum við. En þar standa bandamenn miklu befur að vígi en Miðveldin. Þó að bandamenn hafist ekkert aö á vígvellinum annað en að verjast, gela þeir alið sigurvonir sinna manna á afleiðingum hafn- bannsins. — Þjóðverjar lýsa meö fögrum orðum afreksverkuui “her- sveita sinna í blöðum sínum. En í blöðum bandamanna er krökt af frásögnum af neyðinni í Þýzka- Iandi, gjaldþrotum stórverzlana og bankahrunum. — Hvorttveggja er meira og minna Jýgi. Það er skoðun margra fróðra manna, sem hafa kynt sér afstöðu og styrkleika heranna á vesturstöðv- unum, að þar fái hvorugur unnið á hinum. Og um eitt skeið virt- ust Þjóðverjar sjálfir hafa verið komnir að þeirri niðurstöðu, En þá þóttust þeir ætla að vinna sigur á Bretum suður í Egiptalandi, taka af þeim Suezskurðinn og jafnvel heimsækja þá suður í Indlandi. — Miðveldin tóku Serbíu og Montene- gró, en lengra "komust þau ekki. Og þá varð að gefa þjóðinni aðrar sigurvonir, því það kom brátt í Ijós, að þeim varð lítill fengur í Balkanlöndunum, og þrátt fyrir ó- sigur bandamanna á Gallípoli batn- aði aðstaða Miðveldanna ekkert og endalok ófriðarins voru jafnfjarri. Þá hófst sóknin gegu Verdun, síðari hluta febrúarmánaðar s. I. — Fyrstu dagana miöaði Þjóöverjum allvel áfram, en síðan 10. marz má svo að oröi kveða, að þar hafi alt- af verið barist um sömu þúfurnar. En á þeim orustum hafa þýzku blöðin lifað og sigurvonir þjóðar- innar. Þjóðverjar verða altaf við og við aö gera einhvern hvell, og Verdun- hvellurinn hefir nú hljómað í 4 mánuöi. — Annan hvell gerðu þeir á Noröursjónum nýlega og dásama nú hreysti flota síns í svo háum tónum, að þeir hafa líklega ekki heyrt skot rússnesku skipanna í Eystrasalti á dögunum, þegar þau söktu fyrir þeim 10 flutningaskip- um í einu. — Það er eftirtektar- vert, sem dæmi upp á það, hverja þýðingu slíkir hvellir hafa fyrir úr- slit ófriðarins, að einmitt sörnu dag- ana sem Þjóðverjar ern í sjöunda himni yfir afreksverkum þýzka flot- ans, fær rússneski flotinn, sem al- ment er álitinn lítils megnugur, færi á aö vinna Þjóðverjum slíkt tjón, — Manni verður á að spyrja: Til hvers hafa Þjóöverjar flola sinn, ef þeir geta ekki notað hann til að drotna í Eystrasalti, þar sem brezki flotinn nær þó ekki til hans? Frh. "\JUat\ a$ Utvd\. Símfregnir. Akureyri í fyrradag Skriður féllu nýl. 3 úr Vaðla- heiði fyrir ofan bæina Uarðsvík og Sveinbjarnargerði. 2 ytri skrið- urnar gerðu lítið tjón en sú syðsta tók mikinn hluta af túnina á Sveinbjarnargerði. Tún þetta var nýræktað og í ágæfri rœkt. Um 30 fjár er sagt að muni hafa orð- ið undir skriðunni. Skriðurnar féllu alla leið niður í sjó en áttu upptök sín ofarlega í heiðinni. Þegar vélbáturinn »Báran« fór fram hjá Siglufirði, nú nýlega, á leið að sunnan, fundu bátsmenn 3 fjörutíu potta kúta á floti úti fyrir firðinum. Goðafoss var þá nýfarinn frá Siglufiröi, en bátar úr landi á sveimi þar umhverfis. »Báran« hirti kútana, flutti þá til Akureyrar og afhenti þá bæjar- fógeta. Lét hann opna kútana og kom þá í ljós að í þeim var tæra brennnivín. Var þá ekki beðið boðanna en kútunum snar- að í betrunarhúsið. Ágætur fiskafli ef beita væri til. Þjórsártúni í gær Fjögra ára barn bjargar öðru barni. Á Sandlæk í Hreppum bar það við fyrir nokkru að þrjú börn voru að leika sér úti á túni. — Elsta barnið, sem þó var aðeins fjögra ára, saknaði hins yngsta fór að svipast eftir því og fann það innan skams á flóti í bæjar- læknum. Fór það nú að gera tilraun til þess að bjarga því og tókst að koma því upp á bakk- ann, lagði það þar á grúfu og hljóp svo heim eftir hjálp. Það tókst von bráðar að hressa barn- ið við og varð því ekkert veru- lega meint við þetta. Vöntun, sem úr þarf að bæta. Hversu lengi getur það gengið að ekkert sæmilegt »hotel« sé til í höfuðstað landsins? Bærinn stækk- ar óöum og hann á að verða og er aö verða viöskiflamiöstöð lands- ins, eftir því sem samgöngur batna. Þeim fjölgar stöðugt, sem eiga er- indi til höfuðstaöarins. En ekkert ert er gert til þess að greiða götur feröamannanna, útlendra eöa inn- lendra. Þeir, sem til bæjarins koma verða að snapa sér út húsaskjól hjá «privat*fólki — báðura pörtum til mestu óþæginda. Enginn einstak- lingur vill ráðast í að koma upp gistihúsi eða hætta fé í að reka slíkt tyrirtæki. Menn segja — sem satt mun vera — að þessháttar tyrirtæki borgi sig ekki f «vínlausu« landi. Sú mun og reynslan vera annarsstaðar, að rekstur gisti- húsa borgar sig því aö eins aö vínveitingar séu hafðar með til að bera kostnaðinn og gera atvinnuna sæmilega arðberandi, En hvað á þá til bragðs að taka? Bæjarfélagið verður að hlaupa und- ir bagga og bera áhættuna. Það verður annaðhvort að koma fyrir- tækinu sjálft á fót og annast rekst- urinn eða styrkja einhvern, sem víll ráðast i það. Svo mun það og vera víöast annarsstaðar, að bæjar- félög gangast fyrir því að ferða- mannahæli eru bygð, jafnvel þar sem þörfin er minni en hér. Þaö er ekki sæmilegt að höfuðstaðurinn hafi ekki viðunandi gistihús árum saman og geti því ekki hýst þá gesti sem að garði ber. Þaö er heldur ekki við að búast að einstakir menn geti ætíð haft boðleg gestaherbergi tilbúin í hús- um sínum, þar sem húsin eru orð- in svo afskaplega dýr og þar af leiöandi er húsaleigan óbærilega há og fara menn því að sjálfsögðu að hafa eins þröngt um sig eins og þeim frekast er unt. Húsnæðisleysið er oröið mjög tilfinnanlegt hér í bænum, þar sem mannfjöldinn eykst langt fram yfir það sem bygt er. Það bætir þá ekki úr skák er einstakir menn verða T I L M I N N I S: Baðhúsið opið v. d. 8-8, ld.kv. lil 11 Borgarst.skrifst. i brunastöð opin v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. o,p. v. d. 10-2 og 4-7 Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d Islandsbanki opinn 10-4. K. F. U. M. Alm. samk, sunnd. 81/, siðd Landakotsspít. Sjúkraviij.tími kl, 11-1. Landsbankinn 10-3. Bankastjórn til við- tals 10-12 Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3 Landssiminii opinn v. d. daglangt (8-9) , Helga daga 10-12 og 4-7 Náttúrugripasafnið opið 1 siðd. Pósthúslð opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1 Sainábyrgðin 12-2 og 4-6. Stjórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d, Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartimi 12-1 Þjóðmenjasafnið opið sd. þd. fmd. 12-2 Ókeypis lækning háskólans Kirkjustrætl 12: Alm. lækningar á þriðjud. og föstud. kl. 12—1, Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud, kl. 2-3. Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3, Augnlækningar í Lækjargötu 2 á mið- vikud. kl. 2- 3. landsféhirðir kl. 10—2 og 5—6. §at s\o$ atv á Hótel ísland ræður fólk til alls- konar vinnu — hefur altaf fólk e boöstólum. "\3\$\t SaumasUSa VöruhússínS. Karlm.fatnaðir best saumaðir! • Best efni! Fljótust afgreiðsla! sxsa® J^^LÖGMENN Péiur Magnússon, yfirdómslögmaður, Hverfisgötu 30. Simi 533 — Heima kl. 5—6 Oddur Gíslason yflrróttarmálaflutnlngsmaður Laufásvegi 22. Venjulega heima kl. 11-12 og 4-5 Simi 26 Bosl Brynjólfsson yflrréttarmálaflutnlngsmaöur, Skrifstofa í Aðalstræti 6 [uppij. Srifstofutimi frákl. 12— og 4—6 e. — Talsími 250 — að láta nokkurn hluta af húsum sínum standa auðan til þess að geta verið við þvi búnir að taka á móti ferðamönnum hvenær sem vera skal. Flestir kjósa víst Ifka helzt að komast hjá slíkum við- skiftum, að gera heimili sín að ferðamannahælum. L. 1.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.