Vísir - 09.07.1916, Síða 4

Vísir - 09.07.1916, Síða 4
VÍ3IR BÆJA RFRÉTTIR Frh. frá 1. síðu. Flóra fór héðan í gær um kl. 6 með fjölda farþega. — llla kom það mörgum að póstur var fluttur um borð í skipið löngu fyr en vant er. Hefir það verið nokkurn- veginn föst regla, þegar um á- ætlunarskip er að ræða, að nægt hefir að afhenda póstsendingar klukkutíma fyrir brottför skips- ins. Þegar skip á að fara kl. 6 er tekið við póstsendingum til kl. 5. Mönnum dettur ekki í hug að spyrjast fyrir um það, hvenær póstur verði tekinn þegar þeir vita brottfarartímann. En í gær var brugðið út af þessari reglu. Slík óregla ætti ekki að eiga sér stað, föst, ófrávíkjanleg regla er nauðsynleg, enda mikiu hentugra fyrir pósthúsið en að þurfa altaf að vera á þönum við símann að svara fyrirspurnum. Ingimuudur Nýlega er komið á bókamark- aðinn úrval af ritum Ingimundar og er þar frernst á blaði: Vísan um Nikkolínu. Kverið er 40 bls. að stærð og verður vafalaust kærkominn gestur, því Reykvík- * ingar geta ekki Ingim.-lausir verið. Útgef. er Stjörnuútgáfan. Grasspretta er nú með allra Iakasta mótt hér sunnan lands. Þó er farið að slá tún hér í bænum, og Þórður lækn- ir á Kleppi er búinn að hirða. — Vandræðaútlit er sagt austan úr sveitum. Á Norðurlandi er útlitið miklu skárra. Frá Akureyri var símaö í gær, að þar væri stöðugt bezta veður og ekki slæmar horfur um grassprettu. Nýir siðir og nýir menn, það er næsta merkilegt tímanna tákn, að stjórnmálaflokkarnir í landinu, sem ætla að leiða saman hesta sína við kosningar að mán- uði liðnum, skufi ekki hafa látið neitt uppi um það enn, hverri stefnu þeir ætla að fylgja í skatta- málunum. — En ef vel eraðgáð þá er þetta ekki svo undarlegt, því sannleikurinn er sá, að aðeins einstaka maður þorir að láta uppi skoðun sína fyrir háttvirtum kjós- endum. það er engin tilviljun, að megn- ið af sköttunum eru óbeinir skatt- ar, tollar; bændur hafa haft tögl og hagldir á þinginu óg tollarnir koma léttast niður á þeim. Flestir þingmenn eiga kosningu sína und- ir bændum og þora því ekki að inæla á móti þeim, þó þeir kann- ist við það, að þeir séu ranglátir. — En jafnvel bændur sjálfir hafa ekki þrek til að halda þeirri stefnu \ fram í orði. það hefir nú verið myndaður | nýr flokkur í landinu, ápappírn- | um að minnsta kosti. Sá flokk- ; ur ætlar að ryðja gömlu flokk- unum út úr þinginu og telur þá óalandi og óferjandi — vegna þess að þeir hafi ekki gert neitt annað en að rífast um keisarans skegg ; og villa þjóðinni sýn í stjórn- málum, í því skyni að skara eld að sinni köku og græoa á þing- mennskunni, og þingmennirnir eru kallaðir atvinnuþingmenn. þingmönnum þessum er borið á brýn: samvizkuleysi við atkvæða- greiðslur, fyrirlitning og léttúð um heitorðin í héraði, einskisvirðing á eigin sannfæringu, ef nokkur hefði verið, miskunarlaus frekja í eiginhagsmunafylgi o. s, frv. Og ólíklegt er talið að vitsneiddari og gerspiltari kjaftaskúmar finnist á löggjafarsamkomum, heldur en hér hafa þekst á þingi. — þess vegna þarf að fá n ý j a menn á ' þing. j Ætla mætti nú, að þessir menn sem svo tala um gömlu fulltrú- ana, séu ekki í neinum vafa um að þeir geti mælt með mönnum í þingsætin, sem þeir þyrðu að fullyrða að séu b e t r i en þeir gömlu! — En því fer fjarri. Nýju mennirnir, sem þeir vilja láta kjósa, I eru hvorki betri né vitrari, að þeirra áliti, en þeir gömlu. (Lesið þið aftur lýsinguna á þeim gömlu). — Furðulegt má kalla, að þessir blessaðir nýju menn skuli gera sér slík meðmæli að góðu. En þá ætti að mega treysta því, að þessi flokkur hefði einhver ákveðin áhugamál, sem hann hugs- aði sér að láta þessa dánumenn, sem hann ætlar að „punta“ þing- ið með, koma fram. — En alveg hafa foringjarnir þag- að yfir þeim hingað til. — Ef til vill þora þeir ekki að trúa þing- mannaefnum sínum fyrir þeim enn þá, og hugsa sem svo, að þeir muni kanske fremur fylgja þeim fram á þingi, ef þeir hafa ekki lofað neinu um það fyrir- fram. Við vitum nú nokkurnveginn hvað hefir gerst hér á landi síð- ustu áratugina. Við vitum að ís- land fékk löggefandi þing 1874 og þingræðisstjórn árið 1904. — Lyklakippa hefir íýnst um heigina. Finnandi er vinsamlegast beðinn að gera afreiðslunni viðvart gen fund- arlaunum. [103 Blár köttur með hvíta bringu hefur tapast. Skilist að Veghúsum við Klapparstíg. [ 127 Tapast hafa peningar á Lauga- vegi á móts við Jón á Hjalla. Heitið góðum fundarlaunum. Skil- ist á Laugaveg 65. [128 Og það vita allir, að framfarirnar hafa verið stórstígar og þá eink- um síðan stjórnin fluttist inn í landið. — Ef menn bera saman ástandið fyrr og nú, þá dirfist væntanlega enginn að neita því, að framfarirnar séu miklar. það er því furðulegt, að þeir menn, sem dæma gömlu þing- mennina svo hart, skuli dirfast að koma fram sem nýr stjórn- málaflokkur og hafa þó hvorki betri né vitrari mönnum á að skipa og engin áhugamál önnur en að volta gömlu þingmönnun- um úr sætunum. Eg veit ekki hvort fífl það, sem kallar sig „Vestfirðing" í þjóðstefnunni er sama fíflið sem það nafn notar í Suðurlandi, en bæði eiga þau einnig sammerkt í því, að sýnilegt er, að penna þeirra stjórnar ekkert annað en löngun til að blaðra og níða sér betri menn. Sést það bezt á því, að þeim er ekkert sárara um mennina sem þau þykjast vilja láta kjósa en hina, sem þau reyna að spilla kosningu fyrir. Og ekk- ert þjóðþrifamál bera þau fyrir brjósti. — En hvort sem þau nú heita réttu nafni: Árni, Bjarni, Einar, Finnur eða Gestur, þá má það merkilegt heita að nokkurt blað, sem vill láta telja sig lands- málablað, skuli bera slikar rit- smíðar á borð fyrir lesendur sína. það er eðlilegt, að gömlu flokk- arnir hafi ekki tekiö afstöðu til skattamálanna enn, þeir geta það ekki. Flokkaskiftingin hefir bygst á öðrum málum. En flokkar sem nú eru að myndast, þegar fyrir- sjáanlegt er að þessi mál verða aðalmál á dagskrá þjóðarinnar, þpir verða að segja skýrt og skorinort hverri stefnu þeir ætla að fylgja. — Annars verðurekki hægt að álíta þá tilorðna í öðru skýni en að bola hinum frá jöt- fynni. Reykvikingur. KAUPSKAPUB Nýlegt orgel til sölu nú þegar. A. v. á. [116 Kvenhjólhestur til sölu. A. v. á. [119 Lítið brúkaður kvenhjólhestur til sölu hjá Guðm. Breiðfjörö blikk- smið Laufásveg 4. [131 Brúkuð vatnsstígvél til sölu og sýnis hjá B. Jónssyni Hveríisgölu 64. [132 Ágæt síldarstígvél á kvenmann til söiu á Baidursgötu 1. [133 Mann vantar til ' að róa á bát með öðrum manni á Vestljörðum. Uppl. á Vesturgötu 30. [134 Morgunkjólar vænstir og ódýrast- ir á Nýlendugötu 11 B. áður á Vesturgötu 38. [447 Langsjöl og þríhyrnur fást alt af í Garðarsstræti 4 (gengið upp frá Mjóstræti 4). [43 Nýtt eða gamalt fuglabúr fyrir 2 kanarífugla óskast til kaups. Uppl. á Laugavegi 8 uppi. [94 Lítið brúkaður kvenhjólhestur til sölu hjá Guðm. Breiðfjörð blikk- smið á Lauíásvegi 4. [96 Lítið brúkuð reiðföt til sölu með góðu verði í Bergstaöastræti 3 niðri, [82 Kaupakonu vantar í grend við b æinn mánaðartíma. Hátt kaup Upplýsingar í síma 572. [92 Stúlka óskast til að sauma viku tfma. A. v. á. [122 Stúlka óskast nú þegar. Hátt kaup. A. v. á. [124 Kaupakonu vantar í sveit á gott heimili. Hátt kaup. Upplýsingar í Mjóstræti 6. [125 Telpa óskast í vist mánaðartíma hjá fólki sem fer upp í sveit. Afgr. v. á. [130 H ÚSNÆÐI 1. október vantar 2—3 herbergi og eldhús, helst í vesturbænum. Uppl. hjá Jóni Hjartarsyni í Hafn- arstræti 4. [76 Einhleypur maöitr óskar eftir herbergi með húsgögnum frá 1. okt. n. k. [35 Barnlaus fjölskylda óskar eftir þægilegri íbúð frá 1. okt., helzt í ausurbænum. Upplýsinpar á Lauga- vegi 19 (niðri). [74 2 herbergi og eldhús tii leigu til 1. október, A. v. á. [110 Herbergi fyrir ferðafólk í Lækjar- götu 12 B. [37 1 herbergi til leigu fyrir ein- hleypan karlmanu eða kvenuiann í Tjarnargötu 8. [129

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.