Vísir - 30.07.1916, Side 4
VISIR
í fiarveru minni
frá 30. júlí til 27. ágúst gegnir prófessor Sætnundur Bjarnhéðins
son læknisstörfum fyrir mig.
Jón Hj. Signrðsson
héraðslæknir.
í fjarveru minni
frá 1.—16. ágúst gegnir hr. læknir Halldór Hansen læknisstörfum
fyrir mig.
Matthías Einarsson.
Frá Balkan
Engin ný tíöindi eru sögð af
Balkan í síðustu erlendum blööum,
sem hingað hafa komið (til 12. þ. m.)
önnur en þau, að franskir og brezk-
ir flugmenn hafi kastað sprengi-
kúlum á Monastir og Rupelvígið,
þar sem hersveitir Búlgara hafast
við og þýzkir flugmenn hafa ný-
lega kastað 15 sprengikúlum á Sa-
loniki.
Heyútflutningur
bannaður í loiegi.
Landbúnaöar-ráðuneyti Norð-
manna hefir tilkynt að útflutningur
á heyi frá Noregi verði bannaður
framvegis.
Gróðafíkn
og
fjárglæfrar.
—o—
í útlöndum og þá einkum á
Noröurlöndum, eru menn um þess-
ar mundir svo gráðugir í að kaupa
hlutabréf í skipafélögum, að úr hófi
keyrir og ekkert vit er í því. Þeg-
ar ný félög eru mynduð keppast
menn um að bjóða fram féð og
komast ekki að, eu hlutabréf í
gömlum félögum eru seld fyrir
margfalt verð.
Forstjóri sameinaða gufuskipa-
félagsins danska hefir nýlega ritaö
grein um þetta efni í «Berlingske
Tidende*. Með nákvæmum út-
reikningi hefir hann komist að
þeirri niðurstöðu, að hvert hundr-
að í hlutabréfum þess Sameinaða
sé 205 króna virði. En þau ganga
nú kaupum og söluni fyrir 420
krónur, hvert hundiað. Mismunur-
inn er hér um bil 200 °/o öliu
hlutafé íélagsins, eða um 50 milj.
króna. Þessi margföldun (þreföld-
un) á verðgildi hlutafjárins ætti að
byggjast á gróðavonum félagsins í
framlíðinni eða núverandi verögildi
skipastólsins. Bókfært verð hans er
30 miljónir og ætti hann eftir þessu
að vera 90 miljóna kr. viröi, en
þaö er hann ekki, segir forstjóri
félagsins, því það er ekki hægt að
selja hann. Að lokum fullyrðir
hann að þetta háa verð á hluta-
bréf um þessum nái ekki neinni átt
einkum vegna þess að verzlunar-
stn'ðið, sem búist er við að hefjist
að ófriðnum loknum, muni verða
áætlunarskipum þungt í skauti.
í norskum blöðum er varað viö
auglýsingum, þar sem boðin eru út
hlutabréf í nýjum skipafélögum og
«allar upplýsíngar gefnar á þessum
og þessum stað«. — Er það sýni-
Iegt, að fjárglæframenn eru farnir I
að nota sér þessa hlutabréfagrægði
fólksins og selja hlutabréf í félög-
unum sem aldrei verða til — og
hverfa svo.
Landshrafninn
* fer í hring.
—-o —
Fyrir skömmu síðan flutti Vísir
fyrir mig nokkrar athugasemdir
út af ritsmíð „Hrafns" nokkurs í
Landinu. Lesendur Vísis muna
því e. t. v., að Hrafn þessi hélt
því fram, að með „samningum"
stjórnar vorrar við Breta, væru
íslendingar sviftir vernd Norður-
landa. — Eg benti á að íslenzku
samningarnir gætu ekki skuld-
bundið Norðurlönd umfram þær
kvaðir, sem lagðar væru á skip
þeirra, sem héðan flytja farma,
hvert sem innihald þeirra samn-
inga annars kynni að vera. þeir
gætu því heldur ekki svift Svía,
Norðmenn eða Dani, sem kynnu
að kaupa hér vörur f.o.b., vernd
Norðurlanda.
„Hrafn“ fer nú aftur af stað í
Landinu 28. þ. m., og svarar at-
hugasemdum mínum á þá leið, að
það, að vörur hafi komist og kom-
ist til Norðurianda (þrátt fyrir
samningana) sanni ekki annað en
það, að Norðurlönd séu stórveldi
sem að sínu leyti láta ekki beygja
sig undir samning, sem íslenzka
stjórnin hafi gert — einsog hann
hafi alltaf sagt, „Hrafn“ sjálfur! —
Svo bætir hann því við, að „stjórn-
arblöðin” verði því að finna upp
einhverjar nýjar blekkingar, því
þessar dugi ekkil!
Mér þykir „Hrafn“ vera orðinn
gamansamur. Um leið og hann
með þessum auðsæja hringsnún-
ingi, viðurkennir að þessi upp-
fundning hans: að „samningarnir®
svifti oss vernd Norðurlanda, sé
ekkert annað en b 1 e k k i n g,
brigslar hann öðrum um blekk-
ingartilraunir!
„Hrafn“ les Lögréttu; það er
auðséð. En hann les hana sýni-
lega eins og skrattinn les biblí-
una, svo sem góðum og gildum
þversummanni sæmir. — Lögrétta
vakti nýlega athygli á því, að á-
kvæði reglugerðar landsstjórnar-
innar í 4. gr. um að sendandi
skuli sæta sömu sektum og skip-
stjóri, ef skipstjóri brýtur skuld-
bindingu sína um að koma við í
brezkri höfn, gæti orðið hættulegt
íslenzkum útflytjendum, og er það
rétt athugað. En „Hrafn“ grípur
þetta hálmstrá og reynir að spinna
úr því nýjar blekkingar um að
samið hafi verið um meira en að
skylda skipin til að koma við í
brezkri höfn.
En í sjálfu sér sannar þetta ein-
mitt það gagnstæða. því ef samið
hefði verið um að banna alla sölu
og útflutning á afurðum vorum
til Norðurlanda og Hollands, eins
og Lanclið hefir haldið fram, þá
var viðkomuskyldan i brezkri höfn
alsendis óþörf, og sízt þörf þungra
sektarákvæða í því sambandi. Og
sízt af öllu var þá ástæða til að
taka skuldbindingu af hverjum
einstökum útflytjanda um að flytja
ekki vörur til nefndra landa, eins
og þó hefur verið gert eftir að
samkomulagið var komið á.
En það er nú orðið á eftir tím-
anum að þrátta um innihald þessa
samnings, einsog kunnugt er. Og
ekki er það ólíklegt, að lands-
menn geti að nokkru leyti þakkað
Landinu og þeim bjargvættum ís-
lands, sem að því standa, hvernig
nú er komið.
Á. B.
Kaupakonu
vantar að Breiöholti. Talið við
Sigurgísla Guðnason hjá Zimsen.
Langsjöl og þríhyrnur
fást alt af í Garðarsstræti 4 (gengið
upp frá Mjóstræti 4). [43
Reyttur og óreittur lundi fæst í
íshúsinu. Einnig Iundafiður. [196
Saumaskapur
á morgunkjólum, barnafötum o. fl.
er tekinn á Vesturgötu 15 (vestur-
endanum). [217
Morgunkjólar vænstir og ódýrast-
ir á Nýlendugötu 11 B. áöur á
Vesturgötu 38. [447
Frímerki keypt háu verði í Báru
búð (bakhúsinu) frá kl. 11—1 f. m.
| og 7—8 e. m. [295
j Mjólkurhúsið á Grettisgötu 38
' vill daglega fá keypta 50—100 ltr.
af nýmjólk nú þegar eða frá 1.
september næstk. [297
Morgunkjólar fást beztir í Garða-
str. 4. [299
| Barnavagn óskast til kaups nú
þegar. A. v. á. [302
Fiitistandandi eldavél, brúkuð
óskast til kaups. A. v. á. [303
Nýlegt tjald, kompás, fín vegg-
klukka (mahogni) stórt borð o. fl.
fæst með góðu veröi á Laugavegi
22 (steinh.). [304
Snotur íbúð, 3—5 herbergi
eftir ástæöum óskast frá 1. október
n. k. Allar uppl. gefur B. Stefáns-
son í Austurstræti 3. Sími 37. [263
1 heibergí með aðgang að eld-
húsi í rólegu húsi, helzt í Vestur-
bænum, óskast frá l.ág. eða l.okt.
Uppl. á Vesturgötu 24 (uppi). [265
2—3 herbergi og eldhús óskast til
leigu frá 1. október. Hansen á
Lindargötu 1 (uppi), [294
Hcrbergi með húsgögnum til
leigu í Bárunni. [163
2—3 herbergi og eldhús óskast
1. okt. næstk. fyrir fámenna fjöl-
skyldu. Fyrirfram borgun um lengri
tíma ef óskað er. A. v. á. [J84
Herbergi til leigu fyrir ferðafólk
í Lækjargötu 12 B. [305
TAPAÐ — FUNDHB
Sparisjóðsbók fundin. Uppl. í
Bárunni. [288
Tapast hefir á götum bæjarins
mausettuhnappur úr gulli. Finn-
andt er beðinn að skila honum á
Laugaveg 70 gegn fundarlaunum.
[306