Vísir - 23.07.1916, Page 4
VISIR
er, aö koina á föstu bandalagi og
ævarandi satnvinnu milli Rússlands
og Japans, í öilu því er miðar aö
því aö vernda rétt og hag beggja
þjóðanna.
KAUPSKAPUR
]
Nýir kaupendur
Langsjöl og þríhyrnur
fást alt af í Garðarsstræti 4 (gengið
upp frá Mjóstræti 4), [43
Síldveiðin.
Vísis
fá
Morgunkjólar vænstir og ódýrast-
ir á Nýlendugötu 11 B. áður á
Vesturgötu 38. [447
blaðið ókeypis fyrst um sinn
til mánaðamóta*
—o—
(Símfrétt).
Hjalteyri í gær.
Síldveiðin er nú byrjuð og er
síldinni ausið upp. Skipin koma
með 4 —500 tunnur á hverjum
degi og stundum kvöld og morgna.
Skallagrímur hæstur. Hann er bú-
inn að fá um 1400 tunnur.
Útlit er fyrir að síldin gangi inn
í fjöröinn, hennar hefir orðið vart
í reknet innundir Ólafsfirði.
Verkafólk er hér færra en þörf er
fyrir. Sérstaklega vantar einn út-
gerðarmann tilfinnanlega stúlknr til
að kverka.
Ver zluiiarbandalagið
Og
hlutlausu ríkin.
Formaður utanríkismálanefndar-
innar í efri málstofu Bandaríkja-
þingsins hefir lagt fyrir þingiö frumv.
til þingsályktunar þar sem skorað
er á Wilson forseta að gera þing-
inu grein fyrir efni verzlunarsamn-
inganna sem Frakkar og banda-
menn þeirra í ófriðnum hafa nú á
prjónunum, og miða að því að
einangra Þézkaland í veizlun, einn-
ig að ófriðnum loknum, Sérstak-
lega er skorað á forsetann að skera
úr því, að hve miklu leyti þessir
samningar snerti hag hlutlausra
rfkja og þá einkum Bandaríkjanna.
Gúmmípappír
til býzkalands.
. Farið í kringum sœnskt
útflutningsbann.
Það hefir komist upp, að búinn
hefir verið til eins konar gúmmí-
pappír í pappírsverksmiðjunni Tún-
fors í Svíþjóð. Hafa þunnar gúmmí-
plötur veriö lagðar á milli pappírs-
laga og fluttar þannig út til Þýzka-
lauds sem »karton«. En útflutn-
ingur á gúmmí er bannaður í Sví-
þjóð. Þessi »pappírsgerð« varsjálfri
verksmiðjunni óviðkomandi. Þýzk-
ur maður hafði leigt hjá henni
húsnæði og rekstursafl, en borgaði
sjálfur jverkamönnum þeim sem
að þessu unnu.
ITæsta Englands-
drottningP
Sagt er að prinsinn af Wales sé
trúlofaður elztu dóttur konungsins á
ítalíu. Hún heitir Jolanda og er
aðeins 15 ára að aldri. Prinsinn
af Wales, elzti sonur Bretakonungs,
heitir Edward og er 22 ára.
Kanslaraskifti
í Þýskalandi?
Kafbátahernaðurinn.
Það er að vísu ekki annað en
orðrómur enn þá, að kanslar-
skifti eigi að verða í Þýskalandi.
En ekki er ólíklegt að sá orð-
rómur verði bráðlega að veru-
leika. Eins og géngur, þegar alt
leikur ékki í lyndi, þá er æðstu
stjórnendunum kent um. Og
Bethmann Hollweg ríkiskanslari
hefir ekki farið varhluta af að-
finningum ásíðustu tímum. Auk
þess sem mikill hluti jafnaðar-
manna er honum mjög andvígur
eru augu fjölda-margra lands-
manna farin að opnast fyrir því,
hve geigvænlega ógæfu ófriður-
inn muni leiða yfir þjóðina og hve
hrapalega allar sigurspár stjórn-
arinnar bregðast, og liggur þá
nærri að saka æðstu stjórn lands-
ins um fyrirhyggjuleysi og skamm
sýni. Enda hefir flugritum rignt
yfir landið, þar sem dæmt er ó-
vægilega um aðfarir stjórnarinn-
ar. — En þar við bætist, að það
eru ekki eingöngu friðarvinir sem
andvígir eru kanslaranum, held-
ur eru æstustu ófriðarpostularnir
orðnir honum andvígir, og þeir
iíka farnir að skrifa flugrit um
ódugnað og hringlandahátt stjórn-
arinnar. — Þar veldur mestu um
sú ákvörðun stjórnarinnar að
draga úr kafbátahernaðinum, sam-
kvæmt kröfu Bandaríkjanna.
Þessi óánægja fær auðvitað
mikinn byr í seglin, nú, þegar
bandamenn hafa byrjað sókn sína
á vesturvígstöðvunum. — Áður
gátu ófriðarpostularnir »slegið
um sig« með sigurvinningum á
landi, en nú geta þeir í mesta
lagi huggað sig við það að banda-
menn fái engu áorkað. Sigurvon-
irnar verður því að sœkja til flot-
ans. *En þó að »þýski úthafsflot-
inn« sé vitanlega voldugasti fioti
heimsins sfðan sjóorustan stóð
í Skagerak, þá er þó enginn svo
bírœfinn, að stinga upp á því að
senda hann út aftur til að ger-
sigra breska flotann. — En af-
reksverk flotans hafa gefið kaf-
bátahernaðarkröfunni nýjan byr.
Og vafalaust verður þess ekki
langt að bíða að sá hernaður
komist aftur í algleyming.
Er því haldið fram, eins og
Vísir hefir áður skýrt frá, að með
kafbátunum geti Þjóðverjar svelt
Englendinga inni. Bethmann Holl-
weg hefir Iofað Wilson að hætta
kafbátahernaðinum. — Það mun
áiitið ófyrirgefanlegt, og þess
vegna er líklegt að honum verði
hrundið frá völdum.
Bethmann Hollweg hefir verið
ríkiskanslari síðan 1909, er hann
tók við af Bulow fursta, og hafa
ekki farið miklar sögur af stjórn
hans. Bulow fursti hefir lengi
verið talinn einn mesti stjórn-
vitringur Þýzkalands, og því
nefnir orðrómurinn hann nú vafa-
laust sem eftirmann B. H. Hann
varð kanslari árið 1900, tók við
af Hohenlohe fursta, en hafði
áður verið sendiherra Þýzka-
lands víða um lönd og síðast
utanríkisráðherra og leyst úr
mörgum vandamálum. í viður-
kenningarskyni fyrir starf hans í
landsins þjónustu gerði keisar-
inn hann að greifa árið 1899 og
fursti varð hann 1905.
Reyttur og óreittur Iundi fæst í
Íshúsínu. Einnig lundafiður. [196
Saumaskapur
á morgunkjólum, barnafötum o. fl.
er fekinn á Vesturgötu 15 (vestur-
endanum). [217
Tilboð óskast f 3 tunnur af
söltuðu spaðkjöti og 1 tunnu
af söltuðu nautakjöti. Skilist
á afgr. í lokuðu umslagi, merkt
>kjöt« fyrir sunnudagskvöld
23. þ. m. [247
Tveir telpuhattar — aunar alveg
nýr — til sölu meö tækifærisverði.
A. v. á. [248
Morgunkjólar fást bestir í Garða-
stræti 4. [253
Ánamaðkur fjl sölu á Lauga-
vegi 54. [254
HÚSNÆÐI
Herbergi með húsgögnum til
leigu í Bárunni. [163
2—3 herbergi og eldhús óskast
1. okt. næstk. fyrir fámenna fjöl-
skyldu. Fyrirfram borgun um iengri
tíma ef óskað er. A. v. á. [184
2 herbergi og eldhús óskast frá
1. okt. fyrii barnlaust fólk. heizt í
Vtsturbænum. A. v. á. [213
Einhieypur og reglusamur piltur
óskar eftir herbergi til íbúöar frá
1. okt. næstk. (í uppbænum). A. v. á.
[215
2—3 herbergi og eldhús til leigu 1. október. A. v. á. óskast [205
Stálpuð telpa óskast strax tii 1.
október. A. v. á. [252
Kaupamann vantar. Gott kaup
og löng vinna. A. v. á. [252
Undirritaður vélritar bréf og
samninga og semur bréf ef þess er
óskað. Heima 10—11 og 3—4.
Grettisgötu 46
Guðmundur M. Björnsson
Grár ketlingur horfinn á Spítala
stíg 6. Góð fundarlaun. L. P.