Vísir - 23.07.1916, Blaðsíða 4

Vísir - 23.07.1916, Blaðsíða 4
VISIR er, aö koina á föstu bandalagi og ævarandi satnvinnu milli Rússlands og Japans, í öilu því er miðar aö því aö vernda rétt og hag beggja þjóðanna. KAUPSKAPUR ] Nýir kaupendur Langsjöl og þríhyrnur fást alt af í Garðarsstræti 4 (gengið upp frá Mjóstræti 4), [43 Síldveiðin. Vísis fá Morgunkjólar vænstir og ódýrast- ir á Nýlendugötu 11 B. áður á Vesturgötu 38. [447 blaðið ókeypis fyrst um sinn til mánaðamóta* —o— (Símfrétt). Hjalteyri í gær. Síldveiðin er nú byrjuð og er síldinni ausið upp. Skipin koma með 4 —500 tunnur á hverjum degi og stundum kvöld og morgna. Skallagrímur hæstur. Hann er bú- inn að fá um 1400 tunnur. Útlit er fyrir að síldin gangi inn í fjöröinn, hennar hefir orðið vart í reknet innundir Ólafsfirði. Verkafólk er hér færra en þörf er fyrir. Sérstaklega vantar einn út- gerðarmann tilfinnanlega stúlknr til að kverka. Ver zluiiarbandalagið Og hlutlausu ríkin. Formaður utanríkismálanefndar- innar í efri málstofu Bandaríkja- þingsins hefir lagt fyrir þingiö frumv. til þingsályktunar þar sem skorað er á Wilson forseta að gera þing- inu grein fyrir efni verzlunarsamn- inganna sem Frakkar og banda- menn þeirra í ófriðnum hafa nú á prjónunum, og miða að því að einangra Þézkaland í veizlun, einn- ig að ófriðnum loknum, Sérstak- lega er skorað á forsetann að skera úr því, að hve miklu leyti þessir samningar snerti hag hlutlausra rfkja og þá einkum Bandaríkjanna. Gúmmípappír til býzkalands. . Farið í kringum sœnskt útflutningsbann. Það hefir komist upp, að búinn hefir verið til eins konar gúmmí- pappír í pappírsverksmiðjunni Tún- fors í Svíþjóð. Hafa þunnar gúmmí- plötur veriö lagðar á milli pappírs- laga og fluttar þannig út til Þýzka- lauds sem »karton«. En útflutn- ingur á gúmmí er bannaður í Sví- þjóð. Þessi »pappírsgerð« varsjálfri verksmiðjunni óviðkomandi. Þýzk- ur maður hafði leigt hjá henni húsnæði og rekstursafl, en borgaði sjálfur jverkamönnum þeim sem að þessu unnu. ITæsta Englands- drottningP Sagt er að prinsinn af Wales sé trúlofaður elztu dóttur konungsins á ítalíu. Hún heitir Jolanda og er aðeins 15 ára að aldri. Prinsinn af Wales, elzti sonur Bretakonungs, heitir Edward og er 22 ára. Kanslaraskifti í Þýskalandi? Kafbátahernaðurinn. Það er að vísu ekki annað en orðrómur enn þá, að kanslar- skifti eigi að verða í Þýskalandi. En ekki er ólíklegt að sá orð- rómur verði bráðlega að veru- leika. Eins og géngur, þegar alt leikur ékki í lyndi, þá er æðstu stjórnendunum kent um. Og Bethmann Hollweg ríkiskanslari hefir ekki farið varhluta af að- finningum ásíðustu tímum. Auk þess sem mikill hluti jafnaðar- manna er honum mjög andvígur eru augu fjölda-margra lands- manna farin að opnast fyrir því, hve geigvænlega ógæfu ófriður- inn muni leiða yfir þjóðina og hve hrapalega allar sigurspár stjórn- arinnar bregðast, og liggur þá nærri að saka æðstu stjórn lands- ins um fyrirhyggjuleysi og skamm sýni. Enda hefir flugritum rignt yfir landið, þar sem dæmt er ó- vægilega um aðfarir stjórnarinn- ar. — En þar við bætist, að það eru ekki eingöngu friðarvinir sem andvígir eru kanslaranum, held- ur eru æstustu ófriðarpostularnir orðnir honum andvígir, og þeir iíka farnir að skrifa flugrit um ódugnað og hringlandahátt stjórn- arinnar. — Þar veldur mestu um sú ákvörðun stjórnarinnar að draga úr kafbátahernaðinum, sam- kvæmt kröfu Bandaríkjanna. Þessi óánægja fær auðvitað mikinn byr í seglin, nú, þegar bandamenn hafa byrjað sókn sína á vesturvígstöðvunum. — Áður gátu ófriðarpostularnir »slegið um sig« með sigurvinningum á landi, en nú geta þeir í mesta lagi huggað sig við það að banda- menn fái engu áorkað. Sigurvon- irnar verður því að sœkja til flot- ans. *En þó að »þýski úthafsflot- inn« sé vitanlega voldugasti fioti heimsins sfðan sjóorustan stóð í Skagerak, þá er þó enginn svo bírœfinn, að stinga upp á því að senda hann út aftur til að ger- sigra breska flotann. — En af- reksverk flotans hafa gefið kaf- bátahernaðarkröfunni nýjan byr. Og vafalaust verður þess ekki langt að bíða að sá hernaður komist aftur í algleyming. Er því haldið fram, eins og Vísir hefir áður skýrt frá, að með kafbátunum geti Þjóðverjar svelt Englendinga inni. Bethmann Holl- weg hefir Iofað Wilson að hætta kafbátahernaðinum. — Það mun áiitið ófyrirgefanlegt, og þess vegna er líklegt að honum verði hrundið frá völdum. Bethmann Hollweg hefir verið ríkiskanslari síðan 1909, er hann tók við af Bulow fursta, og hafa ekki farið miklar sögur af stjórn hans. Bulow fursti hefir lengi verið talinn einn mesti stjórn- vitringur Þýzkalands, og því nefnir orðrómurinn hann nú vafa- laust sem eftirmann B. H. Hann varð kanslari árið 1900, tók við af Hohenlohe fursta, en hafði áður verið sendiherra Þýzka- lands víða um lönd og síðast utanríkisráðherra og leyst úr mörgum vandamálum. í viður- kenningarskyni fyrir starf hans í landsins þjónustu gerði keisar- inn hann að greifa árið 1899 og fursti varð hann 1905. Reyttur og óreittur Iundi fæst í Íshúsínu. Einnig lundafiður. [196 Saumaskapur á morgunkjólum, barnafötum o. fl. er fekinn á Vesturgötu 15 (vestur- endanum). [217 Tilboð óskast f 3 tunnur af söltuðu spaðkjöti og 1 tunnu af söltuðu nautakjöti. Skilist á afgr. í lokuðu umslagi, merkt >kjöt« fyrir sunnudagskvöld 23. þ. m. [247 Tveir telpuhattar — aunar alveg nýr — til sölu meö tækifærisverði. A. v. á. [248 Morgunkjólar fást bestir í Garða- stræti 4. [253 Ánamaðkur fjl sölu á Lauga- vegi 54. [254 HÚSNÆÐI Herbergi með húsgögnum til leigu í Bárunni. [163 2—3 herbergi og eldhús óskast 1. okt. næstk. fyrir fámenna fjöl- skyldu. Fyrirfram borgun um iengri tíma ef óskað er. A. v. á. [184 2 herbergi og eldhús óskast frá 1. okt. fyrii barnlaust fólk. heizt í Vtsturbænum. A. v. á. [213 Einhieypur og reglusamur piltur óskar eftir herbergi til íbúöar frá 1. okt. næstk. (í uppbænum). A. v. á. [215 2—3 herbergi og eldhús til leigu 1. október. A. v. á. óskast [205 Stálpuð telpa óskast strax tii 1. október. A. v. á. [252 Kaupamann vantar. Gott kaup og löng vinna. A. v. á. [252 Undirritaður vélritar bréf og samninga og semur bréf ef þess er óskað. Heima 10—11 og 3—4. Grettisgötu 46 Guðmundur M. Björnsson Grár ketlingur horfinn á Spítala stíg 6. Góð fundarlaun. L. P.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.