Vísir - 01.08.1916, Page 4
VlSIR
Enn um Grullfosshestana
Herra Gunnar Sigurösson frá
Selalæk liefir gert nokkrar athuga-
semdir viö grein mína í 200 tbl,
»Vísis«, þar sem hann í blaðinu í
gær skrifar langa grein til andsvara,
en meginþorri þeirrar ritsmíðar er
útúrsnúningar og hártoganir, samt
játar hann sumt satt að vera, en
sum aðfinnsluatriði mín minnist
hann ekki á, sjálfsagt vegna þess
að þau voru svo augljós að á móti
þeim tjáði ekki að mæla.
Skrafdrjúgast verður honum um
hrossafjöldan sem fór með skipinu,
og að hans hey hafi verið yfriö
nóg, en gefur samf jafnframt í skyn
að H. Zöllner hafi vanhagað um
hey, en lýsir svo jafnframt það til-
hæfulaus ósannindi að símað hafi
veriö eftir heyi þegar fariö var að
skipa hestunum út. Á móti því
þýöir greinarhöf. ekki að mæla, að
hey var fengið hjá Samúel Ólafs-
syni söðlasmið þá um daginn eftir
að farið var að skipa hestunum út.
Greinarhöf. neitar því að fleiri
hestar hafi átt að fara með skipinu
en 225, en hvers vegna voru þá
rekin á annað hundraö hross upp
úr bænum aftur um kvöldið ? Hvaða
þýöingu haföi það að láta þau
standa meginhluta dagsins niður á
bryggju ef þau hafa ekki átt að
sigla ? Mögru hrossunum heföi
þó sannarlega ekki veilt af að vera
á högum þenna dag.
Heyrt liefi eg að dýralæknir hafi
gert afturreka nokkur tryppi hjá
G. S. þenna dag, en varla get eg
trúað því að þau hafi verið á ann-
að hundrað.
Hr. Gunnar Sigurðsson viður- 1
keunir þó, að nýja heyið frá Viöey
hafi ekki veriö vel þurt. Það er
sjálfsagt engin skreytni í því fólgin
hjá höf. Hvaö skyldi annars hafa
verið mörg þúsuud pund af vatni
í þessum 1500 pd. ?
Greinarhöf. viðurkennir Iíka að
heyið frá Lækjarbotnum hafi verið
slæmt, en bætir því við, að hann
hafi fengiö það lánað en ekki keypt.
Það gerir svo sáralítinn mismun í
þessu efni hvort það «er keypt eða !
lánað, var jafnmikill óþverri hvort ■
sem var, tæplega gefandi hestum í
gaddharðindum hvað þá útflutnings-
hrossum á sumardegi. Eg þóttist
hafa það úr ábyggilegum stað að
dýralæknir hefði rekið það til baka
— en ef það er rétt hjá 'greinar-
höf. að það hafi farið nieð hest-
unum, þá er eg sannfærður um að
dýralæknir hefir aðeins iátiö það
fara með það fyrir augum að hest-
arnir rótuðu því undir sig í lest-
ina, en ekki til fóðurauka Það er í
rangt hjá höf. aö «alómögulegt« I
hafi verið að fá hey í bænum í
vor, því þetta sama kvöld fékk þó
Gunnar Sigurðsson hey allgott inn
á Laugavegi, en hann hefir sjálf-
sagt þurft aö borga þaö, en ekki
fengið það lánað.
Svo ætti það að vera, Gunnar
minn Sigurðsson frá Selalæk, að
þaö væri ykkar áhugamál aö hest-
arnir litu sem bezt út er þeir kæmu
til útlanda, en manni hefir nú virzt
hið gagnstæða hafi átt sér alt of
oft stað hingað til hjá sumum
hrossaútflytjendum — ekki þó öllum.
Og það er gleðilegt ef þéirætlaað
fara alment að bæta ráð sitt í þessu
efni. — En ekki hefi eg beinlínis
trú á því aö G. S. gangi þar á
undan með góðu fordæmi; fremur
gæti eg trúað Guðm. Böðv. eða
máske Dan. Daníels. til þess að Iag-
færa eitthvað í þessu efni ef þeir
vildu léttan á leggja.
Ef að hinir yngri matvælakaup-
menn bæjarins æltu að taka sér til
fyrirmyndar heyið sem sum útflutn-
ingshrossin hafa fengiö á sjóleið-
inni, þá heföu þeir sannarlega ekki
þurft að vera vandlátir með vöru-
kaup sín. Annars kemur »myglaö
rnjöU ekki þessu máli við, það er
rétt fyrir greinarhöf. aö athuga það
sérstaklega, sér til dægrastyttingar
í sumarfríinu.
Hvað var klukkan þegar hestarnir
voru teknir úr haganum um morg-
uninn? Og hvað var hún þegar
þeir komu í hagann aftur um kvöld-
ið? Margir hestar komu á »ptanið«
áður en kl. var 11. Skipið fór ekki
fyr en kl. 8 morguninn eftir, og
það hafa menn sagt mér sem farið
hafa á milli landa með útfiutnings-
fénaði að aldrei líði skepnunum
jafn illa, sem þá þegar skipin liggi
kyr inni á höfnum.
Höf. viðurkennir þó aö ýmislegt
sé athugavert við útskipunina, þó
hann reyni að snúa út úr því á
þann veg að betra sé að hafa taug
en púöa, en ef viö legöum saman
með athugasemdir okkar, þá gæti
orðið úr því stór réttarbót fyrir
hestana og þá er tilgangi mínum
náð, og þó ait vitið í þá »bót«
kæmi frá G. S. þá skyldi eg vera
honum þakklátur fyrir.
Óþarfi er fyrir G. S. að bera kvíð-
boga fyrir því að eg muni skemma
fyrir dýraverndunarstarfseminni með
ritsmíðum mínum, fremur ber eg
kvíöboga fyrir að hann skemmi
fyrir hrossaverzlun landsins með
útflutningi sínum. Ef eg fæ bend-
ingu um það frá yfirboðurum mín-
mínurn að hætta að skrifa um þetta
mál, þá er að taka því, eu eftir
bendingum G. S. fer eg alls ekki.
Glósur Gunnars Sigurðssonar um
manninn sem horfeldi er hann bjó
í sveit. vísa eg heim til höf. aftur
sem mér persónul. alveg óviðkom-
andi.
Eg skal ekki rengja Gunnar Sig-
urðsson um það að hann kunni að
hafa nefnt við rekstarmenn sína að
reka hrossin gætilega, en ef svo
hefur verið þá viröist sem þeir hafi
gleymt því furðu fljótt, samanber
slysiö er varð á suðurleið er
stóðið kom að austan síðast,
Af því að hr. Gunnar Sigurðsson
bendir mér á að eg muni ekki hafa
vit á að skrifa um þetta mál, þá
vildi eg í sama máta og mesta bróð-
erni mega benda honum á, aö eg
hefi fylstu ástæðu til að ætla að hann
sé ekki þeim starfa vaxinn að kaupa
hross til útflutnings, þvi eg vil ekki
ætla aö aðrar hvatir ráði en grunn-
hygni hjá þeim manni, sem kaupir
fylfulla hryssu viö Þjórsárbrú, en
sem kastar svo er hún kemur út að
Ölvusárbrú, lítið vit virðist vera í að
kaupa svoleiðis gripi til útflutnings
og ef þaö væri með ásetningi gert,
þá er mikil harka ef ekki annað
vera í því fólgiö, en eg hygg að
slík misgrip stafi af því að maður-
inn veit ekki betur, - þá mælir öll
sanngirni með því að á því sé tekið
með vægum tökum.
Ýmislegt fleira mætti um skrif
Gunnars Sigurðssonar segja og út-
flutning á hrossum í sambandi við
það, en að þessu sinni læt eg staö-
í»
ar numið.
Illa hefur mér æfinlega Iátið í
eyrum skrölt í tómum vögnum, en
einna hæðsta og skröltmesta hljóöið
hefur mér virst koma frá tómum j
fjaðralausum vagngarmi austan Þjórs- !
ár, sem var þó búinn að vera til
aðgerðar annað veifið í Rvík í ein
8-9 ár.
Rvík 29. júlf 1916.
Jóh. ögm. Oddsson.
Eineykis
Skemtivagn
óskast keyptur.
Tilboð merkt »Vagn« sendist
afgr. þessa blaðs fyrir 6. þ. m.
Gott hús
á góðum og fallegum
stað
í baenum er til sölu, með fallegri
lóð, mikilli eða lítilli, eftir því
sem hentar.
ÞÓRÐUR úrsmiður JÓNSSON
vísar á.
Langsjöl og þrfhyrnur
fást alt af í Garðarsstræti 4 (gengið
upp frá Mjóstræti 4). [43
Saumaskapur
á morgunkjólum, barnafötum o. fl.
er tekinn á Vesturgötu 15 (vestur-
endanum). [217
Morgunkjólar vænstir og ódýrast-
ir á Nýlendugötu 11 B. áður á
Vesturgötu 38. [447
Mjólkurhúsið á Grettisgötu 38
vill daglega fá keypta 50—100 ltr.
af nýmjólk nú þegar eða frá 1.
september næstlí'’ [297
Morgunkjólar fást beztir í Garða-
str. 4. [299
Vöölur vil eg kaupa.
Jón Sigurðsson á Laugavegi 54.
_____________________________[1
Barnaskór á 1 árs til 2 ára fást
á Njálsgötu 29 uppi. [2
Bókabúðin á Laugavegi 4 selur
brúkaðar bækur, Lágt verð. [3
Brúkaðir skóleistar af öllum
stæröum óskast til kaups. Valdi-
mar Kr. Guðmundsson, Langanes-
spítala. [4
Herbergi til leigu fyrir ferðafólk
í Lækjargötu 12 B. [305
Eitt gott herbergi (eða tvö þá
annað minna) og með sérinngangi,
vantar mig frá 1. október. Engil-
bert Hafberg hjá Zimsen. [5
j Hatti með fangamarki, sem tek-
| inn var í misgripum í gærkvöldi
f úr forstofunni á Skjaldbreið óskast
skilað þangað til afgreiöslufólksins.
[308
Budda hefir lapast trá Bergstaða-
stræti og inn á Grettisgötu. Skilist
á Grettisgötu 44. [6
Hjól af handvagni fundiö. A. v.á.
________________________________17
Sunnudaginn 23. þ. m. tapaöist
frá Reykjavik að Kolviðarhóli bögg-
ull með dagblöðum (Vísir) og
Langsjali. Finnandi vinsamlega
beðinn að skila til Þorleifs Jóns-
sonar í Kaupangi í Reykjavík gegn
fundarlaunum. [8
Heyhlaða og hesthús tii leigu.
A. v. á. [309