Vísir - 01.07.1916, Síða 2

Vísir - 01.07.1916, Síða 2
VlSiR VIS l R Afgrelðsla blaðsins á Hótel Island er opin frá kl. 8—8 á hverj- um degí, Inngangur frá Vallarstrætl. Skrifstofa á sania stað, Inng. frá Aðalstr. — Ritstjórlnn tll vlðtals frá H. 3-4. Sími 400.— P. O. Box 367. Best að versla i FATABÚÐINNI! Þar fást Regnkápur, Rykfrakkar fyrir herra, dömur og börn, og allur fatn- aður á eldri sem yngri. Hvergi bctra að versla en í FATABÚÐINNI, Hafnarstr. 18. Sími 269 Matvælaskorturinn í Þýzkalandi. Nokkrir dnglegir sjómenn geta nú þegar fengið atvinnu við síldveiði norður á Siglufirði á vélaskipi. Ooð kjör í boði. menn snúi sér til Gfsla Jóhannessonar, Hverfisgötu 94. Hittist heima frá 2—3 og 6—9. Karlmanna-regnkápur og mikið af Fataefnum kom með islandinu til Andrésar Andréssonar. Eftirfarandi grein er tekin úr norsku blaði: Það sem einkennir þennan ófrið, einkum síðustu mánuðina, er það, að bandamenn gera ekki annað en að verjast. Sókn Rússa er vafalaust hafin aðeins til hjálpar ítölum. — Bandamenn hafa tímann fyrir sér, og þeirra tími er ekki kominn enn. Hvorki Bretar né Rússar eru til- búnir enri. Þjóðverjar liafa aftur á móti bar- ist af hinni mestu grimd, án tillils til manntjónsins. Því þeir gela ekki beðið. Þeim er það lífsnauð- í syn að leiða ófriðinn til lykta áður en matvæli þrýtur. Hverju sem yfir er lýst opinber- lega þar í landi, þá veröur því ekki lengur neitað, að matvæli hafa þeir af mjög skcrnutu skamti. Og útlendingar flýja landið af því að þeir þrífast ekki vegna matvæla- skorts. Þetta er hægt að sýna betur með tölum. — Vér höfum fregnir frá þýzkri borg einni, þar sem sagt er að dagskamturinn af kjöti sé 60 gr. og 12 gr. af fleski. Það svar- ar til þess, aö 17 manna heimili ætti að komast af með 2 pd. af kjöti og 1 pd. af fleski í miðdags- matinn. — Það er hætt viö að leifarnar yrðu ekki miklar. Berum þetta saman við skamtinn sem norskir hermenn fá. Kjöt- og flesk-skamturinn er tal- inn í grömmum : Saltkjötsdaginn 300 og 60. Kjötstöppudag 195 og 30. Nýjakjötsdag 500 og 00. (Þýzki skamt. 60 og 12. Og þó bárust hermálaráðuneyt- inu norska fyrir skömmu síðan til- mæli frá liðsforingja einum um aö auka skamtinn, skamturinn væri of lítill, einkum í samanburöi við skamt sjóliðsmann. Sjóliðarnir fá kjöt og flesk sem hér segir: Saltkjötsdag 400 og 100 gr. Kjötstöppud. 300 og 60 Nýja kjötsd. 500 og 0 — (Þjóðverjar 60 og 12). — Hér við bætist að smjöiskamtur Þjóðverja er í hæsta lagi 200 gr. um vikuna eða 33 gr. um daginn — þegar smjör er þá að fá. Sænsk- ur ferðamaður segir jafnvel að í Niirnberg sé smjörskamturinn að eins 63 gr. nm vikuna eða 9 gr. á dag, eða rétt aðeins ofan á eina brauðsneið. Til samanburðar er smjörskamtur norskra hermanna 70 gr. á dag, og vita allir að h a n n má ekki minni vera. Samkvæmt síöustu skýrslum og útreikuingum, eiga Þjóðverjar að hafa nóg af brauði. En það er nú einusinui svo, aö maðurinn lifir ekki á einu saman brauði. Fyr eða síðar segir fituhungrið til sín. — Höfundur þessarar greinar segist hafa lifað nokkra daga á brauði og graut, eins og hann hafi getað í sig látið, en hafi þó verið sár- hungraður, vegna þess að engin fita var í matnum. Og þegar hann náði í smjör, var hann svo gráð- ugur í það að hann át það tómt. Fituhungrið er afskaplegt f Þýzka- landi. Ef auglýst er í blöðunum að feiti sé seld einhversstaðar, er eins og fólkið hálftryllist af áfergju. Það hefir komið fyrir í Berlín, að 20—30 þús. manns hafa safnast saman, fyrir utan útsölustaðina og beðið þar alla nóttina eftir því að opnað yrði. Matvælaráðuneyti hefir verið sett á stofn í Þýzkalandi. Upphaflega var til þess ætlast að það fengi al- ræði yfir öllum matvælum, en það á við ýmsa örðugleika að stríða, sem stafa af því, að hvert einstakt smáríki vakir yfir því að sérlöggjöf sinni sé ekki misboðið. í Hamborg fá 150 þús. manns mat frá matreiðsluhúsi hins opin- bera og í Beriín. Er einnig í ráði að koma upp opinberum matreiðslu- húsum. Það er ekki unt að segja þaö fyrir, hvort hervaldið, með aliar manndrápsvélarnar, fær nokkurntíma yfirbugað annanhvorn ófriðaraðila. Ef til vill verður það margra ára sultur þýzku þjóðarinnar, sem úr sker á endanum. Enn á það langt í land. En heills vetrarviðbitisskortur enn, gelur haft mikil áhrif á al- menningsálitið í Þýzkalandi. — Ef þau yrðu endaiokin, þá verða Þjóð- verjar að gefast upp, skilyrðislnust þegar þar að kemur, eins og þegar víggirtar borgir gefast upp og borg- vörðurinn Ieggur niður vopnin. Þjóðverjum er það lífsnauðsyn, að leiða ófriðinn sem fyrst til lykta, áður en hermennirnir verða að fara að herða á sultarólinni líka og áður en nýju ensku og rússnesku her- irnir eru tilbúnir til aö ráðast á þá. Forsetaefni Bandaríkjanna þeir verba að líkindum þrír, sem keppa um forsetatign íBanda- ríkjunum við næstu kosningar. Demokratar hafa tilnefnt Wilson af sinni hálfu, republikanar hafa tilnefnt Hughes dómara, en tal- ið er víst að Roosevelt verði í kjöri af hálfu síns flokks, pro- gressista. — Var um eitt skeið hálft um hálft búist við því að tveir síðastnefndu flokkarnir myndu renna saman aftur og til- nefna Roosevelt, en svo er að sjá sem hann hafi þótt altof fjand- samlegur í garð þjóðverja, og republikanar hafi því hafnað hon- um. — Hughes hefir ekkert látið uppi um afstöðu sína til þeirra T I L MINNIS: BaOluísið opið v. ti. 8-8, Id.kv. til 1! Borgarst.skrifát. i brunastöð opín v. d 11-3 Bæjarfóg.skrifst. Hverfisg. op, v. d. 10-3 og 4-7 Bæjargjaldk, Laufásv. kl. 12-3 og 5-7 v.d Islandsbanki opinn 10-4. K. F. U. M, Alm. samk, sunnd. 8l/, siðd Landakotsspít. Sjúkravitj.tími kl. 11-1. Landsbankinn 10-3, Bankastjóm til við- tals 10-12 i Landsbókasafn 12-3 og 5-8. Utlán 1-3 | Landssimlnn opinn v. di dagiangt (8-9) Helga daga 10-12 og4-7 Náttúrugripasafnið opið ll/,-2l/, siöd, Pósthúsfð opið v. d. 9-7, sunnd. 9-1 Samábyrgðln 12-2 og 4-6. Sljórnarráðsskrifstofurnar opn. 10-4 v. d, Vifilsstaðahælið. Hcimsóknartími 12-1 Þjöömenjasafniö opið sd. þd, fmd. 12-2 Ókeypis lækning háskólans Kirkjustræti 12 s Alm. lækningar á þriðjud. og föstud. kl. 12—1. Eyrna-, nef- og hálslækningar á föstud. kl. 2- 3. Tannlækningar á þriðjud. kl. 2—3. Augnlækningar i Lækjargötu 2 á mið- vikud, kl. 2—3. landsféhirðir kl. 10—2 og 5—6. Hús til sölu á góðum stað í bænum nú þegar. Semja ber við S'S^V $^\xx%sson trésmið. mála og er unnið á móti kosn- ingu hans af kappi miklu. Segja fylgismenn Wilsons að þeir menn einir eigi að kjósa Hughes, sem vilja að Bandaríkjunum sé stjórn- að frá Berlín. — Wilson kemur ekki fram sem neinn fjandmaður þjóðverja, en heldur því fram að allir borgarar Bandaríkjanna eigi að meta Bandaríkin mest af öllum ríkum og ekkert til jafns við þau, einsog Roosevelt. — En Hughes þegir um þau efni og hafa andstæðingar hans nokkuð til síns máls er þeir bera honum á brýn að hann vilji láta meta þýskaland eins mikils að minsta kosti. Er það vitanlega tilgang- ur hans að reyna að fljóta inn í Hvíta húsið á fylgi þýzkra kjós- enda úr báðum flokkum. Skipatjón ÍTorðmanna, —o— 12 fyrstu dagana í júnímánuði fórust norsk skid sem vátrygð voru þar í landi fyrir nær 12 milj- ónum króna, samtals. Af þeirri upphæð á stríðsvátryggingin að greiða kr. 7910000,oo og vöru- stríðsvátryggingin kr. 1630000,oo.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.