Vísir - 20.06.1916, Side 4

Vísir - 20.06.1916, Side 4
v f s i;r muni bætast við þessa upphæð úr þessu. Hér er ekki verið að biðja um gjafir í gustukaskini-, heldur er farið fram á það, að menn leggi fé í arðvænlegt fyrir- tœki, sem þar að auki er eitt- hvert stærsta nauðsynjamál þess- arar þjóðar og sem er beinn hagnaður fyrir hvern einstakling, alstaðar á öllu landinu, að geti tekið sem skjótustum og mest- um þrifum. Petta tómlæti manna, að kaupa hluti f félaginu, er sorg- legt og ekki með öllu vansalaust því, eins og áður er vikið að, þá er ekki féleysi um að kenna. f fljótu bragði virðist því rétt að ? mönnum kæmi þetta áhugaleysi : sitt í koll með því að farmgjöld \ væru hækkuð, en þeirri hefnd mundi rigna jafnt yfir réttláta sem rangláta, þar sem allir mundu líða við það, bæði þeir sem styrkt hafa félagið og eins þeir sem ekki hafa gert það — og því œttu að verða fyrir hefndinni einir.— Símskeyti frá fréttaritara Vísis Khöfn 19. júní. Moltke hershöfðingi er látinn, bar dauða hans mjög brátt að. í Rúmeníu er barist ákaft fyrir þvf að ríkið gangi í banda- iag með bandamönnum og segi Miðveidunum stríð á hendur. Moltke var yfirhershöfðingi Þjóðverja í upphafi ófriðarins, en varö að láta af herstjórninni vegna veikinda og lók þá Falkenhayn við henni. DRENG vantar til að bera Yísi út nm bæinn. Hoekkun flutningsgjalda er því örþrifaráð, bæði af þessum sök- um og ýmsum öðrum, ætti því ekki að taka til þess nema brýn- asta nauðsyn krefði, sem sé sú að ekki væri hægt með öðru betra móti að fá fé til aukningar skipastól félagsins. Ekki er það alveg óhugsandi að þegar menn sjá að félagið hefir grætt á þessum stutta og erfiða byrjunartíma sem það hef- ir starfað að þeir rumski og taki að kaupa hluti í félaginu, svo um muni, og væri því ef til vill rétt- ast að aðalfundur sá er haldinn verður 23.^þ.m. ákveði ekki hækk- un farmgjalda, heldur að eins veiti stjórn félagsins heimild til að hœkka þau eftir einhvern á- kveðinn tíma — segjum 1. nóv. — ef ekki verður með öðru betra móti hægt að fá nœgilegt fé til aukningar skipastól félagsins. Ekki mun neitt blaðanna hafa lagt ílt til félagsins né hlutafjár- söfnur.arinnar, enda var þeim það og sjálfum fyrir bestu, en hinu er heldur ekki að leyna að sum þeirra, hefðu getað, sér alveg að bagalausu, stutt þetta mál stór- um betur en þau hafa gert, en betra er seint en aldrei og væri nú vel ef þau legðust öll á eitt og brýndu sem best fyrir þjóð- inni nauðsyn þessa máls. Sama máli er að gegna með einstaka menn; ýmsir þeir er hæst gala um fööurlaudsást, frelsi og fé- lagsskap í hvívetna, hafa lítið sem ekkert látið til sín heyra í þessu máli, en það, hve tregt gengur að safna hluta fénu sýnir Ijóslega að þjóðin þarf hvatningar við og »svo mábrýna deigt járn að það bíti um síðir«. I Reykjavík eru ýmsir þeir menn er best hafa stutt félagið, og við fyrri hlutaíjársöfnunina var Rvík hæst, eins og vera bar, en nú leggur hún fram kr. 1,35 fyrir nef hvert en Akureyri og Odd- eyri kr. 6,44 og N. Þingeyjarsýsla kr. 6,29. Frh. BÆJARFRÉTTIR Frh. Hátíðahöld kvenna fóru öll mjög vel úr hendi í gær, þó að veður bagaði mikið, þokusúld og regn, nær all- an daginn og myndu vafalaust miklu fleiri hafa tekið þátt í þeim en raun varð á ef gott hefði verið veðrið. Þó var allmargt manna saman komið á Austurvelli til að hlusta á ræður þeirra Ingibjargar Bjarnason og sira Matthíasar. Á íþróttavellinum voru viðlíka margir áhorfendur. Knattnpyrnulög heitir bók sem í. S. I. hefir -ný- lega gefið út. Knattspyrna hefir eignast hér marga vini og bók þessi mun þeitn öllum kærkomiun gestur, því að margt er það í knattspyrnunni sem ólærðir menn í þeim efnum skilja ekki. Ættu allir, sem knattspyrnu unna, að kaupa bókina, því það er áreiðan- legt, að þeir njóta leÍKSins miklu betur er þeir hafa lesið hana og hún kostar aðeins 50 aura, Mynd- ir eru margar í bókinni til útskýr- ingar og létta þær mikið fyrir mönnum. — Rétt til að taka dæmi má minna menn á »of side« (rang- stöðu) reglurnar. Hve margir eru þeir af knattspyrnuáho.-fendum sem þekkja þær? Um þær gefa lögin allar upplýsingar. — Knattspyrnu- mótið hefst á sunnudaginn, fyrir þann tíma þurfa allir áhorfendur að hafa fengið og lesið bók þessa. | Arekstur varð á milli tveggja bifreiða á horninu á Austurstræti og Lækjar- götu í gær. Kastaðist ein kona út úr annari bifreiðinni, en meiddist lítið. Guðmundur Magnússon prófessor er nú á heimleið með e/s íslandi, sem fór fra Khöfn 16. þ. m. Fermingar- og afmaeiis- kort með tslenzkum erindum fást hjá Helga Árnasynl í Safna- húsinu. Oóð íbúð óskast frá 1. október — helzt í Austurbænum. — Viss borgun mánaðarlega fyrirfram. — Uppl. í prentsm. Þ. Þ. Clementz. _____________________________[186 f vesturbænum óskast frá 1. okt. 2 berbergi og eldhús fyrir barnlaust fólk. Uppl. hjá Þorsteini Sigur- geirssyni. Sími 238 og 58. [187 Stór stofa er til leigu með for- stofuinngangi og öllu tilheyrandi fyrir óákveðinn tíma. A. v. á. [188 Morgunkjólar ódýrir og vandaöir fást í Lækjargötu 12 a. [435 Morgunkjólar vænstir og ódýrast- ir á Nýlendugötu 11 B. áður á Vesturgötu 38. [447 Langsjöl og þríhyrnur fást alt af í Garðarsstræti 4 (gengið upp frá Mjóstræti 4). [43 Saumavél, nýleg og óslitin, er af sérstökum ástæðum til sölu á Lindargötu 36. [165 Þrír lystivagnar til sölu, bæöi fyrir einn og tvo hesta. Afgr. v. á. ________________________ [180 Rónlr sjóvetlingar til sölu. A. v. á. [181 Tapast hvfir úr milli Hafnarfjarð- ar og Reykjavíkur. Skilist á Skóla- vörðustíg 33. [176 Lítil brjóstnál með grænum steini tapaðist frá Klapparstíg 8. [182 ---------1-----------»---------- Tapast hefir Peningabudda á leið frá Bröttugötu á Túngötu 50. Skii- vfs finnandi skili henni á Afgreiðslu Vísis. [183 Brjóstnæia týnd. Silfurnæia með nisti og slípuðu rafi, bæði i nisti og nælu, týndist 17. júní að kvöldi á leið ftá Hóla- velli að húsi Halldórs heitins jóns- sonar eöa þaöan aö Hólavelli. Finn- andi skili gegn fundarlaunum til frú Þórunnar Vigfúsdóttur á Hóla- velli. [184 Tapast hefir peningabudda á göt- unum, Skilvís finnandi skilr henni á Vatnsstíg 16 gegn góðum fund- arlaunum. [189 Stúlka óskast á fáment heimlli á Norðurlandi, getur stundaö slldar- vinnu í frístundum sínum. Frekari upplýsingar í Ási. Sími 236. [172 Stúlka tíl innihúsverka óskast á fáment heimili. Upplýsingar í Bergstaðastræti 4 (uppi.) [171 Dugieg kaupakona óskast. Há.t kaup. Uppl. á Vitastíg 8. [185 Ljómandi fallegur keltingur fæst gefins í góðu húsi. A. v. á. [189 Fæði fæst í Ingólfsstræli 4. Prentsmiöja Þ. Þ, Ciemenlz, 1916

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.