Vísir - 25.06.1916, Side 1
\
Utgefandi
hlutafélag
Rltstj. JAKOB MÖLLER
SÍMI 400
Skrifstofa og
afgreiðsla í
Hótel ísland
SÍMI 400
6. árg.
Sunnudaginn 25. júnf 1916.
170. tbi.
Gamla Bfé
Ungu hjónin,
Óvenju skemtilegur amerískur
gamanleikur í 2 þáttum.
Þessi mynd var sýnd í Palads-
leikhúsinu í Khöfn, og hlaut
þá einróma lof.
Vináttubragð Helenu.
Einnig ágæt mynd.
M Bæjaríróttir
B»aái
Afmæli á morgun:
Ouðl. Hjörleifsson sjóm.
Guðr. Jósefsdóttir húsfrú.
Hóhtitríður Hermannsdóttir húsfr.
Ólafur Sæmundsson prestur.
Erlend mynt.
Kaupmhöfn 23, júní.
Sterlingspund kr. 16,80
100 frankar — 60,50
100 mörk — 63,25
R e y k j a v í k
Bankar Pósthús
Sterl.pd. 17,40 17,40
100 fr. 61,00 61,00
100 mr. 64.00 64,00
1 florin 1,50 1,50
Dollar 3,75 3,75
Fermingar- og afmælis-
kort með íslenzkum. erindum
fást hjá Helga Árnasyni í Safna-
húsinu.
Strok.
Skipstjórar á útlendum seglskip-
um sem hér hafa legið um hríð,
kvarta undan því, að menn þeirra
hafi strokið úr skiprúmi. Hafa 2
menn nýlega strokiö af tveim skip-
um. Leit eftir þeim árangurslsus.
Prófi
í efnafræði er nýlokið við Há-
skólann. Undir þaö próf gengu 8
stúdentar.
Nýr vélbátur
er nýkomið hingað frá útlönd-
um. Hann er eign ísfiröinga nokk-
urra og heitir Kveldúlfur. Skipstjóri
bátsins milli landa var Guðmund-
ur B, Kristjánsson héðau úr bæn-
um.
Símskeyti
frá fréttaritara Vísis
Khöfn 23. júní.
Samkvæmt úrslltakröfu bandamanna eiga nýjar kosningar
til þlngsins að fara fram í Grlkklandi.
Þá geta menn farið að ráða í það, hvert þjark bandamanna við
Grikki stefnir.
Fyrst krefjast þeir að Grikkir afvopni 12 árganga af her sínum og
síðan allan herinn, og loks krefjast þeir að nýjar kosningar verði látnar
fara fram.
Menn munu minnast þess, að Venizelos hélt því fram í vetur, að
stjórnin hefði beitt fylgismenn hans því ofbeldi við þingkosningarnar í
desember, vð meina þeim að taka þátt í þeim, með því að kalla þá að
þarflausu í herinn. Þessvegna skoraði hann á alla sína fylgismenn, að
skoða kosningar þær sem markleysu og láta þær afskiftaiausar. — Nú
ætlar hann sýnilega að sjá við lekanum í tíma, og vafalaust eru það
hans ráð, sem bandamenn fara eftir, er þeir krefjast nýrra kosninga og
heimsendingar hersins samtímis. Á nú að nota sigra Rússa yfir Austur-
ríkismönnum til þess að ,af!a bandamannavinum í Grikklandi fylgis, og
síðan, er þeir eru orðnir í meiri hluta í þinginu, að neyða konung til
að ganga í lið með bandamönnum. — Zaimis, sem nú er orðinn for-»
sætisráðherra, tr gamall fylgismaður Veniselos, en tregari til þátt-töku í
ófriðnum en hann. En vafalaust er hann vinveittari honum en Skuludis.
G.s. SKALHOLT
fer frá
Reykjavík til Leith um 1. júlf.
G.s. HÓLAR
fara frí
Reykjavík til Leith um 4. júlí.
G.s. TJALDUR
fer frá
Reykjavík til Leith um 12. júlí.
Hjúskapur.
17. júní gaf séra Jóhann Þor-
kelsson saman í hjónaband ekkjufrú
Ingibjörgu Magnúsdóttur í Mföstr, 6
og Sigurö Halldórsson trésmið í
Skólastr. 5.
20. — júní ungfr. Guðrúnu Júl
Sveinsdóttur, Stóra-Seli og Jón Guð-
mundsson, sjómann.
24. júní. Ungfr, Ásu Kr. Jóhatin-
esdóttur, Njáisgötu 38 og Gunnar
Ólafsson, sjóm,, á Frakkastíg 14.
Nýja Bíó
Sýnt frá 6-9
Svertingjakonungur-
inn Koko.
Skemtijegur franskur sjónleik-
ur í 2 þáttum. Aðalhlutv. leik-
ur hinn alþekti gamanleikari
Prlnce.
Brennan.
Sorgarleikur frá Rússlandi.
Æfisaga trúboðans.
Sýnd frá kl. 9—10.
Borðvigt
óskast strax til kaups með lóð-
um ca. 273 —3 kilo.
« •
Rúðugler
er að vanda best, langódýrast f
y. ^avtvason.
Barnasjón-
leikurinn
verður endurlekinn í allra síðasta
sinn, sunnudaginn 25. júní kl. 9.
Aðgöngumiðar verða seldir í
»Iönó« kl. 10—12 f. h. og 2—6
e. h.
Nýja Bíó.
Mynd sú, er Nýja Bíó hefirsýnt
undanfarin kvöld er aö allra dómi
einhver hin bezta sem sýnd hefir
verið — ef ekki sú bezta. Hún
var auglýst í sfðasta sinn í gær,
en svo margir urðu frá að hverfa
að sýna verður hana aftur. Mynd
þessi verður sýnd frá kl. 9—10
í kvöld.
Frh. á 4. bls.