Vísir - 01.08.1916, Síða 4

Vísir - 01.08.1916, Síða 4
VlSIR Enn um Grullfosshestana Herra Gunnar Sigurösson frá Selalæk liefir gert nokkrar athuga- semdir viö grein mína í 200 tbl, »Vísis«, þar sem hann í blaðinu í gær skrifar langa grein til andsvara, en meginþorri þeirrar ritsmíðar er útúrsnúningar og hártoganir, samt játar hann sumt satt að vera, en sum aðfinnsluatriði mín minnist hann ekki á, sjálfsagt vegna þess að þau voru svo augljós að á móti þeim tjáði ekki að mæla. Skrafdrjúgast verður honum um hrossafjöldan sem fór með skipinu, og að hans hey hafi verið yfriö nóg, en gefur samf jafnframt í skyn að H. Zöllner hafi vanhagað um hey, en lýsir svo jafnframt það til- hæfulaus ósannindi að símað hafi veriö eftir heyi þegar fariö var að skipa hestunum út. Á móti því þýöir greinarhöf. ekki að mæla, að hey var fengið hjá Samúel Ólafs- syni söðlasmið þá um daginn eftir að farið var að skipa hestunum út. Greinarhöf. neitar því að fleiri hestar hafi átt að fara með skipinu en 225, en hvers vegna voru þá rekin á annað hundraö hross upp úr bænum aftur um kvöldið ? Hvaða þýöingu haföi það að láta þau standa meginhluta dagsins niður á bryggju ef þau hafa ekki átt að sigla ? Mögru hrossunum heföi þó sannarlega ekki veilt af að vera á högum þenna dag. Heyrt liefi eg að dýralæknir hafi gert afturreka nokkur tryppi hjá G. S. þenna dag, en varla get eg trúað því að þau hafi verið á ann- að hundrað. Hr. Gunnar Sigurðsson viður- 1 keunir þó, að nýja heyið frá Viöey hafi ekki veriö vel þurt. Það er sjálfsagt engin skreytni í því fólgin hjá höf. Hvaö skyldi annars hafa verið mörg þúsuud pund af vatni í þessum 1500 pd. ? Greinarhöf. viðurkennir Iíka að heyið frá Lækjarbotnum hafi verið slæmt, en bætir því við, að hann hafi fengiö það lánað en ekki keypt. Það gerir svo sáralítinn mismun í þessu efni hvort það «er keypt eða ! lánað, var jafnmikill óþverri hvort ■ sem var, tæplega gefandi hestum í gaddharðindum hvað þá útflutnings- hrossum á sumardegi. Eg þóttist hafa það úr ábyggilegum stað að dýralæknir hefði rekið það til baka — en ef það er rétt hjá 'greinar- höf. að það hafi farið nieð hest- unum, þá er eg sannfærður um að dýralæknir hefir aðeins iátiö það fara með það fyrir augum að hest- arnir rótuðu því undir sig í lest- ina, en ekki til fóðurauka Það er í rangt hjá höf. aö «alómögulegt« I hafi verið að fá hey í bænum í vor, því þetta sama kvöld fékk þó Gunnar Sigurðsson hey allgott inn á Laugavegi, en hann hefir sjálf- sagt þurft aö borga þaö, en ekki fengið það lánað. Svo ætti það að vera, Gunnar minn Sigurðsson frá Selalæk, að þaö væri ykkar áhugamál aö hest- arnir litu sem bezt út er þeir kæmu til útlanda, en manni hefir nú virzt hið gagnstæða hafi átt sér alt of oft stað hingað til hjá sumum hrossaútflytjendum — ekki þó öllum. Og það er gleðilegt ef þéirætlaað fara alment að bæta ráð sitt í þessu efni. — En ekki hefi eg beinlínis trú á því aö G. S. gangi þar á undan með góðu fordæmi; fremur gæti eg trúað Guðm. Böðv. eða máske Dan. Daníels. til þess að Iag- færa eitthvað í þessu efni ef þeir vildu léttan á leggja. Ef að hinir yngri matvælakaup- menn bæjarins æltu að taka sér til fyrirmyndar heyið sem sum útflutn- ingshrossin hafa fengiö á sjóleið- inni, þá heföu þeir sannarlega ekki þurft að vera vandlátir með vöru- kaup sín. Annars kemur »myglaö rnjöU ekki þessu máli við, það er rétt fyrir greinarhöf. aö athuga það sérstaklega, sér til dægrastyttingar í sumarfríinu. Hvað var klukkan þegar hestarnir voru teknir úr haganum um morg- uninn? Og hvað var hún þegar þeir komu í hagann aftur um kvöld- ið? Margir hestar komu á »ptanið« áður en kl. var 11. Skipið fór ekki fyr en kl. 8 morguninn eftir, og það hafa menn sagt mér sem farið hafa á milli landa með útfiutnings- fénaði að aldrei líði skepnunum jafn illa, sem þá þegar skipin liggi kyr inni á höfnum. Höf. viðurkennir þó aö ýmislegt sé athugavert við útskipunina, þó hann reyni að snúa út úr því á þann veg að betra sé að hafa taug en púöa, en ef viö legöum saman með athugasemdir okkar, þá gæti orðið úr því stór réttarbót fyrir hestana og þá er tilgangi mínum náð, og þó ait vitið í þá »bót« kæmi frá G. S. þá skyldi eg vera honum þakklátur fyrir. Óþarfi er fyrir G. S. að bera kvíð- boga fyrir því að eg muni skemma fyrir dýraverndunarstarfseminni með ritsmíðum mínum, fremur ber eg kvíöboga fyrir að hann skemmi fyrir hrossaverzlun landsins með útflutningi sínum. Ef eg fæ bend- ingu um það frá yfirboðurum mín- mínurn að hætta að skrifa um þetta mál, þá er að taka því, eu eftir bendingum G. S. fer eg alls ekki. Glósur Gunnars Sigurðssonar um manninn sem horfeldi er hann bjó í sveit. vísa eg heim til höf. aftur sem mér persónul. alveg óviðkom- andi. Eg skal ekki rengja Gunnar Sig- urðsson um það að hann kunni að hafa nefnt við rekstarmenn sína að reka hrossin gætilega, en ef svo hefur verið þá viröist sem þeir hafi gleymt því furðu fljótt, samanber slysiö er varð á suðurleið er stóðið kom að austan síðast, Af því að hr. Gunnar Sigurðsson bendir mér á að eg muni ekki hafa vit á að skrifa um þetta mál, þá vildi eg í sama máta og mesta bróð- erni mega benda honum á, aö eg hefi fylstu ástæðu til að ætla að hann sé ekki þeim starfa vaxinn að kaupa hross til útflutnings, þvi eg vil ekki ætla aö aðrar hvatir ráði en grunn- hygni hjá þeim manni, sem kaupir fylfulla hryssu viö Þjórsárbrú, en sem kastar svo er hún kemur út að Ölvusárbrú, lítið vit virðist vera í að kaupa svoleiðis gripi til útflutnings og ef þaö væri með ásetningi gert, þá er mikil harka ef ekki annað vera í því fólgiö, en eg hygg að slík misgrip stafi af því að maður- inn veit ekki betur, - þá mælir öll sanngirni með því að á því sé tekið með vægum tökum. Ýmislegt fleira mætti um skrif Gunnars Sigurðssonar segja og út- flutning á hrossum í sambandi við það, en að þessu sinni læt eg staö- í» ar numið. Illa hefur mér æfinlega Iátið í eyrum skrölt í tómum vögnum, en einna hæðsta og skröltmesta hljóöið hefur mér virst koma frá tómum j fjaðralausum vagngarmi austan Þjórs- ! ár, sem var þó búinn að vera til aðgerðar annað veifið í Rvík í ein 8-9 ár. Rvík 29. júlf 1916. Jóh. ögm. Oddsson. Eineykis Skemtivagn óskast keyptur. Tilboð merkt »Vagn« sendist afgr. þessa blaðs fyrir 6. þ. m. Gott hús á góðum og fallegum stað í baenum er til sölu, með fallegri lóð, mikilli eða lítilli, eftir því sem hentar. ÞÓRÐUR úrsmiður JÓNSSON vísar á. Langsjöl og þrfhyrnur fást alt af í Garðarsstræti 4 (gengið upp frá Mjóstræti 4). [43 Saumaskapur á morgunkjólum, barnafötum o. fl. er tekinn á Vesturgötu 15 (vestur- endanum). [217 Morgunkjólar vænstir og ódýrast- ir á Nýlendugötu 11 B. áður á Vesturgötu 38. [447 Mjólkurhúsið á Grettisgötu 38 vill daglega fá keypta 50—100 ltr. af nýmjólk nú þegar eða frá 1. september næstlí'’ [297 Morgunkjólar fást beztir í Garða- str. 4. [299 Vöölur vil eg kaupa. Jón Sigurðsson á Laugavegi 54. _____________________________[1 Barnaskór á 1 árs til 2 ára fást á Njálsgötu 29 uppi. [2 Bókabúðin á Laugavegi 4 selur brúkaðar bækur, Lágt verð. [3 Brúkaðir skóleistar af öllum stæröum óskast til kaups. Valdi- mar Kr. Guðmundsson, Langanes- spítala. [4 Herbergi til leigu fyrir ferðafólk í Lækjargötu 12 B. [305 Eitt gott herbergi (eða tvö þá annað minna) og með sérinngangi, vantar mig frá 1. október. Engil- bert Hafberg hjá Zimsen. [5 j Hatti með fangamarki, sem tek- | inn var í misgripum í gærkvöldi f úr forstofunni á Skjaldbreið óskast skilað þangað til afgreiöslufólksins. [308 Budda hefir lapast trá Bergstaða- stræti og inn á Grettisgötu. Skilist á Grettisgötu 44. [6 Hjól af handvagni fundiö. A. v.á. ________________________________17 Sunnudaginn 23. þ. m. tapaöist frá Reykjavik að Kolviðarhóli bögg- ull með dagblöðum (Vísir) og Langsjali. Finnandi vinsamlega beðinn að skila til Þorleifs Jóns- sonar í Kaupangi í Reykjavík gegn fundarlaunum. [8 Heyhlaða og hesthús tii leigu. A. v. á. [309

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.